Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Page 4
fimmtudagur 27. nóvember 20084 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
„Þetta er hræðilegt, sonur minn þor-
ir varla út úr húsi,“ segir Guðbjörg
Hjaltadóttir, móðir Óskars Arnar.
Óskar Örn hefur fengið að líða fyrir
barsmíðar samnemenda sinna þrátt
fyrir það að hann tengist málinu ekki
á nokkurn hátt fyrir utan það að vera
nemandi í Njarðvíkurskóla. Ástæðan
er sú að Óskar Örn ber sama fornafn
og einn af þeim pörupiltum sem réð-
ust á samnemanda sinn með höggum
og spörkum. Myndband af árásinni
var síðan sett á vefinn YouTube og
er talið að þúsundir Íslendinga hafi
horft á það. Myndbandinu var fljótt
kippt út af YouTube en nokkrir virð-
ast hafa vistað það á tölvunni hjá sér
því það fór í mikla dreifingu á verald-
arvefnum og er hægt að finna það á
fjölmörgum vefsíðum í dag.
Grímuklæddir á þakinu
„Í fyrrakvöld var bankað á útidyra-
hurðina heima hjá okkur og við fór-
um til dyra en sáum engan. Ég fór þá
að ganga í kringum bílinn minn og
heyrði þá eitthvað þrusk. Þá sá ég tvo
menn uppi á húsþakinu hjá okkur og
voru þeir búnir að hylja andlit sín,“
segir Guðbjörg sem var skiljanlega
mikið brugðið.
„Þegar þeir sáu mig hoppuðu þeir
niður. Við búum í einbýlishúsi og það
er auðvelt að fara upp á þak. Þetta er
rosalega leiðinlegt mál,“ segir Guð-
björg og bætir við að sonur hennar
sé eyðilagður vegna misskilningsins.
„Auðvitað er hann eyðilagður.
Hann er saklaus drengur sem verð-
ur fyrir því að einn skólabróðir hans,
sem er nýr og óþekktur í Njarðvík,
heitir sama fornafni og hann. Þetta
er fljótt að berast í gegnum netið og
nafnið hans hlýtur að hafa villst inn á
einhverja vefsíðu,“ segir Guðbjörg.
Múgæsingur í bænum
Svo virðist sem mikill múgæsingur sé
að byggjast upp í kringum ofbeldis-
málið suður með sjó og er Óskar Örn
fórnarlamb þess. Fjölmargir þekkt-
ir bloggarar hafa skrifað um málið
og birt nöfn þeirra sem tóku þátt í
árásinni.
„Óskar Örn er bara þekktur sem
góður strákur, duglegur að læra og
er góður í fótbolta. Hann hefur aldrei
verið í neinu svona,“ segir Guðbjörg
en hún telur það nánast öruggt að
allir í Njarðvíkurskóla viti um mis-
skilninginn og því séu þeir sem fóru
upp á húsþak heimilisins úr öðru
bæjarfélagi.
„Já, það held ég alveg örugglega,
frekar úr öðrum bæjarfélögum og
Reykjavík. Misskilningurinn er fljótur
að berast. Þetta gætu ekki hafa verið
nemendur úr Njarðvíkurskóla, ekki
nema þá kannski yngri nemendur,“
segir Guðbjörg. Hún hafði ekki haft
samband við lögreglu vegna málsins
þegar DV heyrði í henni í gær.
„Nei ég hef ekki gert það en geri
það að sjálfsögðu ef þetta held-
ur áfram. Ég talaði við stjórnend-
ur Njarðvíkurskóla og þeir ætla að
tala við skólastjórana í öðrum skól-
um bæjarins. Auðvitað reyna allir að
gera sitt besta en þetta er ömurlegt
ástand.“
Hálfhrædd
„Það er agalegt ef hann fær slæmt
orð á sig fyrir einhvern annan. Þetta
er lítið samfélag og það er ömurlegt
ef sonur minn fær á sig einhvern
stimpil út af þessu,“ segir Guðbjörg
og bætir við að henni líði heldur ekk-
ert vel.
„Ég er bara eyðilögð yfir þessu og
hálfhrædd því ég hef aldrei kynnst
öðru eins,“ segir Guðbjörg.
Grímuklæddu menn-
irnir á hús-
þakinu eru
ekki það eina
sem Ósk-
ar Örn og
fjölskylda
hans hafa
þurft að
þola því
alls stað-
ar á netinu
er hon-
um hótað
barsmíð-
um og að
það verði
„gengið frá
honum“ við fyrsta
tækifæri.
Lögreglan á Suð-
urnesjum hefur ekki
fengið nein hótunar-
mál inn á borð til sín en
þar á bæ segja menn
þó að slíkar hótanir
verði ekki teknar
neinum vett-
lingatök-
um.
Óskar Örn Óskarsson, fimmtán ára nemandi Njarðvíkurskóla, á ekki sjö dagana sæla
því yfir hann rignir hótunum úr öllum áttum og það allt saman fyrir misskilning. Ástæð-
an er sú að nafni Óskars var einn af þeim sem gengu hrottalega í skrokk á samnemanda
sínum á lóð Njarðvíkurskóla. Tveir grímuklæddir menn gerðu dyraat heima hjá Óskari
Erni í fyrrakvöld og klifruðu þeir meðal annars upp á húsþak. Móðir Óskars Arnar,
Guðbjörg Hjaltadóttir, segir son sinn varla þora út úr húsi.
Hóta saklausum pilti
Atli Már GylfAson
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
ofbeldishneigðir einn af þeim pörupilt-
um sem réðust á samnemanda sinn var
nýbyrjaður í njarðvíkurskóla og heitir óskar.
Það er hins vegar ekki óskar Örn.
saklaus óskar Örn er fyrirmyndarnemandi sem
stundar knattspyrnu af kappi. Hann átti engan
þátt í ofbeldinu á skólalóð njarðvíkurskóla en er í
staðinn fórnarlamb múgæsings í bæjarfélaginu.
Bjorn Richard Johansen, norski
spunameistarinn sem Geir H. Haarde
forsætisráðherra fékk til liðs við sig í
kjölfar bankahrunsins í október, gisti í
lúxússvítum Hilton hótelsins og Rad-
isson SAS 1919 á meðan hann sinnti
verkefnum sínum við samræmdar
almannatengslaaðgerðir fyrir ríkis-
stjórnina. Fyrri hlutanum eyddi hann
á Hilton en þeim seinni á 1919. Eins
og kom fram í DV í gær hefur hann
nú lokið verkefnum sínum og heldur
brátt af landi brott, rúmum fimm vik-
um eftir að hann hóf störf. Orðróm-
ur hefur verið uppi um að ríkið hafi
borgað lúxussvítudvöl Johansens í
þennan rúma mánuð, en svo mun
ekki vera.
„Ríkið mun borga fyrir venjulegt
herbergi, Björn Richard Johansen
borgar sjálfur það sem kostar auka-
Bjorn richard Johansen lét fara vel um sig í lúxussvítum Hiltons og 1919:
Spunameistarinn í lúxussvítum
lega fyrir hann að fá betra herbergi,“
segir Kristján Kristjánsson, upplýs-
ingafulltrúi forsætisráðuneytisins. Að
sögn Kristjáns hefur Johansen ótal
sinnum gist á Hilton og því fær hann
sjálfkrafa uppfærslu í betra herbergi.
Eins og kom fram í DV í gær starfaði
Johansen áður sem yfirmaður al-
þjóðlegra fjárfestatengsla fyrir Glitni
í Noregi um þriggja ára skeið áður
en hrunið varð og ríkisstjórnin kall-
aði hann til. Hann hefur því oft dval-
ið hér á landi áður í tengslum við at-
vinnu sína. Hann er nú nágranni
fyrrverandi yfirmanns síns Bjarna
Ármannssonar í auðmannahverfi í
Bærum. Samkvæmt skattframtali í
Noregi þénaði Johansen tæplega 50,5
milljónir íslenskra króna á síðasta
ári, eða um 4,2 milljónir á mánuði og
munar því víst ekki um að leyfa sér
þann munað færa sig úr venjulegu
hótelherbergi upp í lúxussvítu.
DV hefur óskað eftir upplýsingum
um þau laun sem Norðmaðurinn fékk
fyrir störf sín hjá forsætisráðuneytinu
en þær upplýsingar höfðu ekki borist
þegar þessi orð eru skrifuð.
mikael@dv.is
Í lúxus á Hilton og 1919 Íslenska ríkið greiddi
fyrir venjulegt hótelherbergi undir bjorn richard
Johansen þann rúma mánuð sem hann starfaði
fyrir forsætisráðuneytið. Hann borgaði sjálfur
mismuninn til að færa sig upp í lúxussvítur.
Bíður enn
eftir Össuri
Smári Garðarsson, starfsmaður
á vélaverkstæði Eimskips, hefur
enn ekki heyrt frá Össuri Skarp-
héðinssyni iðnaðarráðherra sem
á borgarafundi í Háskólabíói á
mánudag stakk upp á því að þeir
færu saman á skrifstofu Davíðs
Oddssonar seðlabankastjóra þar
sem þeir krefðust þess að Dav-
íð upplýsi um ástæðu þess að
Bretar beittu hryðjuverkalögum
á Íslendinga. „Hann hefur ekki
gert það ennþá en maður veit
aldrei hvað verður,“ segir Smári
aðspurður hvort Össur hafi haft
samband.
DV sagði frá því í gær að
Smári ætlaði að taka Össur á
orðinu. Össur hefur heldur ekki
svarað fyrirspurnum blaðsins
um hvort hann ætli að standa
við orð sín.
Ritstjórinn kaupir
Viðskiptablaðið
Á starfsmannafundi Viðskipta-
blaðsins síðasta föstudag til-
kynnti Ásmundur Tryggvason,
stjórnarformaður Framtíðar-
sýnar og núverandi eigandi Við-
skiptablaðsins, í sem stystu máli
að Exista hefði ákveðið að leggja
ekki inn meira fé í Framtíðar-
sýn. Á fundinum var einnig rætt
um það að Haraldur Johannes-
sen muni líklegast í samstarfi við
fjárfesta kaupa blaðið og gefa út
helgarblað með um tíu starfs-
mönnum. Óvíst er hvort ein-
hverjir aðrir aðilar muni reyna
að eignast Viðskiptablaðið.
Óvíst með laun í
uppsagnarfresti
Óvissa ríkir um það hvort
starfsmenn Viðskiptablaðsins
fái greidd laun í uppsagnar-
fresti. Öllum starfsmönnum
var sagt upp í síðasta mánuði
og er útgáfufélag blaðsins
nú í greiðslustöðvun. Líklegt
þykir að það verði gjald-
þrota og Exista, aðaleigandi
blaðsins, hyggst ekki leggja
meiri peninga í starfsemina.
Samkvæmt heimildum DV,
meðal annars frá fyrrver-
andi starfsmanni Viðskipta-
blaðsins, er alls ekki öruggt
að starfsmenn fái borgaðan
uppsagnarfrest sinn. Hann
segir að seinasta föstudag
hafi starfsmönnum verið
lofað því að þeir myndu fá
borgað fyrir nóvembermán-
uð en starfsmenn viti ekki
um næstu mánuði. Flestir
starfsmannanna höfðu upp-
sagnarfrest upp á þrjá til fjóra
mánuði.
260 báðu um mat
260 manns komu til Fjölskyldu-
hjálparinnar í gær að sögn Ás-
gerðar Jónu Flosadóttur. Á
hverjum miðvikudegi hefur
Fjölskylduhjálpin aðstoðað fólk
og gefið matvæli til þeirra sem
þarfnast þeirra mest. Forsvars-
menn Fjölskylduhjálpar Íslands
segjast hafa fengið eina og hálfa
milljón frá ríkinu í fyrra. Ásgerð-
ur segir að þegar nóg sé af mat
nái þau að afgreiða um 250 fjöl-
skyldur á miðvikudögum. Það
var því ansi lítið eftir fyrir þá sem
komu seinastir. Ásgerður býst við
meiri fjölda eftir viku