Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Qupperneq 6
fimmtudagur 27. nóvember 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
„Hann er ekki heima,“ sagði hrein-
gerningakona Friðjóns Þórðar-
sonar við blaðamann þegar hann
bankaði upp á hjá honum í gær-
dag. Friðjón hefur verið kærður fyr-
ir auðgunarbrot og peningaþvætti
ásamt æskuvini sínum, Matthíasi
Ólafssyni borgarstarfsmanni.
Friðjón var forstöðumaður
verðbréfasviðs Virðingar hf., en
hann og Matthías hafa verið sak-
aðir um markaðsmisnotkun auk
peningaþvættis og auðgunarbrota.
Æskuvinirnir neita ásökunum, en
alls eiga þeir að hafa millifært 250
milljónir á milli reikninga sinna. Í
gæsluvarðhaldsúrskurði, sem DV
hefur undir höndum, halda þeir
uppi þeim vörnum að hinar gríð-
arháu millifærslur séu tilkomnar
vegna bílaviðskipta og fasteigna-
kaupa.
Ljósatæknir með tugi milljóna
Það var í júní síðastliðnum sem
banki tilkynnti um óvanalegar háar
millifærslur. Í kjölfarið kom í ljós
að millifærslur upp á 250 millj-
ónir króna hafi staðið yfir á tíma-
bilinu október á síðasta ári fram í
september síðastliðinn. Upphæð-
irnar voru millifærðar frá Virðingu
hf., þar sem Friðjón starfaði, yfir
á reikning Matthíasar, sem sjálfur
vinnur sem ljósatæknir hjá Orku-
veitu Reykjavíkur. Eftir að pening-
arnir voru færðir yfir á reikning
Matthíasar millifærði hann stóran
hluta upphæðarinnar yfir á reikn-
ing Friðjóns. Þá áttu sér einnig stað
háar millifærslur á milli Virðingar
hf. og FHM, sem er eignarhaldsfé-
lag í eigu æskuvinanna tveggja og
bróður Friðjóns.
Milljónir vegna bílaviðskipta
Sjálfur segir Friðjón, samkvæmt úr-
skurði héraðsdóms, að millifærsl-
urnar eigi sér eðlilegar skýringar.
Hann vísar til þess að hann annist
að miklu leyti verðbréfa- og gjald-
eyrisviðskipti fyrir hönd Matthí-
asar, sem starfar sem ljósatæknir
hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þess
vegna hafi hann millifært milljón-
ir á reikninginn og svo eigi Matthí-
as að hafa millifært á reikning Frið-
jóns vegna bílaviðskipta og skulda
þeim tengdum. Þetta telur lögregl-
an afar ólíklegt og í raun beri mik-
ið á milli framburðar Matthíasar og
Friðjóns.
Varðar allt að sex ára fangelsi
Friðjón er sonur forstjóra Kaup-
hallarinnar, Þórðar Friðjónsson-
ar, sem sjálfur er sonur fyrrverandi
dómsmálaráðherra Íslands, Frið-
jóns Þórðarsonar.
Í úrskurði héraðsdóms kemur
fram að Friðjón yngri Sé kærður
fyrir að hafa brotið gegn 249. grein
hegningarlaganna sem hljóðar svo:
Ef maður, sem fengið hefur aðstöðu
til þess að gera eitthvað, sem ann-
ar maður verður bundinn við,
eða hefur fjárreiður fyrir aðra á
hendi, misnotar þessa aðstöðu
sína, varðar það fangelsi allt að
2 árum, og má þyngja refsing-
una, ef mjög miklar sakir eru,
allt að 6 ára fangelsi.
Hreingerningakona til
varnar
Að sögn hreingerningakonu
Friðjóns var hann ekki heima þeg-
ar blaðamaður bankaði upp á hjá
honum. Aftur á móti mátti finna þar
tvo bíla, annars vegar
forláta Audi-jeppa,
sem kostar um
ellefu milljónir
króna. Síðan var
glæsileg Benz-
bifreið einnig á
hlaðinu. Bíllinn
er skráður á Av-
ant hf.
Héraðsdóm-
ur féllst ekki á
gæsluvarðhalds-
kröfu ríkislög-
reglustjóra;
til
þess þótti þeim ekki næg heimild
þó viðurkennt væri að útskýringar
þeirra væru ótrúverðugar.
Ekki náðist í Matthías þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir frekar en Frið-
jón.
Æskuvinirnir Matthías Ólafsson, ljósatæknir Orkuveitu Reykjavíkur, og verðbréfa-
salinn Friðjón Þórðarson halda því fram að 250 milljóna króna millifærslur séu til-
komnar vegna bifreiðaviðskipta og fasteignakaupa. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst
ekki á gæsluvarðhald yfir Friðjóni en viðurkenndi í dómsorði að útskýringar þeirra
væru ótrúverðugar.
VaLur grettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
glæsilegir bílar fyrir utan heimili friðjóns
Þórðarsonar mátti finna tvo glæsibíla. annar
var í eigu hans en hinn væntanlega
á kaupleigu.
ÆSKUVINIRNIR
DEILDU STÓRFé
„Allt sem kemur fram til að skýra
málið er til hins betra. Það ligg-
ur í augum uppi,“ segir Vilhjálmur
Bjarnason, aðjúnkt við viðskiptaskor
Háskóla Íslands og formaður Félags
fjárfesta, sem hvetur til aðgengis að
upplýsingum.
Seðlabankinn hefur enn ekki tek-
ið afstöðu til þess hvort DV fær afrit
af minnismiðum Davíðs Oddssonar
seðlabankastjóra þar sem á að koma
fram að hann hafi margsinnis fund-
að með forsvarsmönnum viðskipta-
bankanna fyrir bankahrunið og var-
að þá við þenslu bankanna. DV hefur
því lagt fram kæru á hendur bankan-
um til úrskurðarnefndar um upplýs-
ingamál.
Í viðtali við Financial Times 23.
október sagði Davíð að til væru
minnismiðar sem sönnuðu að hann
hefði varað bankamenn við en
stjórnendur Glitnis, Kaup-
þings og Landsbankans ekki
hlustað á hann.
DV óskaði eftir minni-
smiðunum fyrir mánuði,
eða 24. október. Síðan þá
hefur blaðamaður endur-
tekið ítrekað ósk sína í símtöl-
um við Stefán Jóhann Stefánsson,
ritstjóra á skrifstofu Seðla-
bankans, sem sér
um samskipti
bankans við
fjölmiðla.
Svör Stefáns
hafa verið
á þá leið að
vegna anna
hafi ekki
unnist tími
til að taka afstöðu til
beiðninnar.
Arna Schram,
formaður Blaða-
mannafélags Ís-
lands, hvetur
blaðamenn til að
leita til úrskurðar-
nefndar um upplýs-
ingamál ef upplýs-
ingabeiðnum
er hafnað eða þær ekki afgreiddar.
„Stjórnmálamenn og jafnvel seðla-
bankastjóri hafa lýst því yfir að allt
þurfi að vera uppi á borðum. Athafn-
ir þurfa að fylgja þessum orðum,“
segir hún.
Seðlabankinn heyrir undir upp-
lýsingalög og ber að afgreiða upp-
lýsingabeiðni eins fljótt og auðið er.
Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan
sjö daga þarf að skýra umsækjendum
frá ástæðum tafarinnar og sömuleið-
is gera grein fyrir hvenær ákvörðunar
er að vænta. Þetta hefur Seðlabank-
inn ekki gert.
Seðlabankinn þarf nú að gefa
upp afstöðu sína til upplýsinga-
beiðninnar. Ef DV verður synj-
að um upplýsingarnar er næsta
skref að kæra þá ákvörðun
Seðlabankans. erla@dv.is
Seðlabankinn svarar ekki beiðni DV um minnismiða Davíðs oddssonar:
dv kærir Seðlabankann
Leynir upplýsingum davíð Oddsson
segir minnismiða sína sanna að hann hafi
varað forsvarsmenn viðskiptabankanna
við þenslunni.
MynD steFán KarLsson
Þrífa Ísafjörð
Ísafjarðarbær fær heldur betur
góða aðstoð næsta sumar en þá
ætla sjálfboðaliðar í félagasam-
tökunum Veraldarvinir að hjálpa
við umhverfisþrif. Veraldarvin-
ir hafa unnið að umhverfis- og
menningartengdum verkefnum
um allt land en þeir hafa meðal
annars staðið fyrir skipulegri
hreinsun strandlengju Íslands.
„Við hreinsum allt sem hægt er
að taka með höndum og kort-
leggjum síðan með GPS-tækjum
þau stykki sem ekki er hægt að
fjarlægja nema með stórvirkum
vinnuvélum. Hugmyndin er síð-
an að fjarlægja þau stykki síðar
meir,“ segir í bréfi sem Veraldar-
vinir hafa sent Ísafjarðarbæ.
Orkuveitan
hægir á
Í haust réðst Orkuveita Reykja-
víkur í gerð nýs fráveitukerf-
is fyrir Borgarnes, Akranes og
Kjalarnes. Ákveðið hefur verið
að draga úr framkvæmdahraða
þessara verka vegna efnahags-
ástandsins. Seinkun þessi nem-
ur tæpu ári og framkvæmdum
mun ljúka síðari hluta árs 2010
í stað ársloka 2009. Ístak sér
um verktökuna fyrir Orkuveit-
una og hefur byggingafyrirtæk-
ið samþykkt að draga úr hraða
framkvæmda. Upprunaleg verk-
áætlun við gerð hreinsistöðva á
Bifröst, Varmalandi, Hvanneyri
og í Reykholti stendur þó enn.
Áhyggjur af
niðurskurði
Bæjarráð Sandgerðisbæjar
lagði fram bókun um mál-
efni Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja á fundi sínum í
fyrradag. Í bókuninni segir
að bæjarráð lýsi yfir miklum
áhyggjum af sparnaðartil-
lögum sem fram hafa komið
að undanförnu. Bæjarráðið
telur nauðsynlegt að leiðrétta
framlög HSS þar sem ekki
hafi verið tekið tillit til mikill-
ar íbúafjölgunar í umdæm-
inu frá árinu 2005. „Niður-
skurður mun bitna harkalega
á meðal annars skurðstofu
HSS. Miðað við aðstæður í
þjóðfélaginu telur bæjarráð
ótækt að skerða framlög til
heilbrigðsþjónustu á Suður-
nesjum.“ segir í bókuninni.
Enginn pabbatími
Niðurskurður ríkisins á starfsemi
Heilbrigðisþjónustu Suðurnesja
á sér margar birtingarmyndir. Sú
nýjasta snýr að verðandi foreldr-
um landsins en vegna niður-
skurðarins þarf að hætta við tvo
síðustu tíma foreldranámskeiðs
sem haldið er reglulega á sjúkra-
húsinu. Annar af þessum tímum
er svokallaður „pabbatími“ þar
sem verðandi feður fræðast um
ýmislegt er viðkemur litlu krílun-
um. Kostnaður við námskeiðið
var sex þúsund krónur en hefur
nú verið lækkaður í fimm þús-
und krónur.
Matthías Ólafsson Ljósatæknir
Orkuveitu reykjavíkur sat í
gæsluvarðhaldi frá föstudegi til
mánudags.
Friðjón Þórðarson
neitar ásökunum um
að hafa framið
auðgunarbrot með því
að millifæra 250
milljónir frá virðingu hf.
til matthíasar vinar síns.