Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Qupperneq 10
fimmtudagur 27. nóvember 200810 Neytendur
Dísilolía
el
d
sn
ey
t
i Gullinbrú verð á lítra 149,5 kr. verð á lítra 179,6 kr.
Skeifunni verð á lítra 148,2 kr. verð á lítra 175,9 kr.
Skógarhlíð verð á lítra 149,5 kr. verð á lítra 179,6 kr.
bensín
við Kænuna verð á lítra 144,1 kr. verð á lítra 170,3 kr.
Bæjarlind verð á lítra 144,2 kr. verð á lítra 170,4 kr.
Fellsmúla verð á lítra 148,2 kr. verð á lítra 175,9 kr.
Skógarseli verð á lítra 148,0 kr. verð á lítra 178,1 kr.
umsjón: baldur guðmundsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
Höskuldur Þór Þórhallsson, lögmaður og alþingismaður, segir að lífið haldi áfram
þótt fólk verði gjaldþrota eða lendi á vanskilaskrá. Skuldafangelsi séu liðin tíð og að
ekki sé hægt að gera kröfu í laun fólks.
Lífið eftir
gjaLdþrot
„Það á enginn að missa æruna vegna
gjaldþrots eða vanskila, það eru svo
margir sem lenda í þessu nú á tím-
um. Fólk heldur áfram að vinna vinn-
una sína, ef það hefur vinnu, og lífið
heldur áfram,“ segir Höskuldur Þór
Þórhallsson, lögmaður og alþingis-
maður. Hann vann um skeið sem að-
stoðarmaður dómara í Héraðsdómi
Reykjavíkur og þekkir því ágætlega
ferlið sem fer í gang þegar fólk getur
ekki greitt skuldir sínar.
Engin réttarhöld
„Það fyrsta sem gerist er að fólk fær
sent innheimtubréf, oftast frá ein-
hverjum lögfræðiskrifstofum eða
öðrum sem sjá um slíkar rukkanir. Ef
því er ekki sinnt er málinu stefnt fyr-
ir dóm,“ segir Höskuldur en í flestum
tilvikum er gerður svokallaður útivist-
ardómur. „Dómarinn áritar málið þar
sem ástæða vanskila er í langflestum
tilvikum sú að skuldarinn á ekki pen-
inga. Því fara engin réttarhöld fram,
heldur stimplar dómarinn einungis
kröfuna,“ segir Höskuldur en telji sá
sem skuldar sig hafa einhverjar varnir
er hægt að höfða einkamál.
Eignir boðnar upp
Þegar dómarinn hefur áritað kröfuna
þarf að fara með hana til sýslumanns.
„Þá er kannað hvort sá sem skuldar á
eignir og þá hvort þær eru veðsettar
eða ekki,“ segir Höskuldur en sjaldn-
ast er um miklar eignir að ræða. Ein-
ungis bílar og hús eru tekin fjárnámi,
ekki innbú, fatnaður eða laun. Ef
skuldarinn á hús sem ekki er að fullu
veðsett er húsið selt á uppboði og
kröfuhafinn fær peningana sína, að
viðbættum dráttarvöxtum, en skuld-
arinn restina, ef einhver er.
Ef viðkomandi á engar eignir ger-
ir sýslumaður árangurslaust fjárnám
og viðkomandi lendir á vanskila-
skrá. „Það er ekki spennandi plagg að
lenda á,“ segir Höskuldur en þar get-
ur hver sem kaupir aðgang hjá Cred-
itinfo séð að viðkomandi er á van-
skilaskrá. Þetta ferli getur tekið mjög
mismunandi mikinn tíma, allt frá
nokkrum mánuðum upp í nokkur ár.
Á nær öllum stigum málsins er hægt
að semja um greiðslur eða niðurfell-
ingu lánsins. Það er þó undir velvilja
bankans eða kröfuhafans komið.
Hafa ber í hug að nú er rætt um að
Íbúðalánasjóður taki hugsanlega yfir
einhvern hluta húsnæðislána bank-
anna en sjóðurinn hefur fengið aukn-
ar heimildir til að minnka greiðslu-
byrðar fólks. Til dæmis með lengingu
lánsins.
Vanskilaskrá ekki endalokin
Höskuldur segir að þó sá sem skuld-
ar fari á vanskilaskrá þá falli krafan
ekki niður. Kröfur fyrnast hins veg-
ar á fjórum árum, nema kröfuhafinn
haldi henni lifandi og stefni málinu
aftur fyrir dóm áður en krafan renn-
ur úr gildi. Ef sá einstaklingur eða
fyrirtæki sem skuldar á miklar eignir,
þá er skipaður sérstakur skiptastjóri
sem tekur yfir öll fjármálin og reynir
að selja eignir upp í kröfurnar. „Það er
ekki hægt að gera kröfur á laun fólks.
Gjaldþrot eða vanskil hafa enga eft-
irmála aðra en þá að fólk getur ekki
eignast bíl eða hús á meðan krafan er
til staðar,“ segir hann.
Fólk haldi heimilum sínum
Höskuldur segir að stjórnvöld eigi
að líta á það sem forgangsverkefni
að koma í veg fyrir gjaldþrot og að
fólk missi heimilin sín. „Þetta er það
sem ég óttast mest í þjóðfélaginu. Við
eigum að fara varlega í innheimtu-
aðgerðir og gefa fólki rýmri tíma, en
hingað til hefur verið, til að gera upp
sínar skuldir,“ segir hann. Um ára-
mótin munu ný lög taka gildi þar
sem kveðið er á um að hægt verði að
semja um, eða fella niður að hluta,
vangreidda skuld. „Þetta er jákvætt
en það fær þó enginn núllstillt og það
mun enginn græða á því að fara þessa
leið,“ segir Höskuldur að lokum.
n Móðir fór á Taco Bell
á Höfðanum um
daginn. Dætur hennar
fóru í röð á Subway og
voru búnar með sína báta áður
en hún fékk matinn, þrátt fyrir að
lítið sem ekkert væri að gera á
Taco Bell. Hún sagði auk þess að
maturinn hefði vægast sagt verið
mjög naumt skammtaður. Við
kvörtun fékk hún undarlegt viðmót og
litlu var bætt
við skammt-
inn.
n Kona sem fór í verslunina Kiss í
Kringlunni, hafði samband og sagðist
þar hafa fengið bestu þjónustu sem
hún hefði fengið í langan tíma.
Hún sagði að í Kiss væri tekið á
móti manni með bors á vör og
maður fengi ró og næði til að
máta föt án þess að vera
hundeltur um búðina. Búðin
væri auk þess falleg
og vörurnar góðar.
Sif Ingólfsdóttir segir útför ekki þurfa að kostar hálfa milljón:
HelminGi ódýrari útFör
„Jarðarför þarf ekki að kosta 400 til
500 þúsund. Vel er hægt að komast
af með um helmingi lægri upphæð,“
segir Sif Ingólfsdóttir, hláturjóga-
kennari og fjölfræðingur á sviði nátt-
úrulækninga. Á þriðjudaginn birtist í
DV viðtal við útfararstjórann Rúnar
Geirmundsson þar sem fram kom að
jarðarför kostaði allt að hálfri milljón
króna.
Sif ritaði í fyrrahaust grein í tíma-
ritið Heilsuhringinn þar sem hún birt-
ir útreikninga sína um kostnað vegna
útfarar. „Eitt sinn var ég við dauðans
dyr. Þá varð mér það allt í einu ljóst
að ég óskaði þess að jarðarför mín
yrði eingöngu hlýleg og látlaus. Ég
leitaði þá upplýsinga hjá presti og út-
fararstjóra,“ skrifaði Sif sem segir að
við kistulagningu þurfi hvorki org-
elleik né söng. Einungis þurfi ein-
söngvara við útförina og ef Fossvogs-
kirkja yrði notuð þyrfti ekkert gjald
að greiða fyrir athöfnina í kirkjunni.
Hún segir sjálfgefið að nota sæng,
kodda og fatnað hins látna enda hafi
fæstir áhuga á því að nýta slíka hluti
eftir fráfallið. Þá séu blómaskreyting-
ar óþarfar, eins og sannaðist við útför
Sigurbjörns Einarssonar biskups, fyrr
á árinu, sem hafði óskað eftir því að
kistan yrði einungis sveipuð íslenska
fánanum. Loks segir Sif að erfidrykkj-
ur séu ekki nauðsynlegar og bendir á
að útför í kyrrþey sé um 15 þúsund
krónum ódýrari. Þá sé ekkert gjald
tekið fyrir líkbrennslu.
baldur@dv.is
nauðSynleGt
að Sjóða
Ef þú þværð þvott alltaf við lágan
hita fjölgar bakteríum og óhrein-
indum í þvottavélinni þinni.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
könnunar sem Neytendablað-
ið framkvæmdi á þvottavélum á
árinu. Bakteríur getur skapað við-
varandi vonda lykt úr vélinni og
af þvottinum. Lausnin við þessu
er að stilla vélina reglulega á suðu
og leyfa henni að hreinsa sig.
Sumir ráðleggja fólki að nota þá
í leiðinni dálítið af bleikiefni eins
og klór. Gættu þess bara að þvo
ekki jólakjólinn í það skiptið.
ein matSKeið
duGar
Enn af þvotti. Kannanir hafa leitt
í ljós að Íslendingar, eins og aðrar
þjóðir, nota of mikið af þvotta-
efni. Ert þú einn af þeim? Flestir
setja jafnmikið þvottaefni og þeir
telja nægilegt en bæta svo til ör-
yggis við slatta, til að hafa vaðið
fyrir neðan sig. Staðreyndin er sú
að í flestar vélar dugar ein mat-
skeið af þvottaefni. Restin skolast
út og rennur í sjóinn eða festist í
þvottinum ef þvottakerfið er stutt.
Gjaldþrot á ekki að vera ærumissir
segir Höskuldur Þór Þórhallsson,
lögmaður og alþingismaður.
„Einungis bílar og hús
eru tekin fjárnámi, ekki
innbú, fatnaður eða
laun.“
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
eF SKuld er eKKi Greidd
1 skuld lendir á gjalddaga
2 skuld lendir á eindaga
3 Ítrekun send og tilkynnt um að lögfræðistofa annist málið
4 lögfræðistofan sendir innheimtubréf og aðvörun.
5 lögfræðistofan útbýr stefnu
6 dómari áritar kröfuna ef ekki er tekið til varna
7 Kröfuhafi fer með dóminn til sýslumanns
8 sýslumaður boðar skuldara á fund
9 sýslumaður gerir fjárnám í eignum
10 skuldari lendir á vanskilaskrá
11 eignin boðin upp
12 andvirði sölunnar greitt upp í kröfur
13 skuldari fær afgang, ef einhver er
14 ef eftir stendur skuld er gerð ný krafa
15 almennar kröfur fyrnast á 4 árum
nema þær séu endurnýjaðar
16 samið um greiðslu eða niðurfellingu
9 sýslumaður gerir
árangurslaust fjárnám
10 skuldari lendir á vanskilaskrá
11 Krafan fyrnist á fjórum árum
ef hún er ekki endurnýjuð
12 samið um greiðslu
eða niðurfellingu
a B
útreiKninGar SiFjar
n góð kista 95.000 kr. fæst hjá
Útfararstofu Íslands
n vandaður einsöngur 35.751 kr.
n orgelleikur 21.536 kr.
n stefgjald 2.000 kr.
n Hvítur kross með skilti á leiðið
15.000
n Hvítt sængurverasett utan um
sæng og kodda hins látna 2.650 kr.
n blæja sem er venjulega stór, hvítur
vasaklútur 200 kr.
n Útfararkostnaður, vegna
kistulagningar og jarðarfarar 91.000
n samtals 263.137 kr.
sendið lof eða last Á neYtendur@dv.is