Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Side 13
Í þessu þriðja bókablaði DV kreppu-
haustið 2008 eru dómar um eina
skáldsögur, tvær minninga-
bækur, tvö sagnfræðirit,
eina barnabók og
eina ljóðabók.
bækur dæmir...
Saga Sæma Rokks er góð viðbót við ævi-
sagnaflóruna. Ingólfur Margeirsson, einn
fremsti ævisagnahöfundur landsins, skrifar
bókina af alúð og vinnur með efnið eins vel
og kostur er. Í lífi Sæma eru tvö tímabil þar
sem hann öðlast landsfrægð. Hann tileink-
aði sér danstakta sem ungur maður og varð
þekktur fyrir mikil tilþrif á sviði sem slíkur.
Fyrst var það dansparið Sæmi og Lóa en
síðan Sæmi og Didda. Hann gerði út á það
að fara um landið og til útlanda og dansa
sig inn í hjörtu Íslendinga. Nokkru eftir að
þessu tímabili í lífi hans lauk beið hans enn
meiri frægð. Það var árið 1972 þegar Bor-
is Spassky, heimsmeistari í skák, og Bobby
Fischer tókust á um heimsmeistaratitilinn
á Íslandi. Þetta var í skugga kalda stríðs-
ins þar sem Sovétríkin og Bandaríkin voru
helstu átakapólar í heiminum. Sæmi Rokk
var á þessum tíma lögregluþjónn og örlög-
in leiddu hann og Bobby saman. Sæmi var
í embættiserindum að gæta Fischers þegar
með þeim spratt vinátta svo þeir urðu óað-
skiljanlegir. Reyndar þannig að Sæmi var
í hlutverki lífvarðarins og þar með þjónn
ólíkindatólsins Fischers. Þessi kafli bókar-
innar er sá langmerkilegasti og greinilegt
að höfundurinn leitar víða heimilda. Um
tíma þynnist ævisögupersónan sjálf út og
Bobby Fischer verður aðalsöguefnið, enda
svo sem af nógu að taka. Kalda stríðið náði
inn í Laugardalshöllina þar sem einvígið var
haldið og loftið var rafmagnað. Hvað eftir
annað var einvígið við það að fara í hund-
ana vegna þess að Fischer var með alls kyns
kröfur og reyndi á þolrif Rússanna. Stór hluti
heimspressunnar fylgdist með átökunum
sem báru það yfirbragð að ríki þeirra áttu í
köldu stríði. Alltaf var Sæmi að baki Bobby
og niðurstaðan varð sú að lífvörðurinn
hefði í raun bjargað einvíginu með því að fá
Bobby ofan af því hvað eftir annað að hætta
og fara. Bókin varpar skýru ljósi á það sem
gerðist að tjaldabaki þessa stóra atburðar
í sögu landsins. Við lesturinn á vináttu og
samleið Sæma og Bobbys kviknar samúð
með Ásu, eiginkonu Sæma. Um nokkurra
mánaða skeið er eiginmaðurinn nánast
horfinn úr lífi fjölskyldunnar. Eftir einvígið
bauð Fischer Sæma til Bandaríkjanna þar
sem lífvörðurinn dvaldi launalaus í þjón-
ustu meistarans í tvo mánuði. Þetta hefur
örugglega reynt á samband hjónanna.
Um leið og það er helsti kostur bókar-
innar að varpa ljósi á atburðina árið 1972 er
það veikleiki ef litið er til sögu Sæma Rokk.
Eðlilegt hefði verið að gera út á það á for-
síðu bókarinnar að hún væri öðrum þræði
saga Bobbys Fischer sem reglulega dúkk-
ar upp í gegnum alla bókina. Bókin heitir
Sæmi Rokk með undirtitlinum Lífsdans Sæ-
mundar Pálssonar. Öll lífshlaup eru í sjálfu
sér merkileg en það fer eftir höfundinum í
hvaða ljósi hann sýnir persónu sína. Sög-
urnar af Sæma í hlutverki lögreglumannsins
eru frábærar. Hann hafði sitt eigið lag á að
stilla til friðar með einkar frumlegum hætti.
Oft bauð hann snarvitlausum einstakling-
um í nefið og róaði þannig niður ástandið.
Þess voru líka dæmi að hann rokkaði innan
um slagsmálahunda og kom þannig á friði
í heimahúsi þar sem afmæli fór úr bönd-
unum. Sæmi var umburðarlynd og réttsýn
lögga. Hann ætti að vera öllum lögreglu-
mönnum á Íslandi fyrirmynd í því hvernig
halda á uppi reglu í samfélaginu án þess að
beita ofbeldi.
Í síðari hluta ævisögunnar kemur Fisch-
er aftur inn í söguna eins og þjófur að nóttu.
Sæmi barðist fyrir því að vinur hans fengi
ríkisborgararétt og gæti þannig flutt til Ís-
lands og átt áhyggjulaust ævikvöld. Þetta
varð úr en vinátta þeirra varð fyrir alvar-
legu hnjaski og Bobby tekur aðra fram yfir
Sæma sem hverfur nánast úr lífi hans. Bókin
bætir litlu við varðandi síðustu ár Fischers
og dauða hans. Sæmi var út úr myndinni
og fékk ekki einu sinni að vera viðstaddur
leynilega útför gamla meistarans.
Í heildina séð er bókin hin læsilegasta.
Enginn verður svikinn af því að ferðast í
gegnum lífið með Sæma Rokk. Þótt Sæmi
hefði sjálfur mátt vera meira áberandi í eig-
in sögu er það í raun aukaatriði. Allir ættu að
hafa gaman af því að gægjast á bak við tjöld-
in og lesa um duttlunga Fischers í kringum
einvígi aldarinnar. Bókin fær þrjár og hálfa
stjörnu.
reynir TrausTason
Löggan og óLíkindaTóLið
Ingólfur MargeirssonGóð viðbót við
ævisagnaflór-
una. Ingólfur
skrifar bókina
af alúð og vinn-
ur með efn-
ið eins vel og
kostur er.
Útgefandi:
Bókaútgáfan Æskan /
Almenna útgáfan
Löggan og
ólíkindatólið
Ævisaga
Eftir Yrsu Sigurðardóttur
Auðnin
„Þóra fer að verða
jafnómissandi
gestur í skamm-
deginu og sjálfur
Erlendur.“
Hvernig ég
hertók höll
Saddams
Eftir Börk Gunnarsson
„Fyrst og fremst
angistarfull
skemmtibók.
Fljúgandi hraður
og lipur stíll.“
Sæmi Rokk
Eftir Ingólf Margeirsson
„Góð viðbót við
ævisagnaflóruna.“
Hvert orð
er atvik
Eftir Þorstein frá Hamri
„Þorsteinn frá Hamri
er einfaldlega í allra,
allra fremstu röð
íslenskra ljóðskálda,
lífs og liðinna.“
Saga mannsins
„Mikill og góður
fengur að þessari
glæsilegu bók.“
Hvert orð
er atvik
Eftir Bjarna Guðmarsson
„Yfirleitt samvisku-
samlega unnið verk.“
Blekhjarta
Eftir Corneliu Funke
„Kjörin fyrir þau
sem eru ekki
of viðkvæm ...“