Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Qupperneq 14
Fimmtudagur 27. nóvember 200814 Bækur
Spennusaga
Íslenska glæpasagan er karlaveldi þar sem mest fer fyrir
miðaldra löggupungum sem fara fyrir litlum hópum lög-
reglufóks sem brjóta flókin sakamál til mergjar. Í þeirra
röðum eru að sjálfsögðu konur en þær keyra allajafna
ekki söguna áfram. Arnaldur Indriðason lék að vísu sterk-
an leik þetta árið með því að gefa Erlendi sínum frí og
tefla undirmanni hans, henni Elínborgu, fram í fremstu
víglínu í Myrká.
Frá því glæpasagan varð að tískufyrirbæri í íslensk-
um bókmenntum hafa þó aðeins tvær konur látið að sér
kveða svo heitið geti og hafa hvor með sínum hætti hrist
upp í karlaveldinu. Þetta eru lögfræðingarnir Stella Blóm-
kvist og Þóra Guðmundsdóttir sem hefur slegið hressi-
lega í gegn í glæpasögum Yrsu Sigurðardóttur.
Báðar eru þessar konur hinar mestu breddur og láta
sér fátt fyrir brjósti brenna. Þá er áhugavert að hvorug
þeirra er lögga og þær eru því ekki fulltrúar svifaseinna yf-
irvalda heldur sjálfstæðir einstaklingar sem eru miklu lík-
legri til að ná árangri en staðnaðir kerfiskallar. Þar sleppir
hins vegar samanburðinum þar sem himinn og haf skilja
Stellu og Þóru að þegar kemur að gæðum.
Bækur Yrsu eru metnaðarfullar glæpasögur en sög-
urnar af Stellu eru groddalegar sjoppubókmenntir, hrein-
ræktað pulp. Ódýr afþreying sem getur aðeins öðlast gildi
séu þær lesnar sem einhvers konar paródía á glæpasög-
una. Þá er Stella svo átakanlega leiðinleg persóna að þeg-
ar verst lætur er píslarganga að fara með henni í gegn-
um eitt sakamál eða svo. Þóra hefur aftur á móti ekki gert
neitt annað en vinna á með hverri nýrri bók. Annaðhvort
venst daman svona vel eða hún er að taka út einhvern
smá andlegan þroska á milli bóka. Hún er þó enn sem
betur fer nett óhemja en Yrsu hefur tekist að temja skass-
ið þannig að nú fylgir maður henni möglunarlaust hvert
sem er. Jafnvel á hjara veraldar á Grænlandi. Eiginlega
er eini ljóðurinn á ráði Þóru að hafa bundið trúss sitt við
þýska snobbhænsnið og þurrpumpuna Matthew en góðu
heilli má stundum hlæja að þeim náunga.
Auðnin er fjórða bók Yrsu um Þóru sem getur aldrei
verið kyrr á sama stað lengi. Í Þriðja tákninu þvældist
hún um á kafi í eldgömlu máli, í Sér grefur gröf leysti hún
morðmál á Snæfellsnesi, í fyrra fór hún til Eyja í Ösku og
nú fer hún með hópi fólks lengst út í óbyggðir Grænlands
til að grennslast fyrir um afdrif starfsmanna verktakafyr-
irtækis sem eru horfnir sporlaust. Ekki er hægt að útiloka
morð eða glæpsamlegt athæfi að baki mannshvörfunum
enda væri Þóra varla annars að þvælast svona út í bu-
skann.
Yrsa gæti vart fundið sér drungalegra og því heppi-
legra sögusvið en ísauðn Grænlands ekki síst þar sem
maður hefur það einhvern veginn á tilfinningunni að vart
sé hægt að hugsa sér betri stað til þess að kála einhverj-
um og fela líkið. Yrsa spilar skemmtilega á einangrun-
ina, kuldann og myrkrið sem grúfir yfir staðnum og ekki
skemmir fyrir að innfæddir eru frekar fjandsamlegir og
samkvæmt gömlum sögum þeirra hvílir bölvun á staðn-
um þar sem verktakafyrirtækið vann að jarðborunum.
Og það er ekki að sökum að spyrja. Aðkoman er hroll-
vekjandi og enginn skortur er á óþægilegum og ógn-
vekjandi uppákomum. Tónninn sem Yrsa gefur strax í
upphafi er skyldari hryllingssögu en klassískum reyfara.
Þessari hryllingsmyndastemningu heldur hún svo með
stæl fram eftir sögunni og stundum líður manni eins og
maður sé staddur í miðri The Thing og bíður bara eftir að
skrímslið skjóti upp kollinum.
Samkvæmt kúnstarinnar reglum eykst spennan jafnt
og þétt og flettingarnar verða hraðari eftir því sem á líður
þannig að í raun er fátt út á þessa prýðilegu spennusögu
að segja. Stíll Yrsu er þó svolítið lopalegur og hún er ekk-
ert að spara orðaflauminn. Ekki alvarlegur ágalli en verð-
ur því miður stundum til þess að maður finnur sig knúinn
til þess að skauta yfir síðurnar til þess að detta ekki úr takt
við annars spennandi söguna.
Haldi Yrsa hins vegar áfram á sömu braut er fram-
tíðin björt og Þóra fer að verða jafnómissandi gestur í
skammdeginu og sjálfur Erlendur sem að vísu skrópaði
í ár svo kona fengi að njóta sín með fínum árangri. Kon-
ur eru greinilega alveg málið í íslenskum krimmum og
sjálfsagt mættu fleiri táfýlukallar en Erlendur taka sér frí
svo Þóra, Elínborg og aðrar valkyrjur geti notið óskiptrar
athygli þegar þær leysa morðgátur eins og hörkukellum
sæmir.
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
Ískaldur hrollur
AuðNIN
Yrsa SigurðardóttirSamkvæmt kúnst-
arinnar reglum
eykst spennan jafnt
og þétt og fletting-
arnar verða hraðari
eftir því sem á líður
þannig að í raun
er fátt út á þessa
prýðilegu spennu-
sögu að segja.
Útgefandi:
Veröld
Fyrri dómar
MyRká
eftir Arnald Indriðason
Sallafínn Arnaldur. Hann
hefur þó gert betur og mun
örugglega gera betur síðar.
ÓdáðAhRAuN
eftir Stefán Mána
Mann hungrar í meira um
leið og síðasta blaðsíðan
hefur verið lesin.
SkApARINN
eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur
Guðrún Eva er einn af
okkar bestu rithöfundum.
VONARStRætI
eftir Ármann Jakobsson
Einkennilega tímabær
skáldsaga.
SkuggAMyNdIR
úR feRðAlAgI
eftir Óskar Árna Óskarsson
„Óskar Árni sýnir á
köflum sínar bestu hliðar.“
láRuS pálSSON leIkARI
Þá þögn sem lukið hefur um
nafn Lárusar Pálssonar var
löngu kominn tími til að rjúfa.
leItIN Að bARNINu í gjáNNI
eftir Guðberg Bergsson
Bráðfyndin allegorísk
barnasaga handa fullorðnum.
AlkASAMfélAgIð
eftir Orra Harðarson
Heittrúað AA-fólk mun varla
kunna Orra miklar þakkir
fyrir þetta uppátæki.
10 Ráð tIl Að ...
Eftir Hallgrím Helgason
Prýðileg bók en Hallgrímur
hefur oft áður verið fyndnari,
beittari og safaríkari.
ég – ef MIg SkyldI kAllA
Eftir Þráin Bertelsson
Merkileg bók um svall og
svartnætti, en með heiðríkju
yfir.
eRlA, gÓðA eRlA
Eftir Erlu Bolladóttur
Nauðsynleg lesning öllum
þeim sem vilja læra af lífinu.
AMtMAðuRINN á eINbúA-
SetRINu
Eftir Kristmund Bjarnason
Verð undrandi ef betri
ævisaga kemur út á þessu ári.
dÓttIR MyNdASMIðSINS
Eftir Kim Edwards
Snertir lesandann í hjartastað
þannig að verkjar.
fuNdIð fé
Eftir Jens Lapidus
Skemmtilegur, vel skrifaður
og raunsær krimmi.
StebbI RuN - ANNASAMIR
dAgAR Og öguRStuNdIR
Eftir Óskar Þór Karlsson
Stórfróðleg bók sem tvímæla-
laust á erindi við fjölmarga
Íslendinga.
göNgIN
Eftir Roderick Gordon og Brian
Williams
Eftir að hafa lesið þessa bók
vil ég gjarnan fá meira að
heyra. Mörgum spurningum
er enda ósvarað.
Barna- og unglingabók
MyRkt
æVINtýRI
Blekhjarta er ævintýrabók.
Þessi geiri hefur orðið sívinsælli
síðasta áratuginn. Ungur krakki,
helst munaðarlaus eða á aðeins
eitt foreldri, býr yfir sérstökum
hæfileika og þarf að finna ein-
hvern töfragrip og fræðist á leið-
inni um hugrekki, vináttu og
kærleika.
Hún fjallar um unga stúlku
(stig 1) sem býr með pabba sín-
um eftir að móðir hennar hvarf
(stig 2), hún býr yfir sérstök-
um hæfileika sem snertir bækur
(stig 3) og þarf að finna bókina
Blekhjarta sem geymir marga yfirnáttúrulega leyndardóma (stig 4) og leitar
að henni, og uppgötvar margt um sjálfa sig í leiðinni (stig 5).
Meggí, líkt og faðir hennar Mó, elskar bækur á nánast óheilbrigðan hátt.
Bækur fylla hvern krók og kima í íbúðinni þeirra og ekki kemur það á óvart
að faðir hennar vinnur við að binda inn bækur. Eitt kvöldið birtist dularfull-
ur, ókunnugur maður fyrir utan húsið þeirra og með því byrjar sagan. Meggí
kemst að því að faðir hennar er með í vörslu sinni dularfulla bók sem kall-
ast Blekhjarta og að illmennið Steingeitungur ásælist hana. Og það má sko
kalla hann illmenni.
Í setningu sem ég las yfir nokkrum sinnum til að fullkomlega ná henni
mætti lýsa illsku hans í hnotskurn. Eftir að Meggí segist vera tólf ára svarar
hann: „Tólf? Tvö, þrjú ár til viðbótar og hún er orðin nothæf og fín.“ Það fór
hrollur um mig þegar ég las þetta.
Einnig er í bókinni eitt frumlegasta og hræðilegasta skrímsli sem ég hef
lesið um, Skugginn, böðull Steingeitungs. Risastórt, andlitslaust og búið til
úr ösku fórnarlamba Steingeitungs, fullt af hatri, reiði og sársauka. Jahérna
hér.
Þýðingin á köflum lætur mann glotta út í annað, svo sem þegar vitnað
er í C.S. Lewis og talað um bókina Ljónið, tígrisdýrið og skápurinn. Þetta
ætti náttúrlega að vera Ljónið, nornin og skápurinn ... en þið vissuð það
örugglega.
Bókin er allt í allt mjög skemmtileg og er kjörin um jólin fyrir þau sem
hafa gaman af svona bókum en eru ekki of viðkvæm fyrir dekkri hliðum æv-
intýra. Bókin er partur af þríleik, hinar bækurnar heita Blekálög (Inkspell)
og Blekdauði (Inkdeath) og sjálfur hlakka ég til að lesa þær.
úlfAR öRN kRIStjáNSSON, 15 áRA
blekhjARtA
Cornelia FunkeMjög skemmtileg
bók. Kjörin fyrir
þau sem eru ekki
of viðkvæm fyrir
dekkri hliðum
ævintýra.
Þýðandi: Hafliði
Arngrímsson
Útgefandi: Bjartur