Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Page 24
fimmtudagur 27. nóvember 200824 Ættfræði
75 ára í dag
30 ára
n Karin Elisabeth Paalsson Heiðmörk 67,
Hveragerði
n Melissa Cheryl Ho Loque Snorrabraut 34,
Reykjavík
n Leifur Már Leifsson Tjarnabakka 4, Njarðvík
n Jónas Ingi Jónasson Hesthömrum 14,
Reykjavík
n Pétur Steinn Pétursson Grænlandsleið 23,
Reykjavík
n Þorsteinn Gunnarsson Grænlandsleið 20,
Reykjavík
40 ára
n Dariusz Leon Tryba Tjarnargötu 3, Sandgerði
n Haraldur Johannessen Vesturgötu 41,
Reykjavík
n Gunnar Sæþórsson Kristnibraut 14, Reykjavík
n Guðrún Ingibjörg Rúnarsdóttir Miðbraut
32, Seltjarnarnes
n Margrét Ragna Arnardóttir Ásabraut 15,
Grindavík
n Björn Hermannsson Austurgerði 4,
Kópavogur
n Ana María Mileris Hafravöllum 2, Hafnar-
fjörður
50 ára
n Lynette Jennifer Jones Vífilsgötu 16,
Reykjavík
n Gestur Valdimar Freysson Helgamagrastræti
40, Akureyri
n Rúnar Þór Guðjónsson Bakkastöðum 101,
Reykjavík
n Helga Sigrún Sigurjónsdóttir Sæviðarsundi
84, Reykjavík
n Þorsteinn Sigurðsson Hjálmholti 7, Reykjavík
n Guðrún Eygló Stefánsdóttir Búhamri 48,
Vestmannaeyjar
60 ára
n Júlíus Jónsson Bollatanga 5, Mosfellsbær
n Ásta Finnbogadóttir Hverfisgötu 82,
Reykjavík
n Árni Magnússon Jörvabyggð 9, Akureyri
n Sævar Örn Kristjánsson Lágholtsvegi 6,
Reykjavík
n Kristjana Sigmundsdóttir Ártúni 13, Selfoss
n Alexander Vilmarsson Heiðargarði 2,
Reykjanesbær
70 ára
n Gunnar Ellert Svavarsson Tjarnabakka 12,
Njarðvík
n Helga Enoksdóttir Heiðarhrauni 20, Grindavík
n Ásta Þórey Hannesdótir Bjarkarlundi 5,
Akureyri
n Jóhanna Steinþórsdóttir Hagamel 41,
Reykjavík
n Margrét Ólafía Óskarsdóttir Lyngheiði 8,
Selfoss
n Ingibjörg Ásthildur Michelsen Hátúni 10a,
Reykjavík
n Baldvin Erlendsson Írabakka 20, Reykjavík
n Ingi Hilmar Ingimundarson Bakkaflöt 11,
Garðabær
75 ára
n Ingigerður Þóranna Borg Freyjugötu 42,
Reykjavík
n Rannveig Hjálmarsdóttir Varmahlíð 16,
Hveragerði
n Margrét Magnúsdóttir Sólheimum 27,
Reykjavík
n Sigurður Guðberg Helgason Sunnubraut 7,
Þorlákshöfn
80 ára
n Christhild Friðriksdóttir Æsufelli 4, Reykjavík
n Sigríður Kristjánsdóttir Lautasmára 5,
Kópavogur
n Stefán Hallgrímsson Hraunbæ 103, Reykjavík
n Sigursveinn Ingibergsson Hraunbæ 103,
Reykjavík
90 ára
n Sigurbjörg Siggeirsdóttir Melhaga 10,
Reykjavík
leifur Þorsteinsson
ljósmyndari
Leifur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í for-
eldrahúsum. Hann lauk gagnfræðaprófi við Ingi-
marsskólann í Reykjavík, las landspróf utanskóla
og lauk stúdentsprófi frá MR 1955. Þá stundaði
hann nám við Kaupmannahafnarháskóla í eðl-
is- og efnafræði og lauk hluta fyrrihlutaprófs áður
en hann söðlaði um og hóf nám í ljósmyndun við
Photografisk forenings fagskole í Kaupmanna-
höfn. Þaðan lauk hann námi vorið 1962.
Leifur og kona hans komu heim í árslok 1962
og í ársbyrjun 1963 stofnaði hann, ásamt Oddi Ól-
afssyni ljósmyndara, fyrirtækið Myndiðn. Oddur
hætti fljótlega en Leifur hefur rekið fyrirtækið síð-
an.
Leifur hefur um árabil verið frumkvöðull í aug-
lýsinga- og iðnaðarljósmyndun hér á landi, er einn
virtasti ljósmyndari sinnar kynslóðar, hefur tek-
ið þátt í fjölda ljósmyndasýninga og haldið fjölda
einkasýninga, innan lands og utan og stuðlað að
kynningu íslenskra ljósmynda erlendis.
Leifur er einn af stofnendum Ljósmyndasafns-
ins sem síðar varð Ljósmyndasafn Reykjavíkur
og hefur unnið mikið að ljósmyndafræðslu, fyrst
á vegum Ljósmyndarafélagsins og síðar við Iðn-
skólann og Listaháskólann. Þekking hans á efna-
fræðilegri hlið ljósmyndunar, s.s. lit og litvinnslu
er mikilverð og vel metin, enda hefur hann verið
lærifaðir margra íslenskra ljósmyndara á því sviði,
sem og í tölvu- og myndvinnslu.
Leifur sat í stjórn Ljósmyndarafélags Íslands
um árabil, var varaformaður þess um skeið og for-
maður þess um nokkurra ára skeið.
Leifur fékkk Menningarverðlaun DV í listhönn-
un fyrir ljósmyndasýningu í Stöðlakoti 1994.
Fjölskylda
Leifur kvæntist 16.8. 1955 Friðriku G. Geirsdóttur,
f. 18.7. 1935, myndlistarkonu og grafískum hönn-
uði. Hún er dóttir Geirs Gunnlaugssonar, bónda í
Eskihlíð Kópavogi, og Kristínar Björnsdóttur hús-
móður.
Synir Leifs og Friðriku eru Björn Geir Leifs-
son, f. 24.11. 1957, skurðlæknir í Reykjavík, kvænt-
ur Sigrúnu Hjartardóttur lækni og eru börn þeirra
Hjörtur Geir, Ólafur Hrafn og Friðrika Hanna; Þor-
steinn Páll Leifsson, f. 13.12. 1967, húsa- og hús-
gagnasmiður í Reykjavík.
Systkin Leifs eru Loftur Þorsteinsson, f. 1925,
verkfræðingur og fyrrv. forstjóri. Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen; Sólveig, f. 1927, d. 1993,
starfsmaður við Fiskifélag Íslands.
Foreldrar Leifs voru Þorsteinn Loftsson, f.
14.11. 1890, d. 1961, vélfræðingur og vélfræðiráðu-
nautur Fiskifélags Íslands, og Pálína Vigfúsdóttir, f.
3.4. 1895, d. 1973, húsmóðir.
Ætt
Þorsteinn var sonur Lofts, b. í Reykjakoti í Ölfusi
Þorsteinssonar, b. á Krossi Loftssonar, b. á Þjót-
anda Magnússonar, b. á Hamarshjáleigu í Flóa
Ormssonar. Móðir Lofts á Krossi var Ingigerð-
ur, systir Arnþrúðar, ömmu Kristins í Geysi, afa
Kristins Björnssonar fostjóra. Ingigerður var dóttir
Hannesar, b. í Stóru-Sandvík Guðmundssonar og
Vigdísar Steindórsdóttur, ættföður Auðsholtsætt-
ar Sæmundssonar. Móðir Vigdísar var Arnfríður
Nikulásdóttir, systir Guðnýjar, ættmóður Kaldað-
arnesættar, langömmu Guðnýjar, ömmu Sigur-
jóns Ólafssonar myndhöggvara.
Móðir Þorsteins var Gróa Gottskálksdóttir, b. í
Sogni Gissurarsonar, b. á Reykjum Þóroddssonar,
b. í Dalseli Gissurarsonar. Móðir Gissurar var Guð-
rún Sigurðardóttir, systir Bjarna, riddara Sívertsen.
Móðir Gróu var Sigríður Jónsdóttir.
Meðal systkina Pálínu má nefna Guðbjörgu,
ömmu Gunnars Guðbjartssonar, fyrrv. fram-
kvæmdastjóra Framleiðsluráðs landbúnaðarins;
Bjarnveigu, ömmu Sturlu Böðvarssonar alþing-
isforseta og Vigfús, föður Óskars, fyrrv. formanns
Sjómannasambands Íslands. Pálína var dóttir
Vigfúsar, b. á Kálfárvöllum í Staðarsveit Vigfús-
sonar, b. á Hraunhafnarbakka í Staðarsveit Vig-
fússonar, b. í Háagarði Hákonarsonar, b. í Syðstu-
Görðum Þorlákssonar. Móðir Vigfúsar var Sólveig,
systir Brands, föður Unu, móður Hjartar Hjart-
arsonar framkvæmdastjóra og ömmu Gunnars
Hanssonar forstjóra og Guðrúnar Hannesdótt-
ur félagsfræðings. Sólveig var dóttir Bjarna, b. í
Neðri-Lág í Eyrarsveit Brandssonar, b. í Lág Þor-
steinssonar, b. á Fossi í Neshreppi Runólfssonar,
b. á Vaðstakksheiði Oddssonar, b. í Fjarðarhorni
Runólfssonar. Móðir Odds var Kristín Jónsdóttir,
sýslumanns á Sólheimum, bróður Árna Magnús-
sonar prófessors.
Til
hamingju
með
afmælið!
Edda fæddist á Siglufirði, ólst þar upp og gekk
þar í barnaskóla og gagnfræðaskóla. Síðar
stundaði hún nám við Húsmæðraskólann á
Laugalandi í Eyjafirði.
Edda vann við síldarsöltun og -frystingu frá
því á æskuárunum. Hún hóf störf hjá Kaupfélagi
Siglfirðinga er hún var sextán ára og vann síðan
á búgarði í Danmörku í rúmt hálft ár.
Edda og fyrri eiginmaður hennar bjuggu
fyrst í Reykjavík, síðan á Siglufirði, voru búsett í
Varmahlíð í Skagafirði og loks í Hafnarfirði. Hún
hóf störf hjá Rafveitu Hafnarfjarðar í ársbyrjun
1975 og starfaði þar um árabil, síðan hjá Bæjar-
sjóði Hafnarfjarðar að undanskildu einu ári er
hún starfaði hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar. Hún
starfaði síðan aftur hjá Rafveitu Hafnarfjarðar
um skeið og loks hjá Hitaveitu Suðurnesja til
2004.
Fjölskylda
Edda giftist 5.3. 1960 Freysteini Þorbergssyni,
f. 12.5. 1931, d. 23.10. 1974, útgerðarmanni og
skákmeistara. Hann var sonur Þorbergs Péturs
Sigurjónssonar kaupmanns og Jónínu Gunn-
arsdóttur saumakonu sem bæði eru látin.
Edda giftist 20.6. 1976 Braga Þorbergssyni,
f. 7.7. 1935, aðstoðarskólastjóra, bróður Frey-
steins.
Börn Eddu eru Þráinn Ólafur Jensson, f. 24.8.
1958, langferðabílstjóri, búsettur í Svíþjóð, var
kvæntur Sigríði Hauksdóttur sem er látin og á
hann tvö börn; Melkorka Edda Freysteinsdótt-
ir, f. 16.8. 1960, nemi við HÍ, búsett í Reykjavík
og á hún þrjú börn; Freydís Jóna Freysteinsdótt-
ir, f. 9.12. 1966, félagsmálastjóri í Norðurþingi,
gift Sigurgrími Skúlasyni, sérfræðingi hjá Rann-
sóknarstofnun uppeldis- og menntamála, og
eiga þau þrjú börn; Dagný Þóra Bragadóttir, f.
7.9. 1977, skrifstofumaður í Reykjavík en mað-
ur hennar er Oddur Tryggvason rafvirki og eiga
þau eina dóttur.
Systur Eddu eru Anna Sigrún Þráinsdóttir, f.
27.4. 1937, fyrrv. kennari og bóndi í Noregi; Ólöf
Guðrún Þráinsdóttir, f. 30.8. 1945, kerfisfræðing-
ur og fyrrv. fulltrúi hjá Reiknistofu bankanna.
Foreldrar Eddu voru Þráinn Sigurðsson, f.
11.11. 1912, d. 18.3. 2004, fyrrv. útgerðarmað-
ur og fiskverkandi, og Ólöf Björg Júlíusdóttir, f.
22.12. 1911, d. 2001, húsmóðir.
edda Júlía Þráinsdóttir
fyrrv. aðalgjaldkeri í Hafnarfirði
70 ára í dag
Leifur Þorsteinsson ásamt nokkrum lærisveinum
sínum í ljósmyndun.
- vertu með í umræðunni