Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Blaðsíða 25
fimmtudagur 27. nóvember 2008 25Sport
Haukar sigruðu í toppslagnum Leikur Hauka og Keflavíkur í iceland ex-
press-deild kvenna stóð undir væntingum. Leikið var á Ásvöllum og gestirnir frá Keflavík
byrjuðu betur og höfðu yfir, 35-46, í hálfleik. Í seinni hálfleik dró saman með liðunum
og sigu Haukastúlkur fram úr í blálokin og tryggðu sér nauman sigur, 80-77. Krist-
rún Sigurjónsdóttir var stigahæst Hauka með 28 stig en birna ingibjörg valgarðs-
dóttir var stigahæst gestanna með 31 stig. Haukar eru sem fyrr á toppnum með
14 stig en Keflavík datt niður í 3. sætið.
Íslensku stúlkurnar mættu Lettlandi
í gær eftir að hafa setið hjá í fyrstu
umferð. Reikna mátti með tiltölu-
lega auðveldum sigri Íslands þar
sem Lettland er áberandi lakasta lið-
ið í riðlinum. Yfirburðir íslenska liðs-
ins voru áberandi strax frá byrjum
og fljótlega voru stúlkurnar komnar
með þægilegt forskot og voru yfir 18-
11 í hálfleik.
Í seinni hálfleik voru yfirburðirnir
enn meiri en þá fór að bera á einbeit-
ingarskorti íslensku leikmannanna
sem virtust slaka á, í vörninni sér-
staklega. Lettarnir skoruðu 16 mörk í
seinni hálfleik á móti 19 íslenska liðs-
ins. Lokatölurnar 37-27, en betur má
ef duga skal gegn sterkari þjóðum.
Hanna G. Stefánsdóttir var mað-
ur leiksins og langmarkahæst í ís-
lenska liðinu með 17 mörk, Arna Sif
Pálsdóttir var með 5 og Dagný Skúla-
dóttir skoraði 4 mörk. Íslensku mark-
verðirnir vörðu 27 skot. Berglind Íris
Hansdóttir tók 19 bolta og Guðrún
Maríasdóttir varði 8 skot.
Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari
kvenna, var ekkert of sáttur þrátt fyrir
sigurinn í samtali við DV eftir leikinn
.„Þetta var hálfdapurt hjá okkur bæði
varnarlega og sóknarlega. Vörnin var
sýnu verri en sóknarleikurinn ekki
góður heldur. Við duttum svolítið
niður á þeirra plan. Þetta er klárlega
lakasta liðið. Þær voru um of með-
vitaðar um getumuninn á liðunum
og þá er þetta ekki eins skemmtilegt.
Það er ekkert of spennandi að fá á sig
27 mörk frá þessu liði en aðalatriðið
var auðvitað að vinna leikinn.“
Varðandi næsta leik gegn Sviss og
hvað þurfi að laga sagði Júlíus: „Við
höfum sólarhring til að laga hjá okk-
ur aðallega varnarleikinn fyrir leik-
inn gegn Sviss. Við þurfum að spila
betur til að landa þeim leik. Það þarf
líka að koma inn meiri vilji hjá liðinu
og ég vonast til að fá þær sterkari á
morgun,“ sagði Júlíus að lokum.
swaage@dv.is
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann Lettland, 37-27, í undankeppni HM:
tíu marka sigur íslands
umSjón: tómaS þór þórðarSon, tomas@dv.is / Sveinn Waage, swaage@dv.is
í D-riðli mætti Liverpool franska lið-
inu Marseille á Anfield. Liðin höfðu
mæst fimm sinnum áður, Liverpool
unnið tvo, Marseille tvo og eitt jafn-
tefli. Liverpool ætlaði að kára verk-
efnið og sótti þar til fyrirliðinn Steven
Gerrard skoraði glæsilegt skallamark
á 23. mínútu. Eftir markið jafnað-
ist leikurinn en heimamenn sterk-
ari. Leikurinn opnaðist talsvert í
seinni hálfleik og bæði lið reyndu sig
við mark andstæðinganna og voru
gestirnir síst hættuminni. Um miðj-
an hálfleik dundu sóknir gestanna
á Liverpool og Pepe Reina var vel á
verði. En gestirnir náðu ekki að jafna
þrátt fyrir að vera mun betri og Liver-
pool verður að teljast heppið með
sigurinn. Í hinum leiknum í D-riðli,
sem leikinn var fyrir luktum dyr-
um, virtist Atletico Madrid ætla að
ganga frá sínum málum tímanlega
gegn PSV og voru komnir í 2-0 eft-
ir hálftímaleik með mörkum Sima-
os og Maxis. En hollensku gestirnir
neituðu að gefast upp og í upphafi
seinni hálfleiks minnkaði Koeverm-
ans muninn í 2-1.
Tólf mörk í C-riðli
Eiður Smári var í liði Barcelona sem
búið var að tryggja sig upp úr riðl-
unum þegar liðið mætti í hörku-
formi til Lissabon í Portúgal. Henry
og Picue skoruðu sitt hvort markið
á 14. og 17. mínútu. Og veislan hélt
áfram í seinni hálfleik þegar Messi
bætti við þriðja markinu. Ætla mætti
að þar með væri sagan öll en heima-
menn í Sporting skoruðu þrjú mörk
á þremur mínútum en eitt af þeim í
eigið mark og staðan skyndilega 2-4.
Bojan bætti svo við 5. marki Barce-
lona úr víti. Í hinum leiknum tryggðu
Shakhtar Donetsk sér þriðja sæti rið-
ilsins og sæti í UEFA Cup með því að
slátra Basel 5-0, Jadson með þrennu
og Kristinn Jakobsson eldklár á flaut-
unni.
Allt opið í A-riðli
Spennan var öll í A-riðli og í Frakk-
landi mátti Chelsea þakka markverði
sínum Peter Cech að lenda ekki marki
eða mörkum undir gegn Bordeoux
í fyrri hálfleik, sem var eign franska
liðsins. Chelsea fékk varla færi en
þrjú gul spjöld og var stálheppið
að staðan var 0-0 í háfleik. Í seinni
hálfleik vöknuðu liðsmenn Chel-
sea til lífsins og hver nema Nicolas
Anelka kom þeim yfir á 60. mínútu?
Heimamenn lögðu ekki árar í bát
og jöfnuðu 1-1 með marki Diarras
á 83. mínútu. Chelsea þarf því sigur
gegn Cluj í lokaleik riðlakeppninnar.
Roma þurfti ekki síður sigur en hin
liðin í riðlinum og byrjaði með látum
og Brighi og Totti skoruðu tvö mörk
áður en heimamenn í Cluj náðu að
minnka muninn á 30. mínútu. Brighi
var svo aftur á ferðinni á 64. mínútu
og Roma komið í 1-3 og þar við sat.
Inter tapaði heima
Inter Mílanó þótti líklegt til að tryggja
sig auðveldlega áfram þegar liðið tók
á móti Panathinaikos. Það voru aft-
ur á móti gestirnir sem komust yfir
með marki Sarriegis á 69. mínútu og
þannig endaði leikurinn. Inter er því
ekki öruggt áfram og þarf sigur í síð-
ustu umferð gegn Werden Bremen.
Í Grikklandi tók Anorthosis á móti
lánlausu Werden Bremen sem ekki
hafði enn unnið leik. Ekki leit út fyr-
ir að það myndi breytast þegar Ni-
colaou kom heimamönnum yfir á
62. mínútu. Og þegar Savio bætti við
öðru marki 6 mínútum síðar leit út
fyrir að lánleysi Bremen héldi áfram.
En Diego minnkaði muninn fyr-
ir Þjóðverja úr vítaspyrnu skömmu
seinna og rétt fyrir leikslok tryggði
Hugo Almeida gestunum jafntefli.
Gerrard kom
LiverpooL áfra
sveInn wAAge
blaðamaður skrifar: sveinn@dv.is
Fyrirliðinn magnaði Steven
gerrard tryggði Liverpool
sigur á marseille.
vörnin veik Úr leik Íslands og
rúmeníu. Laga þarf vörnina fyrir
leikinn gegn Sviss.
Seinni átta leikir fimmtu umferðar
riðlakeppni Meistaradeildarinnar
fóru fram í gær. Allt var galopið í A-
og B-riðli þar sem öll liðin áttu mögu-
leika á að komast áfram í útsláttar-
keppnina. Liverpool kláraði sinn leik
en jafntefli dugði ekki Chelsea.
meistaradeildin
a riðill
Bordeaux - CHelsea 1-1
0-1 Nicolas Anelka (‘60), 1-1 Alou Diarra (‘83)
rautt spjaLd: Frank Lampard (‘86)
Cluj - roma 1-3
0-1 Matteo Brighi (‘11), 0-2 Francesco Totti
(‘23), 1-2 Yssouf Kone (‘30), 1-3 Matteo Brighi
(‘64)
staðan
lið l u j t m st
1. roma 5 3 0 2 10:6 9
2. Chelsea 5 2 2 1 7:4 8
3. bordeaux 5 2 1 2 5:9 7
4. Cluj 5 1 1 3 4:7 4
B riðill
Famagusta - werder Bremen 2-2
1-0 Nikos Nikolaou (‘62), 2-0 Savio (‘68), 2-1
Diego (‘72, víti), 2-2 S. Boenisch
inter milan - panatHinaikos 0-1
0-1 Josu Sarriegi (‘69)
staðan
lið l u j t m st
1. inter milan 5 2 2 1 7:5 8
2. Panath. 5 2 1 2 7:7 7
3. famagusta 5 1 3 1 8:7 6
4. bremen 5 0 4 1 5:8 4
C riðill
sporting lisBon - BarCelona 2-5
0-1 Thierry Henry (‘14), 0-2 Anderson Polga
(‘17,sjálfsmark), 0-3 Lionel Messi (‘49), 1-3
Miguel Veloso (‘65), 2-3 Liedson (‘66), 2-4
Marco Caneira (‘67, sjálfsmark), 2-5 Bojan
Krkic (‘72)
sHakHtar donetsk - Basel 5-0
1-0 Jádson Rodriguez (‘32), 2-0 Willian (‘51),
3-0 Jádson Rodriguez (‘65), 4-0 Jádson Rod-
riguez (‘73), 5-0 Evgen Seleznyov (‘75)
staðan
lið l u j t m st
1. barcelona 5 4 1 0 16:5 13
2. Sporting L. 5 3 0 2 7:8 9
3. Shakhtar d. 5 2 0 3 8:5 6
4. basel 5 0 1 4 2:15 1
d riðill
liverpool - marseille 1-0
1-0 Steven Gerrard (‘23)
atHletiCo madrid - psv 2-1
1-0 Simão (‘14), 2-0 Maxi Rodríguez (‘28), 2-1
Danny Koevermans (‘47)
staðan
lið l u j t m st
1. atl. madrid 5 3 2 0 9:4 11
2. Liverpool 5 3 2 0 8:4 11
3. marseille 5 1 0 4 5:7 3
4. PSv 5 1 0 4 4:11 3
iCeland express
deild kvenna
valur - Fjölnir 79:59
Haukar - keFlavík 80:77
snæFell - Hamar 52:80
staðan
lið l u j t m st
1. Haukar 8 7 0 1 574:509 14
2. Hamar 8 6 0 2 633:507 12
3. Keflavík 8 5 0 3 642:538 10
4. Kr 8 5 0 3 534:497 10
5. valur 8 4 0 4 489:479 8
6. grindavík 8 3 0 5 543:554 6
7. fjölnir 8 1 0 7 444:641 2
8. Snæfell 8 1 0 7 482:616 2
NÚ GETUR
ÞÚ LESIÐ DV
Á DV.IS
DV er aðgengilegt
á dv.is og kostar
netáskriftin 1.490 kr.
á mánuði
NÚ GETUR
ÞÚ LESIÐ DV
Á DV.IS
DV er aðgengilegt
á dv.is og kostar
netáskriftin 1.490 kr.
á mánuði