Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Síða 28
fimmtudagur 27. nóvember 200828 Fókus
Fyrirsögnin á þessum tölvuleikja-
dómi hlýtur að gefa það í skyn að
hér sé á ferðinni algjör snilld og sú
er raunin. Mortal Kombat-serían er
sá slagsmálaleikur sem kemst hvað
næst því að vera trúarbrögð og því
gátu aðdáendur seríunnar varla hald-
ið vatni þegar það fréttist að snilling-
arnir hjá DC Comics kæmu að gerð
nýjasta leiksins. Vinahópurinn minn
var engin undantekning. Fyrir ykk-
ur hin sem vitið ekki um hvað MK-
leikirnir snúast eru þetta slagsmál
með tilheyrandi takkaslætti. Ef það
er gert á einhvern ákveðinn hátt beit-
ir persónan brögðum en allar hafa
sína sérstöðu. Súperman getur til
að mynda brennt andstæðinga sína
með rauðum augum sínum og Sub-
Zero getur fryst sína andstæðinga og
síðan kýlt þá í litla klakamola.
Í leiknum eru tuttugu og tvær
frægar ofurhetjur og skúrkar úr bæði
MK-heiminum og DC Comics. Þar af
eru tvær ofurhetjur læstar þangað til
þú klárar ákveðin borð í „sóló“-hluta
leiksins.
Meðal persóna eru Baraka, Bat-
man, Captain Marvel, The Flash, The
Joker, Scorpion, Raiden, Liu Kang,
Kano og Jax - sem sagt rjóminn af
þeim skemmtilegustu. Samt finnst
mér vanta menn á borð við Kung
Lao, Johnny Cage og Cyrax en það
tengist söguþræði gömlu leikjanna.
Johnny Cage átti til dæmis að hafa
dáið í MK3.
Töluverðar nýjungar eru í leikn-
um. Nú geta leikmenn slegist í loft-
inu en það gerist þegar annar aðilinn
kastar hinum yfir brúnina á leikvell-
inum. Þá falla menn til jarðar en sá
sem nær flestum höggum (fljótastur
að ýta á þá takka sem birtast á skján-
um) endar ofan á hinum þegar á
jörðina er komið og veldur því mesta
skaðanum.
Þá er einnig hægt að fara í „close
combat“ en þá er slegist í nærmynd.
Á vissum bardagavöllum er einn-
ig hægt að hlaupa með andstæðing
sinn í gegnum veggjaröð en þá þarf
að ýta á alla takkana og er skaðinn
mældur í því.
Rage Mode er líka nýtt en þá verð-
ur persónan gul að lit. Persóna í Rage
Mode veldur miklu meiri skaða og er
nánast ónæm fyrir öðrum höggum á
meðan. Í leiknum er mælistika en við
hvert högg sem þú færð fyllist á mæl-
inn. Á endanum fyllist hann og þá
„búmm“ - þú ert orðinn gulur og get-
ur svarað fyrir þig. Grafíkin er mjög
skemmtileg, þrívíddarglans án þess
þó að tapa þessu sérstaka útliti sem
MK-leikirnir hafa.
Í heildina litið er Mortal Kombat
hin fínasta skemmtun. Fyrir aðdá-
endur seríunnar, eins og mig, er leik-
urinn algjört „must buy“.
Atli Már Gylfason
á f i m m t u d e g i
Hvað heitir lagið?
„fingur mínir halda áfram að
smella í takt við hjartslátt minn.“
Bryndís
scHram, KafKa
og Hallgrímur
Lesið verður úr fimm nýjum bókum
á Te & kaffi á annarri hæð bókabúð-
ar Máls og menningar við Laugaveg
klukkan 20 í kvöld. Bryndís Schram
les úr ævisögu sinni Í sól og skugga,
fulltrúi Forlagsins les úr bók Kristj-
önu Friðbjörnsdóttur, Fjóla Fífils
– Lausnargjaldinu, Erla Bolladóttir
lesa úr ævisögu sinni Erla, góða Erla,
Ástráður Eysteinsson les úr þýðingu
sinni á Bréfi til föðurins eftir Franz
Kafka og að lokum les Hallgrímur
Helgason úr nýrri skáldsögu sinni,
10 ráð til að hætta að drepa fólk og
byrja að vaska upp. Bækurnar verða
allar með tuttugu prósenta afslætti
meðan á upplestri stendur.
tvísKinna
davíðs
Út er komin bókin Tvískinna
eftir Davíð A. Stefánsson með
myndum eftir Hugleik Dagsson.
Bókin er um hlutverk tungumáls
og táknfræði í samfélaginu. Ótal
texta- og myndskilaboð dynja á
okkur daglega og oft er erfitt að
greina bullið frá ruglinu, að því er
segir í tilkynningu, enda meltum
við skilaboðin bæði meðvitað og
ómeðvitað. Hér er meðal annars
leitað fanga í auglýsingum, kvik-
myndum, ljóðum og misfyndn-
um glærusýningum til að gramsa
í undirdjúpum tungumálsins.
Bókin hefur þegar verið tekin til
kennslu í íslensku og lífsleikni í
nokkrum grunnskólum á höfuð-
borgarsvæðinu. Nykur gefur út.
leitin Hefst á ný
Aðventusýning Þjóðleikhússins,
Leitin að jólunum, fer nú á fjalirnar
fjórða árið í röð. Fyrsta sýning verð-
ur núna á laugardaginn en sýnt er
allar helgar á aðventunni. Höfundur
verksins er Þorvaldur Þorsteinsson
en tónlistina semur Árni Egilsson.
Tveir skrýtnir og skemmtilegir ná-
ungar, Raunar og Reyndar, taka á
móti litlum leikhúsgestum í anddyri
Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru
tveir hljóðfæraleikarar og saman
leiða þeir börnin með leik og söng
vítt og breitt um leikhúsið. Leikstjóri
sýningarinnar er Þórhallur Sigurðs-
son og leikarar eru Arnbjörg Hlíf
Valsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir,
Ólafur Egill Egilsson, Þóra Karítas
Árnadóttir og Þórunn Lárusdóttir.
s B-Zero
súperman
Það er ótrúlegt hvað hönnuðum
og hugsuðum í heimi tölvuleikj-
anna hefur tekist að framkvæma.
Fallout 3 er enn eitt dæmið um að
afþreying hafi náð einhverskonar
fullkomnun með þriðju kynslóð
leikjatölva. Um er að ræða hlut-
verkaleik, með skotleikjaívafi, ekki
ósvipaður The Elder Scrolls: Obli-
vion. Þessi gerist árið 2277, þrjátíu
árum eftir að leikur tvö kláraðist og
tvö hundruð árum eftir að kjarn-
orkustríð kaffærði heiminum.
Sagan í leiknum er margslung-
in og í raun óþarfi að útlista henni
hér. Það eina sem fólk þarf að vita
um dæmið er að söguhetjan þarf
að leggja á djúp kjarnorkuauðnar-
innar í leit að föður sínum. Auðn-
in sjálf, rústir Washington D.C.,
er næstum endalaus. Borgir, bæir,
rústir, persónur. Allar eru þær mis-
munandi og vilja gefa þér verkefni,
upplýsingar eða eitthvað því um
líkt. Frelsið í leiknum og valmögu-
leikarnir opna svo nýjar víddir upp
á gátt. Allt hefur áhrif, hvort sem
það er hegðun, svör við spurning-
um, eða kostir sem maður hefur
valið sér.
Það virðast vera þúsund leiðir
til að komast að endalokum leiks-
ins þó varla sé það rétt. Grafíkin í
leiknum er bæði vond og góð. Hins
vegar koma fyrir leiðinda hikst og
hik, sem eiga ekki að viðgangast í
leikjum af þessari stærð. Þó mætti
færa rök fyrir því að svona hikst sé
nauðsynlegt, einfaldlega til þess að
maður gleymi því örugglega ekki að
um sé að ræða tölvuleik. Skotkerfið
í leiknum er rosalega flott. Bardagar
geta verið erfiðir, þar sem skotvopn
eyðileggjast eftir lítið hnjask og ei-
líf vöntun virðist vera á skotfærum.
Óvinir, bandamenn, ógurleg flóra
af allkyns vinum og vættum.
Fallout 3 er æðislegur leikur, að
minnsta kosti fyrir þá sem vilja fá
eitthvað meira en hefðbundna út-
rás við spilun. En fyrir þá sem lesa
rýni eins og þessa til að auðvelda
sér jólainnkaupin þá er Fallout 3
alls ekki ætlaður yngri spilurum,
innihald hans er einfaldlega ætl-
að þeim eldri. Það væri óskandi ef
hægt væri að sýna þeirri leiðu og
brúnaþungu kynslóð sem ól mig
í heiminn galdurinn og töfrana á
bakvið tölvuleiki eins og Fallout 3.
Hér er eitthvað massíft á ferðinni,
sublime-upplifun, eins og þegar
maðurinn stendur frammi fyrir óg-
vænlegri fegurð náttúrunnar. Nema
í þessu tilviki er það tæknin sem ber
mann ofurliði.
Dóri DNA
ógnvænleg fegurð tölvuleikja
Svar: Jungle Drum með Emilíönu Torrini
vs
tölvuleikir
Mortal KoMbat
Tegund: Slagsmálaleikur
Spilast á: PS3 - X360
tölvuleikir
FalloUt3
Tegund: Hlutverka-/ævintýra-/skotleikur
Spilast á: PS3 - X360 - PC
Massíft „Hér er eitthvað
massíft á ferðinni,
sublime-upplifun“
Trúarbrögð mortal Kombat-serían er sá
slagsmálaleikur sem kemst hvað næst því að
vera trúarbrögð.