Lögmannablaðið - 01.12.2003, Síða 18

Lögmannablaðið - 01.12.2003, Síða 18
18 4 / 2 0 0 3 Af Merði lögmanni Mörður gekk út úr dómshúsinu. Var það málið, var það hann eða var það kannski dómarinn? Það er erfitt að vera í þessari stöðu sem lögmaðurinn er í, það að eiga ekki síðasta orðið hugsaði Mörður. Sérstaklega þegar maður er búinn að tapa máli og Merði fannst eins að það kæmi óþarflega oft fyrir hann. Hvað mundi nú gerast ef Mörður kæmi sínum sjónarmiðum, ja, altso umbjóðandans, á framfæri utan dómssala? Í þessu sambandi leiddi Mörður hugann að fjölmiðlum. Margir kollegarnir lögðu mikið uppúr því að láta ljós sitt skína í þeim hugsaði Mörður en hann hafði aldrei rekið mál þar og alltaf talið það sér til tekna. Merði er yfirleitt skemmt þegar hann fylgist með oft farsakenndum og jafnvel á tíðum grátbroslegum uppákomum í þjóðfélaginu sem fjölmiðlamenn gera skil. Jafnvel þótt honum hafi alltaf fundist þeir gera töluvert meira úr eigin ágæti og mikilvægi en efni og ástæður standa til. Innblásnir og upptjúnaðir af eigin ágæti, af sjálfstæði og mikilvægi stéttar sinnar, sem þeir nefna oft fjórða valdið á árshátíðum, höfðu þeir nú samt skyndilega áhyggjur af því hvaðan hýran kæmi næstu mánaðarmót og hver áhrif þess hugsanlega yrðu á sitt sjálfskipaða mikilvægi og ágæti ef fjölmiðlamógúlar væru að rísa upp hér á landi. „Segðu satt og rétt frá drengur“ er setning, eignuð skörulegum lögmanni hér í bæ, setning sem Mörður þreytist seint á að nota. Það er líka setning sem kona Marðar er löngu orðin þreytt á að heyra. Mörður hefur í áraraðir haft þann vana að hvæsa á sjónvarpið þegar hann horfir á fréttir og viðtalsþætti, hvæs sem sprottið er af framkomu og fasi og aðallega málflutningi, eða oftast málflutningsskorti þess fólks sem tíðast er í viðtækinu, fréttafólks, en öðru hvoru var það nú vegna málflutnings stjórnmálamanna viðurkenndi Mörður fyrir sér. Mörður velti því fyrir sér hvort fjölmiðlafælni og gagnrýni hans mætti rekja til þess að hann er hógvær maður mjög. Þó svo að hann hafi gengið í eina almennilega menntaskóla landsins og síðar stundað nám við þá deild háskólans, þess eina sem um þarf að geta, sem af öðrum ber, og eftir útskrift nú lengstum tilheyrt úrvals liði þeirrar stéttar sem þaðan kemur, þrátt fyrir þetta allt hefur Mörður aldrei slegið sér á brjóst, mært sig og sína stétt eða talið hana öðrum fremri að siðferðisþreki eða mikilvægi heldur komið fram af þeirri hógværð og lítillæti sem einkennir stétt lögmanna alla...... eða hvað? Tveir barnungir frændur Marðar eru löglærðir fulltrúar, á einni af þessum stóru og gljáfægðu lögfræðistofum sem bera eitthvað latínunafn. Merði líkar vel við þessa frændur sína sem merkjanlega hafa frá því þeir komust til vits og ára litið upp til Marðar og hans starfa. Mörður vill þeim frændum allt hið besta og gladdist því þegar fína latínustofan ákvað að fjármagna hið nú lögbundna inntökuferli fulltrúanna inn í stétt lögmanna. Það sem í því ferli fólst líkaði frændunum víst misvel að sögn, þóttust jafnvel þekkja og kunna stærstan hluta þess sem þar fór fram. Mörður hefur yfirleitt talið að það sem er þess virði að segja einu sinni megi eins vel segja tvisvar og jafnvel oftar. Mörður hefur einnig rekið sig á það að suma hluti dugar ekki að segja einu sinni heldur verður að endurtaka þá. Það hvarflar að Merði þegar honum verður hugsað til klósettsetunnar á baðherbergi þeirra hjóna að jafnvel sífelldar endurtekningar dugi ekki til. Eitt merkti þó Mörður í fasi frænda sinna, fulltrúanna, þegar þeir námu fræði lögmanna og síðar innvígðust í stétt þeirra, en það var hversu vel þeir virtust meðtaka og tileinka sér í orði og á borði það sem þar kom fram um hið mikla og merkilega hlutverk lögmannastéttarinnar í samfélagi mannanna. Fas þessara áður hógværu og lítillátu ungmenna, sem áður höfðu jafnan setið full aðdáunar og eftirvæntingar er Mörður útskýrði og rakti í smáatriðum frækilega framkomu sína í snerru sem hann átti við lögmann þola í síðasta fjárnámi eða snilldarlegan snúning á fulltrúa fyrsta veðréttar á síðasta uppboði, tók umtalsverðum breytingum við þá fræðslu sem fengin hafði verið. Nú er svo komið að Mörður situr eftir ásamt yngsta fjölskyldumeðlimnum, fjögurra ára, þegar sagan er öll. Mörður er kominn til sýslumanns vegna fjárnámsfyrirtöku. Nú jæja, hugsar Mörður, þar fóru tveir síðustu áheyrendurnir og nú fer í hönd hin árlega fjölskylduboðavertíð....þá er bara að eta og drekka meira......nú svo er það þessi fjögurra ára, það er víst aldrei of snemmt, því það læra börnin sem fyrir þeim er haft.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.