Lögmannablaðið - 01.11.2008, Síða 17
LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2008 > 17
kennist af skóglendi, ökrum,
vötnum og votlendi. Landbúnaður
er nær eingöngu stundaður í
héraðinu sem er mjög dreifbýlt.
Stoppað var í Víðinesi við Winnipeg-
vatn þar sem fyrstu landnemarnir
tóku land 21. október 1875 og
skoðaður minnisvarði um fyrsta
íslenska barnið sem fæddist á Nýja-
Íslandi daginn eftir. Bæjarnöfn og
örnefni litu kunnuglega út og til
dæmis ókum við fram hjá Grund,
Hnausum, Kirkjubæ og Reynivöllum
svo fátt eitt sé talið. Safnið „New
Iceland Heritage Museum“ í Gimli
var skoðað en þar er sýning um
sögu og menningu íslensku land-
nemanna. Sýningin er stórfróðleg
og dregur vel fram erfitt líf land-
nemanna fyrstu árin.
Athyglisvert er að íslensku land-
nemarnir fengu umtalsvert svigrúm
til að setja sér eigin löggjöf sem þeir
nefndu „Stjórnarskrá“ en kanadíska
landstjórnin staðfesti síðar reglurnar.
Raunar er réttarsaga héraðsins
merkileg og áhugavert að kanna
áhrif íslenskrar réttarskipunar þeirra
tíma á regluverkið sem tekið var
upp. Bæjarstjórinn í Gimli, Tammy
Axelsson, er af íslenskum ættum og
tók á móti hópnum á safninu en
hún er jafnframt safnstjóri.
Heklueyja
Næst var haldið til Heklueyju sem
er í vestanverðu Winnipegvatni.
Eyjan var tengd fastalandinu með
uppfyllingu um 1970 en þar er nú
þjóðgarður og mikil ferðaþjónusta.
Þar tók á móti hópnum Brynjólfur
Sigurgeirsson eða Binni. Skoðuð var
kirkja frá 1922 og kirkjugarður þar
sem flest nöfnin á legsteinunum eru
íslensk. Enn fremur hús í eigu
fjölskyldu Binna sem hefur verið
gert upp eins og það var á þriðja
áratug síðustu aldar. Þá var skoðað
minjasafn með vélum og tækjum
sem notuð voru á Heklueyju á fyrri
hluta tuttugustu aldar og um fisk-
veiðarnar í Winnipegvatni. Á
heimleið var komið við hjá Einari
Vigfússyni og Rósalind konu hans
en Einar sker út fugla í tré og málar
sem eru mikil listaverk. Rósalind
stjórnar barnakór sem syngur
íslensk lög og var gaman og eftir-
minnilegt að koma á heimili þeirra.
Winnipeg
Sunnudaginn 5. október voru
Íslend inga slóðir í Winnipeg þrædd-
ar. Auk Davíðs var Neil Bardal
útfararstjóri og fyrrum ræðismaður
Íslands leiðsögumaður. Leiðsögn
þeirra var einstaklega skemmtileg
og fróðleg, íslenskar rímur kveðnar
og ættjarðarlög leikin. Neil sagði
m.a. frá því hversu vel íslensku
F.v. Sigurður Sigurjónsson, Þorsteinn Hilmarsson, gestur jónsson, Ragnar
H. Hall og timothy Samson.
Íslendingarnir komu að landi í Víðinesi 21.október 1875. ingimar ingason og
guðrún margrét Hannesdóttir virða fyrir sér minnismerki um fyrsta íslenska
barnið sem fæddist í nýlendunni daginn eftir komuna þangað. Einnig sést í
david gislason og maríu guðnadóttur.