Lögmannablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 16
16 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 2 / 2010
Í málstofu IV um framtíðarskipan
fjármálafyrirtækja var einblínt á
framtíðina í stað þess að dvelja um
of við fortíðina.
Framsögumenn á málstofunni voru
Gylfi Magnússon, efnahags- og við-
skipta ráðherra, Kjartan Gunnarsson,
skrifstofustjóri í efnahags- og viðskipta-
ráðuneyti, Lilja Ólafsdóttir hdl.
formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins
og Tanya Zharov, regluvörður og
framkvæmdastjóri lögfræðisviðs hjá
Auði Capital. Gylfi fjallaði á almennum
nótum um hvernig stjórnvöld sæju fyrir
sér framtíð fjármálafyrirtækja hér á
landi. Kvaðst hann meðal annars telja
að íslenska bankakerfið yrði í fram-
tíðinni minna og einfaldara í sniðum en
áður. Kjartan gerði grein fyrir þeim
breytingum sem fyrirhugaðar eru á
gildandi lögum um fjármálafyrirtæki
samkvæmt frumvarpi sem lagt hafði
verið fyrir Alþingi, þ.m.t. þau rök sem
bjuggu að baki nýjum efnisreglum. Lilja
ræddi næst um fjármálaeftirlit í
framtíðinni og hvaða lærdóm mætti
draga af fortíðinni. Síðast en ekki síst
fjallaði Tanya um fjármálaeftirlit frá
sjónarhóli eftirlitsskyldra aðila, þ.m.t.
samvinnu og samskipti eftirlitsaðila og
eftirlitsskyldra aðila. Framsögunum var
þannig ætlað að spanna helstu við-
fangs efni er tengjast framtíðarskipan
fjármálafyrirtækja, þ.e. hina pólitísku
stefnumörkun, regluverkið og fram-
kvæmdina.
Að framsögunum loknum voru
almennar umræður þar sem gestum,
sem voru fjölmargir, gafst kostur á að
beina spurningum til framsögumanna
og/eða velta upp áhugaverðum flötum
á viðfangsefninu. Var ánægjulegt að þó
nokkur fjöldi fundarmanna tók til máls
og voru umræðurnar með líflegra móti.
Meðal annars var gagnrýnin umfjöllun
um lögskýringar þegar lagaákvæði á
sviði fjármálalöggjafar eru annars vegar.
Var það mat sumra að um of væri
einblínt á þrönga textaskýringu í stað
markmiðs- og tilgangsskýringar. Slíkt
væri til þess fallið að standa virku og
árangursríku fjármálaeftirliti fyrir
þrifum. Nauðsynlegt væri að gera
bragabót á en að öðrum kosti væri hætt
við því að fjármálafyrirtæki gætu um of
skákað í skjóli formsins á kostnað
efnisins. Verður vafalítið áhugavert að
fylgjast með þessu í framtíðinni og
hvort viðhorfsbreytinga muni gæta.
Stefán A. Svensson, hdl.
Framtíðarskipan fjármálafyrirtækja
F.v. Stefán A. Svensson, Gylfi Magnússon, Lilja Ólafsdóttir og Kjartan Gunnarsson.
Lagadagur 2010
Lj
ós
m
yn
d
: H
H