Lögmannablaðið - 01.06.2010, Qupperneq 25

Lögmannablaðið - 01.06.2010, Qupperneq 25
LÖGMANNABLAÐIÐ – 2 / 2010 > 25 Okkur er tíðrætt á tyllidögum um réttarríkið og mikilvægi þess. Við þekkjum orðtökin eins og „saklaus uns sekt er sönnuð“ og „réttláta málsmeð- ferð fyrir hlutlausum dómsstóli“ o.s.frv. Allir eru sammála um mikilvægi stjórnarskrárvarinna réttinda manna gagnvart stjórnvöldum og ekkert megi slaka á í þeim efnum. En þessi lýsing virðist einungis eiga við þegar ró er í samfélaginu og pólitískt- og efnahags- legt jafnvægi þokkalegt. Ég hef stundum sagt það áður að prófsteinn réttarríkisins er þegar slíkt jafnvægi er ekki til staðar og almennt umrót er í samfélaginu. Þá hafa stundum háværir hópar og stjórn- málamenn ekki mikinn áhuga á réttar- ríkinu og vill það þvælast fyrir pólitísk- um markmiðum. Að vísu í orði kveðnu eru allir sammála um mikilvægi réttar- ríkisins en þýðing hugtaksins vill breytast. Réttarríkið snýst þá um réttlæti og sanngirni sem eru mjög huglæg hugtök og sitt sýnist hverjum. Í því umróti sem íslenskt samfélag hefur verið í síðan bankahrunið varð í október 2008 er réttarríkið í hættu. Það heyrast kröfur um eignaupptöku hjá „söku- dólgunum“ sem óljóst er hverjir eru og hafa ekki einu sinni verið sóttir til saka. Það eru kröfur um handtökur og að þeir sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur gangi. Þá er gjarnan vísað til réttlætis og að öðruvísi náist ekki sátt í samfél- aginu. Þótt réttarríkið hafi staðist enn áhlaup af þessu tagi hefur það bognað enda hafa bæði stjórnmálamenn og fjölmiðlar tekið að miklu leyti undir þessar kröfur. Ástand eins og þetta er þekkt í samfélagssögu síðustu alda. Oftar en ekki hefur réttarríkið þurft að láta undan. Þá hafa tekið við þeir sem ætla að búa til nýtt og betra samfélag með réttlætið að vopni. Þær tilraunir hafa iðulega snúist í andhverfu sína. Við þær aðstæður sem uppi eru í íslensku samfélagi í dag þurfa lögmenn og Lögmannafélag Íslands að standa vörð um réttarríkið og láta í sér heyra. Við megum ekki bugast þótt reynt sé að gera lítið úr okkur og jafnvel haldið fram að við séum sérstakir sökudólgar Hrunsins. Í alræðisríkjum, þar sem réttarríkið á gjarnan undir högg að sækja, hafa sjálfstæð lögmannafélög verið afar mikilvæg og áhrifamikil í baráttunni fyrir réttarríkinu. Þar hafa lögmenn oft beinlínis sætt ofsóknum í þeirri viðleitni að koma á réttarríki og í baráttu fyrir almennum réttindum fólks. Réttarríkið er ekki eitthvað sjálfsagt fyrirbæri sem við getum gengið að sem vísu. Það þarf að styðja það og verja þegar að er sótt. Við getum heldur ekki látið reglur þess gilda stundum en vikið þeim til hliðar þegar okkur sýnist svo eða teljum það henta með vísan til réttlætissjónarmiða. Réttlæti dagsins í dag reynist oft vera óréttlæti morgun- dagsins Prófsteinn réttarríkisins Brynjar Níelsson hrl. Pistill formanns Skemmuvegi 4 | 200 Kópavogur | Sími 540 1800 | Stórt verk lítið mál

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.