Lögmannablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 8
8 lögmannablaðið tbl 02/12
lAGADAGUr 2012
réttarstaða sakaðra manna
Það var þéttsetinn bekkur á rökstólum um
réttarstöðu sakaðra manna á lagadaginn
enda hafa ýmis álitaefni varðandi t.d.
rannsókn efnahagsbrotamála verið í
deiglunni. Þátttakendur rökstólanna, þau
Eiríkur tómasson hæstaréttardómari, Björn
Þorvaldsson saksóknari hjá sérstökum
saksóknara, Gestur Jóns son hrl. hjá
mörkinni og Þórunn Guðmundsdóttir
hrl. hjá Lex, ræddu þar um réttarstöðu
sakborninga, aðgang að gögnum sem
aflað hefur verið við rannsókn mála og
málsmeðferðartíma í efnahagsbrotamálum
með hliðsjón af réttindum sakborninga
undir stjórn sigurðar tómasar magnússonar
prófess ors við lagadeild Háskólans í
reykjavík. meðal annars kom fram hjá
verjendum í rökstólunum að þeir teldu
allt of marga hafa fengið réttarstöðu
sakbornings við rannsóknir á vegum
embættis sérstaks saksóknara á meðan
Björn Þorvaldsson kvað slíkar ákvarðanir
vera teknar að vel athuguðu máli og Eiríkur
tómasson lagði áherslu á að réttindi manna
væru betur tryggð lögum samkvæmt með
því að gefa þeim réttarstöðu sakbornings.
Þórunn Guðmundsdóttir taldi að
dómarar væru ekki nægilega gagnrýnir
á rannsóknarbeiðnir lögreglu og vísaði
til þess að símhlustunarbeiðnum væri
aðeins hafnað í undantekningartilvikum.
Gestur Jónsson taldi að aðgengi verjenda
að rafrænum gögnum væri of þröngt og
að það væri óviðunandi vinnuaðstæður
fyrir verjendur að þurfa að dvelja
langdvölum í húsnæði lögreglu til að
yfirfara t.d. tölvupósta. slíkt væri brot á
jafnræði aðila. Björn Þorvaldsson benti
á að verjendur hefðu fullan aðgang að
öllum þeim gögnum sem sakamál væru
byggð á fyrir dómi og taldi að réttarstaða
sakborninga væri vel tryggð með því að
gefa verjendum kost á að skoða rafræn
gögn í húsakynnum lögreglu. að lokum
var fjallað um ákvörðun verjendaþóknunar
í sakamálum með hliðsjón af réttarstöðu
sakborninga eftir þær breytingar sem
gerðar voru á grundvelli m.a. reglugerðar
715/2009 um tímagjald lögmanna við
ákvörðun verjendaþóknunar, sbr. lög nr.
70/2009 og viðmiðunarreglna dómstólaráðs
sem byggja á þessari reglugerð. Þórunn og
Gestur töldu þessar reglur geta bitnað á
réttaröryggi sakborninga þar sem tímagjald
verjenda væri orðið svo lágt að hætt væri
við að margir lögmenn, sem sinnt hefðu
slíkum störfum, treystu sér ekki lengur
til þess.
Þátttakendur í rökstólum um réttarstöðu sakaðra manna f.v.: Þórunn guðmundsdóttir,
gestur jónsson, eiríkur tómasson, björn Þorvaldsson og sigurður tómas magnússon.
réttarstaða í óvígðri sambúð
Á málstofu um réttarstöðu í óvígðri
sambúð var velt upp þeirri spurningu
hvort ástæða væri til að setja lög um
óvígða sambúð á íslandi, með svipuðum
hætti og til væri á norðurlöndum. Einnig
var fjallað um vandamál sem kæmu upp
við slit sambúðar og dóma sem hefðu
fallið á réttarsviðinu. Framsöguerindi
héldu Hrefna Friðriksdóttir, dósent
við lagadeild Háskóla íslands, Lára v.
Júlíusdóttir hrl. hjá LL3 lögmönnum
og sigrún Landvall, hdl. í stokkhólmi.
í panil sátu Jóhanna Gunnarsdóttir
lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu og
Guðmundur Ágústsson hrl. en Haukur
Guðmundsson hdl. hjá Lagastoðum
stjórnaði málstofunni. Það sem athygli
vakti í umræðum málstofunnar var sú
þróun sem orðið hefur á réttarsviðinu
varðandi fjárskipti við sambúðarslit
þar sem í vaxandi mæli er miðað við
opinbera skráningu á eignum við skipti
í stað þess að horfa á eignamyndun á
sambúðartíma.
lagadagurinn 2012
málstofur og rökstólar
fyrirlesarar og þátttakendur málstofu um réttarstöðu í óvígðri sambúð.