Lögmannablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 20
20 lögmannablaðið tbl 03/11
Á léttUM nótUM
af merði lögmanni
Nú er búið loksins að skipta um formann í Lögmannafélaginu. Mörður
var hissa yfir því að þessi sérkennilegi maður skyldi verða kosinn sem
formaður á sínum tíma. Mörður kunni nú samt ágætlega við hann. Hann er
svolítið skrítinn eins og Mörður, fylgdi ekki tískustraumum í klæðaburði
og „holningin“ ekki glæsileg. Stundum leit blessaður maðurinn út eins og
útigangsmaður, sólbrúnn og órakaður. Þótt Mörður verði seint talinn til
fegurstu manna var hann aldrei svona illa útlítandi.
Þótt Mörður hafi að mörgu leyti kunnað ágætlega við formanninn
fyrrverandi var ekki sama hægt að segja um marga aðra. Mörður hitti
til dæmis landsþekkta konu um daginn á ónefndri knæpu. Sú hefur
verið málkunnug Merði frá því í gamla daga þegar hann var hagaljómi
á veiðilendum lostalífsins í mjaðarlausum Reykjavíkurhreppi. Í stað
þess að hneppa einni tölu neðar á velstraujaðri skyrtunni og hagræða
brjóstunum til að gera skoruna meira áberandi, eins og hún hafði iðulega
gert frá því þau tefldu saman sína skák, þá vatt hún sér að Merði og fór
að tala um „skítasvínið formanninn“. Uppákomur sem þessar hafa verið
algengar síðustu misseri og nú virðist svo komið að konur líta ekki við
lögmönnum almennt.
Mörður kannaði betur hvernig á þessu stæði og skoðaði hvað þessi
fyrrverandi formaður hafði gert. Kom þá í ljós að hann hefur verið
sífellt að gaspra í fjölmiðlum og ráðist harkalega að konum sem eru að
reyna að berjast fyrir réttindum kvenna og hjálpa öðrum konum að komast
undan lostugum körlum. Þótt Mörður sé nú ekki þekktur kvenréttindasinni
varð honum um og ó við skrif formannsins fyrrverandi og finnst ekki
skrítið að lögmenn séu ekki hátt skrifaðir hjá kvenþjóðinni. Það er því
af sem áður var þegar jafnvel ófríðustu lögmenn komust á séns.
Við nánari skoðun Marðar kom ýmislegt sérkennilegt í ljós í fari
formannsins fyrrverandi. Hann kann lítið í lögfræði og lét nýútskrifaðan
sérfræðing í málefnum flóttamanna pakka sér saman í fjölmiðlum þegar
hjálparlausu börnin frá Alsír reyndu að flýja til landsins.
Álit Marðar á formanninum minnkaði heldur þegar Möðrur áttaði sig
á því að hann er sérstakur stuðningsmaður mótorhjólagengja og annars
glæpalýðs. Svo ekki sé talað um stuðning hans við útrásarvíkinga
og bankamenn. Mörður er greinilega ekki lengur mesti furðufuglinn í
lögmannastéttinni.
En ólíkt Merði hefur formaður fyrrverandi verið kvæntur sömu konunni
alla tíð sem er mjög undarlegt í ljósi skrifa hans. Konan hlýtur að hafa
sérstakt langlundargeð og sennilega af framsóknarættum.
Mörður er ánægður með nýja formanninn, sem er yndislegur maður, bæði
góður og fallegur. Þar er á ferð vandaður maður sem er ekki sífellt
gasprandi tóma vitleysu í fjölmiðlum. Nýi formaðurinn hefur óskað eftir
starfskröftum Marðar í þágu Lögmannafélagsins. Til stendur að endurvekja
spilakvöldin með áherslu á framsóknarvist.