Fréttablaðið - 04.12.2014, Page 2
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
VIÐSKIPTI „Ég átti nú von á að þeir
myndu nú að minnsta kosti vilja
ræða við mig,“ segir Hlynur Braga-
son rútubílstjóri sem fær ekki heim-
ild bæjaryfirvalda til að gera skipið
Lagarfljótsorminn að veitingastað á
Egilsstöðum.
Núverandi eigandi Lagarfljóts-
ormsins er Sævar Jónsson í vél-
smiðjunni Stálstjörnunni á Seyðis-
firði, sem eignaðist skipið eftir að
rekstur þess komst í þrot síðast.
Lagarfljótsormurinn fór fyrst á flot
eystra sumarið 1999.
Frá árinu 2011 hefur skipið verið
uppi á landi ofan við Lagarfljóts-
brúna. Sævar segist hafa ætlað að
koma skipinu á flot aftur og verið
kominn með öll leyfi en það hafi þá
reynst skemmt.
„Ég hafði ekki bolmagn til að
klára það og minn banki sagðist
þegar hafa tapað nógu á þessu appa-
rati. Ég ákvað þá að finna einhvern
annan til að taka við keflinu,“ segir
Sævar.
Hlynur Bragason er einn þeirra
sem sýndu Lagarfljótsorminum
áhuga. Hann spurðist fyrir um það
hjá bæjaryfirvöldum Fljótsdalshér-
aðs hvort hann gæti fengið lóð fyrir
skipið í miðbæ Egilsstaða. Því hefur
verið hafnað með vísun í skipulags-
lög.
„Meðlimir umhverfis- og fram-
kvæmdanefndar voru að minnsta
kosti ekki tilbúnir að samþykkja
þetta erindi eins og það var lagt
upp,“ segir Björn Ingimarsson bæj-
arstjóri. „Ég á frekar von á að skip-
ið verði fært, það er bara spurning
hvert. En víst væri gaman ef það
færi aftur á flot.“
Rekstur Lagarfljótsormsins hefur
aldrei gengið vel frá því hann hóf
siglingar á fljótinu. Hlynur Braga-
son segist telja útséð með að rekst-
urinn á fljótinu gangi. Sjálfur rekur
hann rútubílafyrirtæki. „Mér datt
í hug að þetta gæti verið heppilegt
fyrir konuna mína en þeir blésu
þetta bara út af borðinu,“ segir
hann.
Sævar segir að við sölu á skipinu
hafi hann lagt áherslu á að það færi
ekki úr héraðinu. Úr því Hlynur fái
ekki undirtektir við sinni hugmynd
geti það nú breyst enda hafi hann
fengið tilboð frá aðila sem vilji fara
með skipið af svæðinu. „Ég hélt að
það væri meiri áhugi á Héraði fyrir
Lagarfljótsorminum,“ segir Sævar.
gar@frettabladid.is
Lagarfljótsormurinn
fastur á strandstað
Veitingaferjan Lagarfljótsormurinn sem staðið hefur ónotuð á árbakkanum um
árabil er ekki á leið í nýtt hlutverk sem rútubílstjóri ætlaði skipinu með því að gera
það að veitingastað á Egilsstöðum. Skipulagsnefnd hafnar hugmyndinni.
Ég hafði ekki bolmagn
til að klára það og minn
banki sagðist þegar hafa
tapað nógu á þessu apparati.
Sævar Jónsson,
eigandi Lagarfljótsormsins.
LAGARFLJÓTSORMURINN Skipið er 48 metra langt og tekur 110 manns í sæti. Það
hóf siglingar á Lagarfljóti sumarið 1999.
Meðlimir umhverfis-
og framkvæmdanefndar
voru að minnsta kosti ekki
tilbúnir að samþykkja
þetta erindi.
Björn Ingimarsson
bæjarstjóri.
ÍÞRÓTTIR Stjórn Landssambands
hestamannafélaga (LH) samþykkti
í gær breytt staðarval á Landsmóti
hestamanna 2016. Mótsstaðurinn
verður færður frá Vindheimamelum
að Hólum í Hjaltadal, en tillaga þess
efnis var samþykkt á fundi LH í gær.
Allir sjö stjórnarmenn LH skrifuðu
undir tillöguna.
Landsþing LH í október sprakk
í loft upp. Stuttu fyrir þingið hafði
stjórn LH slitið viðræðum við Gull-
hyl sem átti að halda landsmót á
Vindheimamelum. Taldi LH ekki
forsvaranlegt að halda áfram við-
ræðum við Gullhyl. Landsþing álykt-
aði gegn stjórninni og taldi rétt að
halda áfram viðræðum við Gullhyl
og klára samning til þess að halda
landsmót að Vindheimamelum.
Stjórn landssambandsins ákvað
því að hálfu að verða við ályktun
landsþingsins um að semja við Gull-
hyl um að halda landsmót árið 2016,
með þeirri breytingu að færa mótið
heim að Hólum í Hjaltadal. Lands-
mót var síðast haldið þar árið 1966.
- sa
Stjórn Landssambands hestamannafélaga vill semja við Skagfirðinga:
Finna landsmóti stað að Hólum
LANDSMÓT HESTAMANNA Halda
á landsmót á Hólum í fyrsta skipti í
fimmtíu ár.
SAMFÉLAGSMÁL Í gær, á alþjóðadegi fatlaðra, afhenti Eygló Harðar-
dóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, Múrbrjóta Þroskahjálpar.
Múrbrjóturinn er viðurkenning til þeirra sem hafa stuðlað að því að
brjóta niður múra sem oft umlykja líf fatlaðs fólks.
Fjórir aðilar tóku á móti viðurkenningunni. Mæðgurnar Embla Guð-
rúnar- og Ágústsdóttir og Guðrún Hjartardóttir voru heiðraðar sem
og Stígamót. Birna Guðrún Baldursdóttir tók á móti verðlaununum við
sérstaka athöfn á Akureyri. - jóe
Þroskahjálp verðlaunaði frumkvöðla á alþjóðadegi fatlaðra:
Fjórir tóku á móti Múrbrjótnum
VIÐURKENNING Verðlaunahafarnir, að einum undanskildum, ásamt félagsmálaráð-
herra við afhendinguna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞINGEYJARSVEIT Líklegast er að
skólastarf í Þingeyjarsveit verði
sameinað á einum stað, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Boðað
hefur verið til aukasveitarstjórnar-
fundar um skólamál klukkan eitt
í dag.
Mikill hiti er í íbúum vegna
skólamála. Skýrslur sem hafa verið
skrifaðar sýna að kostnaður við tví-
skipt skólahald er sveitarfélaginu
mjög þungur. Bæði fjárhagsleg
og fagleg rök hnígi að því að færa
skólahald undir eitt þak. - sa
Skóli ræddur á aukafundi:
Skólastarf flutt
undir eitt þak
VELFERÐARMÁL Samkvæmt nýju
frumvarpi félagsmálaráðherra fá
sveitarfélögin skýrari heimild til
að skilyrða eða skerða fjárhags-
aðstoð til fólks sem telst vinnu-
fært. Markmið frumvarpsins er
að koma í veg fyrir að langvar-
andi atvinnuleysi leiði til óvinnu-
færni.
Fjöldi þeirra sem þiggja fjár-
hagslega aðstoð hjá sveitarfé-
lögum hefur tvöfaldast frá árinu
2007. Elín Sigurðardóttir, formað-
ur velferðarráðs Reykjavíkurborg-
ar, segir hættulegt ef verið sé að
auka heimildir til skerðinga til að
bregðast við því.
„Skerðingar leysa ekki vanda
fólks sem er félagslega og fjár-
hagslega í vanda statt.“ - þká
Rýmri heimild sveitarfélaga:
Mega skilyrða
fjárhagsaðstoð
EVRÓPUSAMBANDIÐ Eitt fyrsta verk
Donalds Tusk í embætti forseta
ráðs ESB var að hringja til Kína
að spjalla við
Xi Jinping for-
seta. Að loknu
símtalinu sendi
hann frá sér til-
kynningu þar
sem hann sagðist
leggja áherslu á
að styrkja tengsl-
in við Kína. Það
muni gagnast bæði Evrópusam-
bandinu, Kína og heiminum öllum.
Þá sagðist hann hafa rætt sér-
staklega mikilvægi þess að landa-
mæri ríkja standi óbreytt, „sem er
sérstaklega mikilvægt í tengslum
við Úkraínu“. - gb
Byrjaði á að hringja til Kína:
Tusk hringdi
í Xi Jingping
DONALD TUSK
EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðherra hefur veitt skatt-
rannsóknarstjóra heimild til að kaupa gögn um Íslend-
inga sem eiga aflandsfélög í skattaskjólum. Þetta er
þó háð því skilyrði að kaupverðið verði ekki hærra en
tiltekið hlutfall þeirra fjármuna sem tekst að endur-
heimta með þessum hætti.
„Við í ráðuneytinu höfum ekki
upplýsingar um það hver á í hlut hér,
þau samskipti eru öll beint við skatt-
rannsóknarstjóra,“ segir Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra um
seljendur upplýsinganna, sem ekki
er vitað hverjir eru. „Það hefur þó
komið fram að þessir aðilar bjóða
gögnin fram meðal annars á þeirri
forsendu að greiðsla verði einungis
innt af hendi ef skattheimta verður
niðurstaðan af upplýsingagjöfinni.“
Ráðherra hefur einnig skipað starfshóp til að kanna
hvort setja eigi svokölluð „amnesty“-ákvæði í íslensk
skattalög. Slík ákvæði fela í sér að samið er um að
menn sleppi við refsingu geri þeir sín mál upp aftur í
tímann.
Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og skatta-
nefndar Alþingis, fagnar ákvörðun fjármálaráðherra.
„Ég hef verið að meta í hugarreikningi, að ef Íslend-
ingar hafa verið álíka duglegir og nágrannaþjóðir
okkar, þá gætu þetta verið fimm til fimmtán millj-
arðar sem gætu hugsanlega skilað sér í svona átaki,“
segir Frosti. - þká
Skattrannsóknarstjóra veitt heimild til að kaupa upplýsingar um skattaskjól:
Átakið gæti skilað milljörðum
HÖFUÐSTÖÐVAR SKATTRANNSÓKNARSTJÓRA Embættinu
hefur verið veitt heimild til að kaupa gögn um Íslendinga sem
eiga aflandsfélög. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓRBJARNI
BENEDIKTSSON
SPURNING DAGSINS
Mikið úrval vandaðra útisería
fyrir fyrirtæki, húsfélög og heimili
VELDU
SEM END
AST
OG ÞÚ SPARA
R
JÓLAL
JÓS
Opið kl. 11 - 18 virka daga
Opið kl. 11 - 16 laugardaga
Ómar, verða menn ekki á
nálum af þessari olíu?
„Nei, en þeir komast í jólaskap.“
Kokkarnir Ómar Stefánsson og Jónas Oddur
Björnsson í Hannesarholti hafa gert olíu úr
greni sem meðal annars á að bragðbæta ís.