Fréttablaðið - 04.12.2014, Síða 12
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Þrátt fyrir það yfirlýsta mark-
mið íslenskra stjórnvalda að vera
leiðandi í málefnum hafsins og
fyrirmynd annarra þjóða í mála-
flokknum, þá á Ísland ekki aðild að
fjölmörgum alþjóðasamningum er
varða varnir gegn mengun sjávar
frá skipum.
Miklir fjárhagslegir hagsmunir
fyrir Ísland geta verið í húfi, sem
annars væru tryggðir með fullri
aðild þess alþjóðasamstarfs sem
samningarnir fela í sér. Ekkert
annað virðist í vegi þess að þessum
málum sé komið í sæmandi horf en
sá kostnaður sem það útheimtir.
Rauði þráðurinn
Ríkisendurskoðun hefur sent frá
sér skýrslu til Alþingis þar sem er
fjallað um aðild Íslands að, og fram-
kvæmd á, alþjóðlegum samningum
um varnir gegn mengun sjávar frá
skipum. Rauði þráður skýrslunnar
er sá að íslensk stjórnvöld þurfa
að tryggja betur en nú að breyt-
ingar á alþjóðlegum samningum
um verndun hafs gegn mengun frá
skipum skili sér inn í íslenskan rétt.
Þá þurfa stjórnvöld að vinna skipu-
lega að því að staðfesta alþjóðlega
samninga á þessu sviði sem ekki
hafa verið staðfestir en hafa þýð-
ingu fyrir íslenska hagsmuni. Enn
fremur þurfa stjórnvöld að tryggja
öflugt eftirlit með framkvæmd
samninganna.
Forysta Íslands
Íslensk stjórnvöld hafa um ára-
bil haft að markmiði að gegna for-
ystuhlutverki í málefnum hafsins,
enda um eina mikilvægustu auð-
lind Íslands að ræða. Sú staðreynd
liggur hins vegar fyrir að tíu alþjóð-
legir samningar, viðbætur og bók-
anir sem tengjast Alþjóðasiglinga-
málastofnuninni (IMO) og fjalla
um varnir gegn mengun frá skipum
hafa ekki verið staðfestir.
Ríkisendurskoðun hvetur
umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
ið til að greina mögulegar hættur
vegna þessa og ekki síður að Ísland
framfylgir ekki þeim alþjóðasamn-
ingum sem þó hafa verið staðfestir.
„Hvort tveggja eykur m.a. hættu á
að eftirliti með mengun sjávar frá
skipum sé ábótavant. Þótt aðild að
alþjóðasamningum krefjist fjár-
magns og mannafla felast einnig í
henni tækifæri til að vera leiðandi í
alþjóðasamstarfi um málefni hafs-
ins og vera öðrum þjóðum fyrir-
mynd í umgengni við hafið, eins og
yfirlýst stefna stjórnvalda kveður á
um en hingað til verður ekki séð að
það hafi náð fram að ganga,“ segir
Ríkisendurskoðun.
Villur í lögum og reglum
Við lestur skýrslunnar virðist hvað
alvarlegast að Ísland framfylgir
ekki samningum sem þegar hafa
verið staðfestir. Umræddir samn-
ingar eru í stöðugri endurskoðun,
og hafa margir breyst mjög mikið
í gegnum árin. Þessar breytingar
skila sér ekki inn í íslenskan rétt og
tilvísanir íslenskra laga og reglna í
þessa sömu samninga eru að hluta
beinlínis rangar.
Ímynd Íslands
Strax árið 2007 forgangsraðaði
Umhverfisstofnun óstaðfestum
alþjóðasamningum eftir mikil-
vægi og óskaði eftir að ráðuneytið
upplýsti hvort og þá hvernig ætti
að hefja undirbúning að staðfest-
ingu þeirra. Því erindi var aldrei
svarað.
Þýðing þessa er einfaldlega sú að
ekki liggur fyrir mat á því hversu
mikilvægt er fyrir Ísland að stað-
festa einstaka samninga. Í svari
ráðuneytisins við athugasemdum
Ríkisendurskoðunar segir að stefnt
sé að því að samþykkja tvo viðauka
Marpol-samningsins, sem IMO
telur reyndar meðal mikilvægustu
alþjóðasamninga á þessu sviði.
Í samhengi má nefna hér að
Ísland uppfyllir þessa, og fleiri
óstaðfesta samninga nú þegar að
stórum hluta í gegnum tilskipanir
Evrópusambandsins. Það hefur þó
ekkert gildi á alþjóðavettvangi þar
sem þeir hafa ekki verið staðfestir.
Ímynd Íslands hvað þetta varðar
er því lakari en hún þyrfti að vera.
Hvað aðra samninga varðar
segir í svari ráðuneytisins að ekki
hafi verið lögð mikil áhersla á að
staðfesta nýja samninga sem tengj-
ast vörnum gegn mengun sjávar
frá skipum á undanförnum árum.
„Ástæðan er fyrst og fremst sú að
ráðuneytinu er kunnugt um að erf-
itt hefur verið að sinna sem skyldi
þeim samningum sem þegar hafa
verið fullgiltir á þessu sviði og því
hafa vaknað spurningar um hversu
gagnlegt það sé að staðfesta enn
fleiri samninga, sem litlar líkur
séu á að hægt sé að sinna vel.“
Við þetta er að bæta að í svari
ráðuneytisins segir að þátttaka í
alþjóðlegu samstarfi hefur verið
skorin niður á undanförnum
árum „og fyrirséð að halda þarf
áfram á þeirri braut að óbreyttu.
Það er því ljóst að ráðuneytinu er
þröngur stakkur skorinn í þessum
efnum […]“, segir í svarinu.
Alþingi illa, eða ekki, upplýst
Alþjóðastarf um varnir gegn
mengun sjávar er á ábyrgð
Umhverfisstofnunar, þó ábyrgð á
framfylgd samninga sé á endanum
ráðuneytisins. Í fljótu bragði verð-
ur þó ekki annað séð en Umhverf-
isstofnun hafi teygt sig frekar
langt til þess að rækja þetta lög-
bundna hlutverk sitt. Síendurtekn-
um beiðnum hefur verið beint til
fjárveitingavaldsins um fram-
lög til þessara verka en hvergi er
hægt að finna þeim stað í fjárlög-
um um langt árabil. Þar sem þess-
ar beiðnir skila sér ekki í fjárlaga-
frumvarp hvers árs má líka halda
því fram að Alþingi sé illa eða
ekki upplýst um þessa stöðu mála.
Ríkisendurskoðun rekur þessa
sögu umleitana Umhverfisstofnun-
ar af nokkurri nákvæmni í skýrsl-
unni og ekki er um háar upphæð-
ir að ræða. Ráðuneytið ber af sér
blak með því að segja í sínum
skýringum að tekið hafi verið, í
sumum tilvikum, undir fjárlaga-
beiðnir stofnunarinnar um styrk-
ingu starfs á þessu sviði, en þær
ekki skilað sér í fjárlög. Eftir
stendur sú staðreynd að innan
Umhverfisstofnunar eru aðeins
þrír sérfræðingar sem sinna mál-
efnum hafsins og umsýslu allra
alþjóðasamninga sem tengjast
þessu risavaxna umhverfismáli.
Virðum ekki skuldbindingar okkar
Ísland er hvergi nærri því að vera leiðandi í málefnum hafsins – öfugt við fullyrðingar stjórnvalda. Ísland á ekki aðild að fjölmörgum
alþjóðasamningum er varða mengun frá skipum og framfylgir ekki öðrum sem hafa verið staðfestir. Tilvísanir í íslenskum lögum eru rangar.
● Ársyfirlit Landhelgisgæslunnar sýnir að yfir 300 skip
eru á sjó kringum Ísland á degi hverjum, og árið 2013
tilkynntu 2.539 flutningaskip komu sína til hafnar hér
við land.
● Mengun sem rekja má til skipa kemur einkum til vegna
slysa, mengandi búnaðar þeirra og losunar á úrgangs-
efnum í hafið. Þessi mengunarefni eru mishættuleg
fyrir lífríkið. Olía og efni unnin úr henni valda mestum
umhverfisáhrifum, en önnur efni sem flutt eru sjóleiðis
eru mörg hver mun skaðlegri umhverfinu. Sum þeirra
safnast upp í fæðukeðjunni með þeim afleiðingum
að þau ógna heilsu manna. Önnur gera fisk óhæfan til
neyslu. Efnamengun breytir efnasamsetningu hafsins
sem hefur áhrif á veiðar, loftslag og veðurfar. Alþjóð-
legt samstarf er því afar mikilvægt og vægi alþjóðlegra
samninga um vernd hafsins mikið.
ÞÚSUNDIR FLUTNINGASKIPA KOMA TIL HAFNAR Á ÁRI HVERJU
M
YN
D
/G
U
N
N
AR H
LYN
U
R Ó
SKARSSO
N
ALMA Í TOGI Hoffell
SU 80 tók flutninga-
skipið Ölmu í tog árið
2011 eftir að það varð
stjórnlaust úti fyrir
Höfn í Hornafirði.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Ríkisendurskoðun
telur mikilvægt að
Ísland standi að fullu við þær
alþjóðlegu skuldbindingar sem
það hefur undirgengist um
varnir gegn mengun sjávar frá
skipum.
Ísland hefur heldur
ekki staðfest fimm aðra
samninga á þessu sviði, þ.e. um
einkaréttarlega ábyrgð vegna
mengunar frá olíu í eldsneytis-
tönkum skipa, um skipsflök, um
takmörkun á notkun gróður-
hindrandi efna og/eða búnaðar
á skipum, um takmörkun á los-
un kjölfestuvatns og um ábyrgð
og bótaskyldu í tengslum við
flutning hættulegra efna og
eiturefna sjóleiðis. Loks hefur
Ísland ekki stað-
fest þrjár
bókanir við
samninga
sem það
á aðild að.
Aðild að
þessum
samningum er
t.d. mikilvæg
til að lágmarka
hættu á að mengandi
efni eða skaðlegar líf-
verur berist milli
hafsvæða.
Það getur haft neikvæð
áhrif á atvinnulíf landa
og ímynd þeirra ef þau fram-
fylgja ekki þeim alþjóðlegu
skuldbindingum sem þau
hafa undirgengist á sviði um-
hverfismála. Einnig getur ríki
orðið bótaskylt sé skip frá því
kyrrsett í öðru ríki vegna þess
að það uppfyllir ekki ákvæði
staðfestra alþjóðasamninga.
Þá getur skapast óvissa um
viðbrögð ef skipsskaði eða
mengunaróhapp verður í lög-
sögu ríkja en með aðild að
alþjóðasamningum tryggja
þau sér rétt til íhlutunar og
aðstoðar annarra aðildarríkja.
Ríki geta þó lent í erfið-
leikum ef þau uppfylla
ekki staðfesta samninga
og það skaðað
ímynd þeirra á al-
þjóðavettvangi.
Varnir þeirra
gegn mengun
frá skipum
eru t.d. veikari
en ella og skip
þeirra geta mætt
hindrunum í höfnum
annarra aðildarríkja, s.s.
vegna óvottaðs mengun-
arvarnabúnaðar.
Kurteisislega orðuð skammarræða
Desemberuppbót félagsmanna VR í fullu starfi er núna 73.600 kr.
og á að greiðast ekki seinna en 15. desember.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Hvenær kemur desemberuppbótin?
Virðing, réttlæti og gleðilega hátíð!
ASKÝRING | 12
ÍSLAND OG ALÞJÓÐLEGIR SAMNINGAR UM VARNIR GEGN MENGUN SJÁVAR