Fréttablaðið - 04.12.2014, Síða 16
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
Bj ðum gott rval af notuðum b lum fr bæru
tilboði desember. Komdu við hj okkur að
Kaupt ni 1, Garðabæ - beint m ti IKEA.
S mi 575 1200
ALLT AÐ 80% FJ RM GNUN
TOYOTA LAND CRUISER 150
Nýskr 07/2012, ekinn 97 þús.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ ÁÐUR kr. 7.680.000
TOYOTA PRIUS SOL
Nýskr 02/2013, ekinn 14 þús.
bensín, sjálfskiptur. þús
KIA SPORTAGE KM CRDi
Nýskr 06/2007, ekinn 117 þús.
dísil, beinskiptur
HYUNDAI I30 STYLE
Nýskr 11/2007, ekinn 121 þús.
bensín, sjálfskiptur.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr 05/2011, ekinn 134 þús.
bensín, sjálfskiptur
HYUNDAI i40 WAGON PREMIUM
Nýskr 05/2012, ekinn 79 þús.
dísil, sjálfskiptur.
CHEVROLET LACETTI STATION
Nýskr 01/2011, ekinn 69 þús.
bensín, beinskiptur.
VERÐ ÁÐUR kr. 5.290.000
TILBOÐ 4.790 þús. kr.
VERÐ ÁÐUR kr. 2.090.000
TILBOÐ 1.590 þús. kr.
VERÐ ÁÐUR kr. 1.690.000
TILBOÐ 1.400 þús. kr.
VERÐ ÁÐUR kr. 3.090.000
TILBOÐ 2.490 þús. kr.
VERÐ ÁÐUR kr. 4.990.000
TILBOÐ 4.190 þús. kr.
VERÐ ÁÐUR kr. 1.590.000
TILBOÐ 1.090 þús. kr.
HYUNDAI
TILBOÐSVERÐ
6.880 þús. kr.
TILBOÐ
EINST K
Kaupt ni 1
Kaupt ni 1- (Beint m ti IKEA)
Nr.120543
Nr. 320107
Nr. 281442
Nr. 120510
Nr. 281710
Nr. 270399
Nr. 130905
HEILBRIGÐISMÁL Ólíklegt er að
samningar náist milli Lækna-
félags Íslands og ríkisins fyrir
áramót að mati Sigurveigar Pét-
ursdóttur, formanns samninga-
nefndar lækna. Lítið miðar í við-
ræðum milli deiluaðila. Ólafur
Baldursson, framkvæmdastjóri
lækninga á LSH, segir stöðuna
grafalvarlega og þyngist dag frá
degi.
Núverandi verkfallsboðun lýkur
föstudaginn 12. desember. Félags-
menn læknafélagsins greiða nú
atkvæði um áframhaldandi verk-
fallsaðgerðir og verða niðurstöður
úr atkvæðagreiðslunni kunngjörð-
ar á mánudaginn kemur. Síðasti
fundur milli deiluaðila bar engan
árangur og hefur ekki enn verið
boðað til nýs fundar.
„Eins og við höfum útskýrt þá
hafa verkfallsaðgerðirnar haft
gríðarlega mikil áhrif á starfsemi
spítalans og það kemur á daginn
að áhrifin aukast jafnt og þétt
hvern dag sem aðgerðirnar halda
áfram. Þetta þrengir að spítalan-
um og hægir á starfseminni og
gerir okkur á margan hátt erfið-
ara fyrir,“ segir
Ólafur.
Hann segir
a ð f j ó r i r
læknar hafi
nú þegar sagt
upp störfum
á spítalanum
frá því verk-
fallsaðgerð-
ir hóf-
ust. Sú staða sé óásættanleg og
brýnir Ólafur deiluaðila til að ná
saman. „Ég hef áhyggjur af stöð-
unni og einnig þeim sögusögnum
að fleiri kunni að segja upp störf-
um á næstu dögum á spítalanum.
Þetta eru hörmuleg tíðindi að við
séum komin í þá aðstöðu að læknar
eru farnir að segja
upp. Það skipt-
ir gríðarlega
miklu máli að
deiluaðilar nái
saman sem
allra fyrst.“
Sigurveig
Pétursdóttir,
formaður
samninga-
nefndar
læknafélagsins segir lítið miða í
átt að samningum milli deiluaðila.
„Það er enn langt í land að samn-
ingar náist. Þeir fjölmörgu fund-
ir sem við höfum átt hafa ekki
skilað okkur miklu. Það má segja
að í síðustu viku hafi hænuskref
verið tekið í átt að samningum.
Hins vegar tel ég, eins og staðan
er núna, ekki líklegt að við munum
ná saman á þessu ári,“ segir Sigur-
veig.
Ólafur segir biðlista lengjast og
allt að eitt ár muni taka að vinda
ofan af þeim biðlistum. „Nú þegar
eru skurðstofurnar og rúmin á
spítalanum nýtt allt að hundrað
prósent. Eftir því sem safnast á
þessa viðbótarbiðlista verða fleiri
og fleiri sem þurfa að bíða eftir
aðgerð. Það þýðir að hlutfall þeirra
sjúklinga sem þurfa á aðgerð að
halda fyrr mun aðeins hækka. Við
horfum því upp á mikinn vanda.“
sveinn@frettabladid.is
BANGSADAGUR Myndin er tekin á Barnaspítala Hringsins þegar börnum var í októ-
ber boðið að koma með bangsa sína í skoðun og læknismeðferð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Greiða atkvæði um
áframhald verkfalls
Atkvæðagreiðsla stendur yfir meðal félagsmanna Læknafélags Íslands um áfram-
haldandi verkfallsaðgerðir. Staðan á Landspítalanum grafalvarleg að mati fram-
kvæmdastjóra lækninga. Litlar líkur eru taldar á að samið verði fyrir áramót.
SJÁVARÚTVEGUR Venus NS, annað
tveggja nýrra uppsjávarskipa
sem HB Grandi er með í smíðum
í Tyrklandi, var sjósett á dögun-
um. Skipið verður afhent í apríl,
standist áætlanir.
Skipin eru smíðuð í Celiktr-
ans Deniz Insaat Ltd skipasmíða-
stöðinni í Istanbúl, og hefur vinnu
miðað ágætlega upp á síðkastið en
smíði Venusar er þó enn á eftir
áætlun.
HB Grandi samdi við tyrk-
nesku stöðina um smíði tveggja
uppsjávarveiðiskipa. Þau eru 80
metrar á lengd og 17 metrar á
breidd og í þeim verður 4.600 kW
aðalvél. Afhending seinna skips-
ins, Víkings AK 100, er áætluð í
október.
Þá hefur HB Grandi samið við
sömu skipasmíðastöð um smíði
þriggja nýrra ísfisktogara sem fá
munu nöfnin Engey RE, Akurey
AK og Viðey RE. Tvö fyrrnefndu
skipin verða afhent á árinu 2016
en Viðey RE verður tilbúin til
afhendingar á árinu 2017. - shá
Fyrsta af fimm nýsmíðum HB Granda sjósett – verða öll komin heim 2017:
Venus NS sjósett í Tyrklandi
VENUS Nýju skipin eru glæsileg og til
vitnis um uppbygginguna í greininni.
MYND/HBGRANDI
STJÓRNSÝSLA Samtals sóttu 112 um hæli á Íslandi á
fyrstu þremur fjórðungum ársins. Umsóknir 42 voru
teknar til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun og
fengu 24 hæli eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
Þetta kemur fram í bráðabirgðatölfræði sem
Útlendingastofnun birti í gær um fyrstu þrjá fjórð-
unga ársins 2014. Veitingarhlutfall hælis á þessu
tímabili er 57 prósent, töluvert hærra en á sama tíma
í fyrra þegar sextán prósent mála í efnismeðferð lauk
með hælisveitingu. Það lága hlutfall er sagt skýrast að
mestu af því að stórir hópar frá ríkjum sem talin eru
örugg sóttu um hæli, einkum frá Albaníu og Króatíu.
Íranar eru fjölmennasti hópurinn meðal þeirra sem
hafa fengið hæli eða dvalarleyfi á árinu eða fimm tals-
ins. Úkraínumenn eru hins vegar fjölmennastir meðal
þeirra sem sóttu um.
Alls 96 prósent umsókna um dvalarleyfi voru sam-
þykkt á tímabilinu sem um ræðir, eða 2.464 af 2.745.
452 einstaklingar fengu veittan íslenskan ríkisborg-
ararétt eða 83 prósent þeirra sem sóttu um hjá Útlend-
ingastofnun. - bá
42 hælisumsóknir teknar til meðferðar á fyrstu þremur fjórðungum 2014:
Tuttugu og fjórir fengu hér hæli
ÚTLENDINGASTOFNUN Stofnunin veitti 24 einstaklingum
hæli eða dvalarleyfi á tímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SIGURVEIG
PÉTURSDÓTTIR
ÓLAFUR
BALDURSSON