Fréttablaðið - 04.12.2014, Page 36
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður aug lýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson,
kkolbeins@365.is, s. 512 5447
INNBLÁSTUR
„Ég ímynda mér
að ættbálkurinn
eigi margt skylt við
landnámsmenn-
ina en lifi í nútíman-
um. Þetta fólk er í
mikilli snertingu við
náttúruna, það þarf
meðal annars að
kljást við náttúru-
hamfarir og sækja
sjálft innblástur í
umhverfi sitt.“
Upprunalega hugmyndin á bak við Stöku kemur úr Íslendingasögun-um en hefur þróast út í ættbálk
sem hefst við á hálendi Íslands. Ætt-
bálkurinn er mitt hugarfóstur, heimur
sem ég nota til að vinna út frá en ég bý
til hluti fyrir þetta fólk,“ útskýrir María
Kristín Jónsdóttir vöruhönnuður en
fylgihlutalína hennar, Staka, vakti at-
hygli þegar hún kynnti hana á Hönn-
unarMars fyrir tveimur árum. Síðan þá
hefur bæst við línuna sem samanstend-
ur af hálstaui og armböndum úr leðri.
„Ég ímynda mér að ættbálkurinn eigi
margt skylt við landnámsmennina en
lifi í nútímanum. Þetta fólk er í mikilli
snertingu við náttúruna, það þarf meðal
annars að kljást við náttúruhamfarir og
sækja sjálft innblástur í umhverfi sitt.
Ég nota leður því það er hráefni sem
var mikið notað á öldum áður,“ útskýrir
María Kristín en leðrið sem hún notar
er unnið á vistvænan hátt.
„Ég fæ leðrið hjá litlu framleiðslu-
fyrirtæki í Svíþjóð sem stundar vist-
væna framleiðslu. Þau byggja á gömlum
hefðum við vinnsluna og allt leður frá
þeim er til að mynda krómfrítt. Króm er
annars mikið notað í leðurvinnslu en er
alls ekki gott fyrir menn né umhverfið.“
Á HönnunarMars í ár sýndi María
Kristín nýja hluti sem hún hefur nú
þróað enn frekar og er von á þeim á
markaðinn fyrir jól.
„Ég valdi nokkra hluti sem ég vann
áfram, einfaldaði framleiðsluna og út-
færði í svart og koníakslitað leður. Þessir
hlutir munu fást í Sparki á Klapparstíg, í
Mýrinni og fljótlega munu fleiri sölustaðir
bætast við,“ segir María Kristín. Þá verð-
ur einnig opið hús á vinnustofu Maríu
Kristínar þann 11. desember en hún hefur
komið sér fyrir ásamt fleiri hönnuðum í
Gasstöðinni, Hverfisgötu 115.
„Við fluttum inn í október, í litla húsið
fyrir framan lögreglustöðina. Þetta er
frábært hús og skemmtileg staðsetning.
Hér eru mörg fjölbreytt verkefni í gangi
og fólk getur kíkt til okkar frá klukkan
16, þennan fimmtudag.“
Forvitnast má um Stöku á Facebook.
■ heida@365.is
STAKA STÆKKAR
ÍSLENSK HÖNNUN Íslendingasögurnar, landnámsmenn og óþekktur ættbálkur
sem hefst við á hálendi Íslands er innblásturinn á bak við Stöku, fylgihlutalínu
úr leðri eftir vöruhönnuðinn Maríu Kristínu Jónsdóttur.
NÝTT María Kristín
Jónsdóttir vöru-
hönnuður hefur
bætt við fylgihluta-
línu sína, Stöku.
Opið hús verður á
vinnustofu hennar
í Gasstöðinni á
Hverfisgötu 115,
fimmtudaginn
11. desember.
MYND/GVA
VISTVÆN Leðrið fær María
Kristín frá litlum framleið-
anda í Svíþjóð sem vinnur
hráefnið á vistvænan hátt.
ÓÞEKKTUR ÆTTBÁLKUR
María Kristín vinnur út frá
ímynduðum ættbálki sem
hefst við á hálendi Íslands.
VEKUR ATHYGLI Staka
vakti athygli þegar María
Kristín kynnti fyrstu vörurnar á
HönnunarMars 2014. Síðan þá
hefur línan stækkað og nýjar
vörur koma á markaðinn fyrir
jól, meðal annars í Sparki og í
Mýrinnni.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
Góð melting styrkir ónæmiskerfið
Stjórnaðu bakteríu-
flórunni með OptiBac
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Save the Children á Íslandi
Leðurjakkar
Leðurbuxur
Leðurpils
Leðurkjólar
Stærðir 34-46
5000 kr. dagur í Flash
Túnikkur áður 14.990
nú 5.000 kr.
margar gerðir
Allar peysur
5.000 kr.
margar gerðir
Sjá fleiri myndir á