Fréttablaðið - 04.12.2014, Síða 54
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
„Við erum hérna í geimstöð
í framtíðinni þegar fremstu
þjóðir heims eru búnar að safna
saman rjómanum af vísinda-
samfélaginu og senda út í geim
til að vinna að lausnum á helstu
vandamálum jarðarinnar,“ segir
Tryggvi Gunnarsson, annar
höfunda og leikara leiksýning-
arinnar MP5 sem frumsýnd
verður í Tjarnarbíói á morgun,
beðinn að segja í stuttu máli frá
verkinu. „Við látum það hins
vegar liggja á milli hluta í hvaða
ástandi jörðin er enda er það
ekki það sem verkið fjallar um.“
Hvað fjallar það þá um?
„Verkið fjallar um hvaða áhrif
það hefur að vopnvæðast í litlu,
afmörkuðu og friðsömu samfé-
lagi,“ segir Tryggvi. „Og eins og
nafnið gefur til kynna þá erum
við beinlínis að fjalla um byssu-
málið svokallaða sem allir ættu
að kannast við úr fréttum.“
Þannig að þið hafið bara verið
að vinna þetta síðustu vikurn-
ar? „Við hérna í Sóma þjóðar,
sem að þessu sinni eru aðallega
ég og Hilmir Jensson, vildum
skoða hversu hratt leikhúsið
gæti brugðist við því sem er í
samfélagsumræðunni. Leikhús-
ið er yfirleitt svolítið svifaseint
að bregðast við svona málum.
Það þarf að sækja um styrki
og svo er valið úr umsóknum
og það tekur oft alveg heilt ár.
Svo tekur annað ár að setja upp
sýninguna og þá ertu orðinn
tveimur árum of seinn eins
og endurspeglaðist best í því
þegar leikhúsin fóru að fást við
hrunið, það tók alveg tvö, þrjú
ár. MindCamp setti reyndar upp
eina sýningu í Borgarleikhúsinu
beint ofan í hrun en annars var
leikhúsið svolítið seint.
Við vildum athuga hvort við
gætum ekki fundið vinnuaðferð
til þess að tala um eitthvað sem
brennur á okkur og samfélaginu
akkúrat núna.
Þannig að við fórum bara út á
gólf, engin ritskoðun, og gerðum
það sem okkur finnst ofboðs-
lega skemmtilegt og er akk-
úrat það sem við vildum sjá í
leikhúsi þannig að við ákváð-
um að skrifa, æfa og gera allt
samtímis og segja já við öllum
hugmyndum. Þannig enduðum
við úti í geimi í framtíðinni og
ákváðum að vera ekkert að setja
neitt í undirtexta heldur bara
fjalla beint um málefnið.“
Tryggvi segir þá Hilmi leggja
miklu áherslu á það að nota
húmor til að koma skilaboðun-
um áleiðis. „Enda er allt þetta
byssumál náttúrulega bara eins
og einhver South Park-þáttur,“
segir hann.
„Við höfðum smá áhyggjur
af því að við værum orðnir of
seinir þegar sagt var frá því
að ákveðið hefði verið að skila
byssunum, en svo lásum við
betur og sáum að þau skil áttu
að fara fram „við tækifæri“
og svo segir lögreglan að hún
þurfi þessar byssur út af ISIS.
Þá varð okkur ljóst að þetta mál
væri engan veginn búið og sýn-
ingin ennþá relevant.“ Frum-
sýningin fer fram í Tjarnarbíói
annað kvöld klukkan 20 og ein-
ungis verða tvær sýningar í við-
bót, þann 12. og 15. desember.
fridrikab@frettabladid.is
Vildu bregðast við samfélagsumræðunni
Leikhópurinn Sómi þjóðar frumsýnir á morgun leikverkið MP5 í Tjarnarbíói. Verkið er beint innlegg í umræðu samtímans og er
útlegging leikaranna Tryggva Gunnarssonar og Hilmis Jenssonar á byssumálinu umtalaða. Aðeins verða þrjár sýningar á verkinu.
MP5 „Við vildum athuga
hvort við gætum ekki
fundið vinnuaðferð til
þess að tala um eitthvað
sem brennur á okkur
og samfélaginu akkúrat
núna,“ segir Tryggvi
Gunnarsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Notice
The Embassy of India will move its premises on Friday, the 5th December
2014. Kindly note that there will be no issuance of Visa or any other
Consular Services on that day.
Normal services will be resumed at our new address at Túngata 7,
101 Reykjavik w.e.f Thursday the 9th of December 2014.
On Monday the 8th of December Visas for emergency purposes only
will be issued.
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Notaðir bílar
- Brimborg
400.000 KR.
FERÐAFJÖR
FINNDU BÍLINN ÞINN Á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
*Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 1. nóvember 2014 til og með 22. desember 2014 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi
verður svo dreginn út 23. desember 2014 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf frá WOW air. Athugið á ekki við um umboðssölubíla.
Kauptu notaðan bíl af Brimborg
og þú átt möguleika á að vinna
* GJAFABRÉF FRÁ WOWair
NOTAÐIR BÍLAR
Vertu með!
Hvert myndir
þú fara?
Í MIKLU ÚRVALI
Tilboð: 8.490.000 kr.
Toyota Land Cruiser VX AWD FDM35
Skráður janúar 2012, 3,0 dísil, sjálfskiptur
Ekinn 87.000 km.
Ásett verð: 9.490.000 kr.
Tilboð: 3.390.000 kr.
VW Passat Highline JKR84
Skráður mars 2012, 1,4i bensín/metan, sjálfskiptur
Ekinn 54.000 km.
Ásett verð: 3.690.000 kr.
Verð: 5.090.000 kr.
Ford Kuga Titanium AWD UYF23
Skráður júní 2014, 2,0TDCi dísil, beinskiptur
Ekinn 25.000 km.
MENNING
Eins og nafnið gefur
til kynna þá erum við
beinlínis að fjalla um
byssumálið svokallaða.
Húsráð Gunnarshúss stendur
fyrir vikulegum höfundakvöld-
um í Gunnarshúsi fram að jólum.
Á hverju fimmtudagskvöldi
mæta tveir höfundar og spjalla
um bækur sínar, lesa aðeins úr
þeim, og síðan gefst áhorfendum
kostur á að spyrja líka. Meining-
in er að lyfta jólabókavertíðinni
aðeins upp úr fari hinna hefð-
bundnu upplestrarkvölda og gefa
hverri bók og hverjum höfundi
meiri tíma.
Í kvöld mæta þau Oddný Eir
Ævarsdóttir og Steinar Bragi,
lesa upp og svara spurningum
Höllu Oddnýjar Magnúsdóttur
um nýútkomnar bækur sínar,
Ástarmeistarann og Kötu. Allir
velkomnir á meðan stólar leyfa.
Oddný Eir og Steinar
Bragi í Gunnarshúsi
Á höfundakvöldi í Gunnarshúsi í kvöld verða bæk-
urnar Ástarmeistarinn og Kata í kastljósinu.
ODDNÝ EIR OG STEINAR BRAGI Höfundar kvöldsins eru ekki af verri endanum.