Fréttablaðið - 04.12.2014, Qupperneq 64
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 52
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2 og K100,5.
Auk þess er tekið mið af sölu og spilun á Tónlist.is og spilun á Spotify. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymundsson,
12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, Samkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Lucky Records, Vefverslun Record Records, N1 og tonlist.is
LAGALISTINN TÓNLISTINN
27.11.2014 ➜ 03.12.2014
1 Hozier Take Me To Church
2 Ásgeir Trausti Stormurinn
3 Jón Jónsson Gefðu allt sem þú átt
4 Ed Sheeran Thinking Out Loud
5 Amabadama Gaia
6 George Ezra Blame It On Me
7 Kaleo All The Pretty Girls
8 Dotan Home
9 Sam Smith I’m Not The Only One
10 Helgi Björns Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker
1 Skálmöld Með vættum
2 Ýmsir Fyrir börnin
3 Ýmsir SG jólalögin
4 Ýmsir Pottþétt jól (2014)
5 Raggi Bjarna 80 ára
6 Páll Rósinkranz og Margrét Eir If I Needed you
7 Gissur Páll Aría
8 Páll Rósinkranz 25 ár
9 Mannakorn Í núinu
10 AmabAdamA Heyrðu mig nú
Dagur íslenskrar tónlistar verður
haldinn hátíðlegur á föstudag. Af
því tilefni munu helstu útvarps-
stöðvar landsins spila þrjú
íslensk lög samtímis kl. 11.15.
Íslendingar geta því samein-
ast við viðtækin og sungið lög til
heiðurs íslenskri tónlist. Mark-
miðið er að fá sem flesta til að
kveikja á útvarpinu kl. 11.15 og
syngja með. Tilvalið er að safn-
ast saman á sal þar sem slíkur er
til afnota til að allir geti samein-
ast í söng.
Lögin sem urðu fyrir valinu í
ár eru lag Sigfúsar Halldórsson-
ar, Litla flugan, við texta Sigurð-
ar Elíassonar, Reyndu aftur, lag
og texti eftir Magnús Eiríksson
og Þannig týnist tíminn, lag og
texti eftir Bjartmar Guðlaugs-
son. Textar og gítargrip laganna
eru aðgengileg á Facebook-síðu
Syngjum saman!.
Þátttakendur eru hvattir til
þess að taka sönginn sinn upp á
myndband og senda á Facebook-
síðu Syngjum saman! í kjölfar
viðburðarins.
Dagur íslenskrar tónlistar og
verkefnið Syngjum saman! eru
haldin fyrir tilstuðlan hagsmuna-
samtaka tónlistarinnar undir for-
merkjum Samtóns.
Þrjú lög spiluð á Degi
íslenskrar tónlistar
Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn á morgun.
BJARTMAR GUÐLAUGSSON Lagið
Þannig týnist tíminn eftir Bjartmar
verður flutt á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sædís Sif Jónsdóttir gaf á dögun-
um út barnabókina Draumálfurinn
Dísa. Kveikjan að bókinni vaknaði
eftir að fyrsti sonur Sædísar kom í
heiminn. Þegar hann fór að stálpast
fór hún að horfa á barnaefni og lesa
barnabækur í auknum mæli.
„Upphaflega var ég að hugsa um
mín börn, af því að ég vildi að þau
vissu að ég myndi trúa á þau og
þeirra drauma. Svo langaði mig til
þess að hvetja önnur börn til þess að
trúa á sig og sína drauma.“
Bókin segir söguna af draum-
álfinum Dísu sem er óhrædd við að
láta sig dreyma og hvetur vini sína
tvo, bræðurna Manna og Danna sem
eru kóngulær, til þess að hafa trú á
sér. „Af því að ég er svolítið mikil
draumóramanneskja sjálf leit ég að
vissu leyti á mig sem draum álfinn.
Kóngulærnar eru synir mínir, þeir
eru litlu prakkararnir í kringum
draumálfinn,“ segir Sædís, sem á
synina Manúel Jón og Daníel Ísak.
Manúel Jón átti sinn þátt í því
að skapa draumálfinn Dísu en hún
var sköpuð að hluta út frá teikningu
eftir hann. „Það var svolítið þannig
að ég var alltaf að teikna eitthvað
á blað. Hann var duglegur að fylgj-
ast með mér af því að hann elsk-
ar að teikna með mér og tók eftir
því að ég var alltaf að teikna það
sama. Eitt kvöldið kemur hann með
teikningu til mín og þetta er fyrsti
draum álfurinn sem hann gerði.“
Sædís og myndskreytari bókar-
innar, Alyssa Erin, notuðu teikningu
Manúels Jóns sem fyrir mynd að
Dísu. Sædís útskrifaðist sem mark-
þjálfi fyrir rúmu einu og hálfu ári.
Það var í október eftir námskeiðið
Konur til athafna hjá Sigrúnu Lilju
Guðjónsdóttur, eiganda Gyðju
Collection, sem Sædís fylltist
krafti og ákvað að kýla á hug-
myndina. „Ég fór á námskeið
hjá Sigrúnu Lilju og fékk svaka
kraft úr námskeiðinu og fór
strax í þetta eftir það. Nám-
skeiðið var í október og
ég dreif bara í þessu.“
Þegar Sædís hafði
samband við bókafor-
lög tjáðu þau henni að hún
væri of sein til þess að koma
bókinni út á þessu ári en þá ákvað
hún að taka málin í sínar hendur og
gefa bókina út á eigin spýtur. Hún
hefur því séð um alla markaðssetn-
ingu og dreifingu á bókinni sjálf.
Draumálfurinn Dísa fæst
meðal annars í verslun-
um Eymundsson.
gydaloa@frettabladid.is
Hvetur börn til þess
að hafa trú á sér
Sædís Sif Jónsdóttir gaf nýverið út barnabókina Draumálfurinn Dísa, en bókinni
er ætlað er að hvetja börn til þess að hafa trú á sér og draumum sínum.
DRAUMÁLFURINN Dísa er
byggð á teikningu eldri sonar
Sædísar. MYND/ALYSSAERIN
Kanadíski plötusnúðurinn og takt-
smiðurinn Ryan Hemsworth mun
koma fram á tónleikahátíðinni
Sónar Festival í Hörpu 14. febrúar.
Hemsworth er rísandi stjarna í
heimi raftónlistarinnar en hann
hefur framleitt lög fyrir fjölda
rappara svo sem Deniro Farrar,
Sole og The Underachievers ásamt
því að endurhljóðblanda lög frá
ýmsum frægum tónlistarmönnum.
Þá framleiðir hann sína
eigin takta og er talinn vera
í fremstu röð framsækinnar
klúbba- og raftónlistar í heim-
inum. Hemsworth framleiðir
oft takta fyrir rappara sem eru
hluti af hinni nýju bylgju óhefð-
bundinna og öðruvísi rappara.
Ekki er reyndar búið að tilkynna
um komu Hemsworth af hálfu
Sónar Festival en fram kemur á
plakatinu fyrir komandi Evrópu-
túr Hemsworths að hann muni
stoppa í Reykjavík og spila á hátíð-
inni 14. febrúar.
Aðstandendur Sónar stað-
festa þetta í samtali við Frétta-
blaðið en Hemsworth verður
tilkynntur formlega í dag.
Þá verður einnig tilkynnt nafn í
tónlistarheiminum sem er að sögn
aðstandenda Sónar gríðarstórt.
Mun það eflaust verða raftón-
listar áhugamönnum á landinu til
mikillar gleði. - þij
Plötusnúður á upp-
leið spilar á Sónar
RYAN HEMSWORTH Framleiðir takta fyrir hina nýju bylgju rappara. NORDICPHOTOS/GETTY
MÆÐGIN Sædís er hér með sonum sínum, Manúel og Daníel, en þeir veittu henni
innblástur við gerð bókarinnar. MYND/STÚDÍÓLINNET
Enn stærra nafn verður tilkynnt í dag fyrir hátíðina.
LÍFIÐ
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR
Tobba Marínós-
dóttir
HVAR ER BÍONSÌ? Og JZ
fáðu þér þína eigin af-
mælisviku!! Djöf ætla ég að vona að
hann steli ekki þönderinu mínu eins
og þegar Ben „Smámaður“ Stiller
mætti í þitt afmæli Björk Eiðsdóttir
en talandi um bjútítips afhverju er
Ben með allt hárið sitt? #klipping
#stærrihauslengirþigekki
Hallgímur Helgason Fyrir röð til-
viljana raðaðist laugardagskvöldið upp í
pottþéttan pakka: Dirty Burger á Miklu-
braut, Gaukar í Borgarleikhúsinu og
Geirmundur á Kringlu kránni, þegar góðir vinir hitt-
ust óvænt í leikhúsinu … Besti borgarinn í borginni,
næstbesta leiksýningin og svo dansmaster Íslands
með „Ég er kominn heim“. Margar góðar setningar
í Gaukum. „Maður skilur ekki við sömu manneskju
og maður tók saman við.“ (Síðasta sýning í kvöld!)
En mikill svakalegur skiptibókamarkaður er þarna á
Kringlukránni.
Una Stef-
ánsdóttir
Það er fátt jafn
fallegt og að sjá
1 og hálfs árs gömul börn
dansa við Dave Brubeck …
kv. tónlistarkennarinn
á ungbarnaleikskóla
#djassuppeldi #djasseldi
#kennumþeimvel #djass-
dans #nomorelatibær
Valur
Gunn-
arsson
Inter-
stellar in brief: Last
people of Earth
go in search of an
inhabitable planet.
Find Iceland. Keep
on moving
Alma
Goodman
If you or
someone
you know is spending
the holidays in LA and
needs a place to stay
we’re renting out our
apartment in the heart
of Hollywood.. Message
me if you’re interested!
Beyoncé, Hollywood og Interstellar
FACEBOOK VIKUNNAR