Fréttablaðið - 04.12.2014, Side 68

Fréttablaðið - 04.12.2014, Side 68
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 56 Ofsótti meirihlutinn Það er algengt í umræðuhefð okkar nú á dögum að eldheitt hugsjónafólk missi sig í það sem kallað er pólitísk rétt- hugsun. Þeir sem eru hvað heitastir í því að reyna að hafa áhrif á ríkjandi og jafn- vel íhaldssöm viðhorf samborgara sinna fá oft í hausinn ásakanir um öfgar og ofstopa. ÞARNA á milli er jú þunn lína og hættan á að málefnaleg skoðun verði að pólitískri rétthugsun er vissulega til staðar. Þessar ásakanir eiga því oft rétt á sér, en stund- um alls ekki. ÞÓTT ótrúlegt megi virðast tel ég sjálfur að slíkar ásakanir eigi einmitt ekki rétt á sér þegar til dæmis hinn kristni meirihluti kvartar undan ofsóknum í sinn garð fyrir það eitt að fá hingað til lands heimsfræg- an hommahatara. Fá hann til þess að predika fyrir troð- fullri Laugardalshöll með heil- brigðisvottorð frá biskupi Íslands og þar með íslensku ríkiskirkjunni eins og hún leggur sig. SÚ samkoma vildi meina að hún yrði fyrir barðinu á ósanngjarnri pólitískri rétt- hugsun. Rökrétt, ekki satt? ÞAÐ er líka mjög krúttlegt þegar glað- lyndur lögreglumaður vælir undan hinni pólitísku rétttrúnaðarkirkju vegna þess að hann fær ekki að vera byssuglaður, íhalds- samur rasisti í friði. Fallegt líka hvað honum fannst það frábær hugmynd að skrifa grein sem hann taldi vera svo langt út fyrir boxið að hún hlyti að færa viðmið normsins út á jaðar hinnar framsæknu hugsunar og gera samfélagið okkar miklu betra á eftir. Hún átti að skapa samúð með þjáðum meirihlutahópum. Þá segi ég eins og skáldið, fyrirgefðu á meðan ég æli. ÞAÐ er nefnilega þannig að þeir sem vilja saka aðra um pólitíska rétthugsun þurfa eðli málsins samkvæmt að geta útskýrt í hverju sú meinta rétthugsun felst. Sumir virðast ekki gera sér grein fyrir þessu og telja jafnvel um leið að hommafóbía þeirra og rasismi geti í einhverjum tilfellum tal- ist til heilbrigðrar afstöðu. Slíku fólki veit- ir sennilega ekki af góðri messu í pólitísku rétttrúnaðarkirkjunni. Meghan Trainor segir að Jenni- fer Lopez hafi gefið henni góð ráð í ástamálunum á American Music Awards í síðasta mánuði. „Ég hitti Jennifer Lopez á AMA-hátíðinni og hún var ótrú- lega svöl. Hún var frábær, alveg eins og ég vonaðist eftir,“ sagði söngkonan. „Ég sagði við hana: „Hvernig færðu menn til að tala við þig og daðra við þig?“ Vegna þess að ég er listmaður núna þá á ég í vandræðum með þetta. Hún sagði: „Vertu mjög vandlát og vertu meðvituð um hvers virði þú ert. Að þú ert æðisleg og að þú þurfir að setja þér háleitt mark- mið“,“ sagði Trainor og var mjög sátt við hin góðu ráð. Fékk ástarráð frá Lopez MEGHAN TRAINOR Jennifer Lopez kom Trainor til aðstoðar á AMA-hátíð- inni. NORDICPHOTOS/GETTY BAKÞANKAR Frosta Logasonar TÓNLIST ★★★ ★★ Heyrðu mig nú AmabAdama RECORD RECORDS Það er varla hægt að tala um „reggí-endurreisn“ á Íslandi, því það er ekki eins og það hafi verið til einhverjar reggíhljómsveitir hér á landi fyrir aldamót. AmabAdama er nýjasta viðbót- in í þessa reggí … reisn (?) sem hófst fyrir rúmum áratug með tímamótaplötu Hjálma, Hljóðlega af stað. Hljóðheimur fyrstu plötu sveitarinnar, Heyrðu mig nú, er nokkuð frábrugðinn þeim sem aðdáendur Hjálma eða jafnvel Ojba Rasta hafa vanist. Þær sveitir sækja ef til vill meira í gulltímabil tónlistarstefnunnar sem kennd er við Jamaíku um miðbik 8. áratug- ar síðustu aldar, líkja eftir hráum gítartaktinum, þykkum bassalín- um og skreyta með tilkomumikl- um lúðrahljómi – jafnvel ákveðnu dub-fikti í tilfelli Ojba Rasta. AmabAdama sækir í „dance- hall“-afbrigði stefnunnar þar sem Magnús Jónsson, eða Gnúsi Yones, er í hlutverki talandi plötusnúðar- ins, eða rapparans. Þær Steinunn Jónsdóttir og Salka Sól Eyfeld syngja svo og rappa á víxl og gera það vel. Á þetta sérstaklega við um smellina tvo sem verða líklega vin- sælustu lög ársins 2014 á Íslandi, Gaia og Hossa hossa. Miðað við vinsældir laganna hljóta Íslend- ingar að geta gert ráð fyrir því að einhver lagahöfundur sitji nú sveittur að semja næsta reggí- smell fyrir sumarið 2015; tvímæla- laust besta leiðin til að geta kveikt í vindlum með einum góðum Jón- asi, sé eitthvað að marka síðustu sumur. En, Heyrðu mig nú! Þessi fyrsta breiðskífa AmabAdömu er mjög frambærileg. Það er helst að í áðurnefndum smellum, sem og í lögunum Það sem þú gefur og Her- menn, beri á „óverpródúseruðu“ reggísándi, sem er reyndar ein- kennandi fyrir danshallarstefn- una. Eldorado, Babylonkirkja og Óráð eru hægari, með hrárra gít- arriffi og frjálslegri notkun á lúðr- um til að stækka hljóðheiminn – allt mjög gott. Boðskapur plötunnar er líka svo jákvæður, ekki slæmt í skamm- deginu og jólastressinu. Hugsum um að lifa lífinu lifandi, verum góð hvert við annað og gleymum ekki þeim sem minna mega sín. Heimurinn hefur alla burði til að vera betri staður og allt það. Hei, af hverju ekki? Eitt samt: Eldorado er (aðeins of) keimlíkt laginu Bald- ursbrá með Ojba Rasta. Björn Teitsson NIÐURSTAÐA: Frambærileg fyrsta breiðskífa sem hefur að geyma helstu sumarsmelli ársins en önnur lög leyna einnig á sér. Sumarsmellir í skammdeginu AMABADAMA Tónlistarmaðurinn Sindri Eldon hefur nú gefið út fyrstu form- legu sólóplötu sína ásamt hljóm- sveit sinni The Ways á vegum Smekkleysu. „Það hafði eiginlega enginn annar áhuga,“ segir Sindri og hlær. „Ég var svolítið fúll út í Smekkleysu af því að þeir skitu svolítið á sig með útgáfu þegar ég var í pönksveitinni Slugs fyrir nokkrum árum. Ég var mjög reiður út í þá en þeir hafa nú reyndar reynst mér ágæt- lega, ég ákvað að gefa þeim séns. Það hefur gengið betur heldur en með Slugs en ég held að þeir hafi líka alveg vitað upp á sig skömmina og verið til í að gera betur.“ Platan, sem heitir Bitter & Resentful var tekin upp í Studio Paradís og í Studio Tónaslóð með Danna Pollock og föður Sindra, Þór Eldon. „Pabbi tók upp gítarinn og sönginn. Uppi í Tónaslóð eru alls konar gítarar, magnarar og effektar liggjandi út um allt ásamt hágæða söngupptöku- græjum. Það var ótrúlega næs, maður var oft hangandi úti á Granda með pabba í þynnkunni að drekka kaffi og taka upp gítar. Það var bara mjög kósí.“ - þij Kósí að taka upp í þynnkunni með pabba Bitter & Resentful með Sindra Eldon & The Ways er komin út á vegum Smekkleysu. Save the Children á Íslandi SINDRI ELDON Hefur gefið út sína fyrstu formlegu sólóplötu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Grínistinn Chris Rock, sem frum- sýnir nýju myndina sína, Top Five, um helgina í Bandaríkj- unum, er í opinskáu viðtali við tímaritið New York þar sem hann segir skoðun sína á ýmsu, eins og óeirðunum í Ferguson. „Við vitum nú þegar hvernig svörtu fólki líður varðandi atburðina í Ferguson – það er hneykslað, í uppnámi, og líður eins og það hafi verið svikið af kerfinu. Ef ég væri fréttamaður í Ferguson myndi ég spyrja hvítt fólk spurn- ingar sem engum dytti í hug, og þá myndum við vera með ótrúleg- ustu viðtöl allra tíma.“ Þá segist hann hafa óbeit á hugtakinu „racial progress“ eða „kynþáttarlegar framfar- ir“. „Þetta er bull. Hvítt fólk var klikkað einu sinni. Núna er það ekki jafn klikkað. Það að segja að svörtum hafi farið fram er eins og að segja að þeir hafi átt skilið það sem kom fyrir þá áður.“ Chris Rock í opinskáu viðtali CHRIS ROCK Frumsýnir nýju myndina sína um helgina. MOCKINGJAY KL. 6 - 9 - 10.30 DUMB AND DUMBER KL 5.30 - 8 - 10.30 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 5.15 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 5.30 ST. VINCENT KL. 8 NIGHTCRAWLER KL. 8 GRAFIR OG BEIN KL. 10.30 MOCKINGJAY KL. 5 - 8 - 10.45 MOCKINGJAY LÚXUX KL. 5 - 8 - 10.45 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.15 - 5.30 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 3D KL. 3.15 - 5.30 MÖRGÆSIR ENSKT TAL 3D KL. 8 DUMB AND DUMBER KL.3.30 - 6 - 8 - 10.30 GONE GIRL KL.10.15 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK EMPIRENEW YORK POST TIME OUT LONDON VARIETY LOS ANGELES TIMES siSAM 5:30, 7, 10(P) 5 5:30, 8, 10:20 8, 10:30

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.