Ægir

Volume

Ægir - 01.06.2015, Page 19

Ægir - 01.06.2015, Page 19
19 Vélar og framdrifsbúnaður frá Marás Nýsmíði Samherja, Útgerðarfélag Akureyringa og FISK Seafood Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað Marás ehf. Miðhraun 13 - 210 Garðabær Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230 www.maras.is TOIMIL generationpower STAMFORD AUTOMATION TECHNOLOGY Við leggjum metnað okkar í að bjóða aðeins fyrsta flokks búnað og þjónustu Birtar hafa verið niðurstöður sameiginlegs makrílleiðangurs Færeyinga, Íslendinga, Norð- manna og Grænlendinga sem farinn var á tímabilinu 1. júlí til 10. ágúst sl. Í honum tóku þátt fjögur skip, þ.e. tvö frá Noregi, eitt frá Færeyjum og rannsókn- arskipið Árni Friðriksson af Ís- lands hálfu. Í stuttu mál sýndu niðurstöður leiðangursins að vísitala makríls innan íslenskr- ar lögsögu hefur aldrei mælst jafn há og segir á heimasíðu at- vinnuvegaráðuneytisins að engum vafa sé undirorpið að sú staðreynd styrki stöðu Íslands í komandi samningaviðræðum um hlut í makrílveiðum. Markmið rannsóknarleið- angursins var að kortleggja út- breiðslu og magn makríls og annarra uppsjávarfiskistofna í Norðaustur Atlantshafi meðan á ætisgöngum þeirra um Norð- urhöf stendur en kanna um leið ástand sjávar og átustofna á hafsvæðinu. Öll notuðu þátt- tökuskipin samskonar flotvörpu sem sérstaklega hefur verið þróuð fyrir þessar rannsóknir en rannsóknaskipið Árni Frið- riksson var að taka þátt í þeim í áttunda sinn. Magn og útbreiðsla makríls á svæðinu var metin út frá afla í stöðluðum togum sem tekin voru með reglulegu millibili og var rannsóknasvæðið um 2,7 milljón ferkílómetrar. Heildar- vísitala makríls á svæðinu, svo- kallaður lífmassi, var metin um 7,7 milljónir tonna, þar af voru tæp 2,9 milljónir tonna innan ís- lenskrar efnahagslögsögu. Það svarar til rúmlega 37% af heild- arvísitölunni. Heildarvísitalan mældist í ár 1,3 milljónum tonna lægri en á síðasta ári en þá var hún raunar sú hæsta síðan rannsóknirnar hófust árið 2007. Vísitala makríls innan íslenskrar lögsögu hefur hins vegar aldrei verið eins há og í ár, en síðustu þrjú ár var vísitalan þar um 1,6 milljón tonn. Á öðrum svæðum var magnið minna en á síðasta ári. Þéttastur var makríllinn suður af Íslandi og náði útbreiðslan þar sunnar en áður hefur sést. Heildarstærð svæðisins sem kannað var í ár var lítið eitt stærra en á síðasta ári en eins og undanfarin ár, var aðeins lítill hluti lögsögu Evrópusambands- ins kannaður. Metmæling á makríl styrkir samningsstöðuna F isk ira n n sók n ir Hinn umdeildi makríll gerði sig heimakominn á hafsvæðinu við Ísland í sumar, líkt og síðustu ár.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.