Gerðir kirkjuþings - 1974, Síða 2
Níunda kirkjuþing þjóðkirkju Islands hófst miðvikudaginn 30- október
1974 kl. 14 með guðsþjónustu í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Sr.
Eiríkur J. Firíksson, prófastur á Þingvöllumj kirkjuþingsmaður,
predikaði og þjónaði fyrir altari, 1 guðsþjónustunni voru eingöngu
sungnir sálmar eftir sr. Hallgrím Pétursson, enda var guðsþjónustan
jafnframt helguð 300. ártíð hans. Að guðsþjónustu lokinni var gengið
í fundarsal Hallgrímskirkju þar sem biskup setti kirkjuþing og bauð
þingfulltrúa velkomna til starfa. Hann minntist í ávarpi sínu nýlátins
þingfulltrúa, frú Jósefínu Helgadóttur, er andaðist 17* sept. þiá.
8l áiN3 að aldri, f. 30. júlí 1893* Hún var kirkjuþingsmaður frá
árinu 1964 fyrir 4. kjördæmi. Kirkjuþingsmenn heiðruðu minningu frú
Jósefínu með því að rísa úr sætum.
Biskup bauð velkominn til þings varaþingmann 4. „kjördæmis, Eðvald
Halldórsson, Hvamstanga.
Við þingsetningu voru fulltrúar kirkjumálaráðherra viðstaddir, Baldur
Möller ráðuneytisstjóri og Bergur Pálsson fulltrúi. Sjáifur var
kirkjumálaráðherra erlendis.
Á þessum fyrsta fundi var kosin kjörbréfanefnd til þess að úrskurða
kjörbréf Eðvalds Halldórssf'nar. Þessir voru kosnir:
Sr. Gunnar Árnason,
Sr. Sigurður Kristjánsson,
Sr. Pétur Ingjaldsson,
Ástráður Sigursteindórsson,
Þórður Tómasson.
Á öðrum fundi, að loknum úrskurði kjorbréfs voru kosnir 1. "g 2. vara-
forseti. Sr. Eiríkur J. Eiríksson var kjörinn 1. varaforseti, sr.
Gunnar Árnason 2. varaforseti (hlutkesti milli hans og sr. Bjarna
Sigurðssonar, 4.atkv. hvor).
Þingskrifarar voru kjörnir þeir Ástráður Sigursteindórsson og Þórður
Tómass^n (11 atkv. hvor).
Þá voru kosnar fastanefndir þingsins.
í löggjafarnefnd:
Sr. Bjarni Sigurðsson,
Sr. Gunnar Árnasrn,
Sr. Sigurður Guðmundsson.
Gunnlaugur Finnsson,
Ástráður Sigursteindórsson,
Sr. Eiríkur J. Eiríksson,
Sr. Pétur Ingjáldsson,
Ásgeir Magnússon.
í allsherjarnefnd:
Sigurjón Jóhannesson,