Gerðir kirkjuþings - 1976, Page 2
Kirkjúþing þjóðkirkju íslands hófst með messu í Hallgrímskirkju
í Reykjavík fóstudaginn í$. október kl. ló. Sr. Sigurður
Guðmundssen, prófastur á Grenjaðarstað, kirkjuþingsmaður, prédikaði
og þjónaði fyrir altari ásamt sr. Ragnari F. iárussyni, sóknarpresti
í Hallgrímsprestakalli. Að messu lokinni var gengið í fundarsal
Hallgrímskirkju Þar sern biskup setti þingið.
Þetta var 10. kirkjuþing og hið fyrsta á nýju kjörtímabili, hinu
fjórða í röðinni. Biskup bauð þingfulltrúa velkomna. Viðstaddir
þingsetningu voru f.h. kirkjumálaráðherra, þeir Baldur Möller,
ráðuneytisstjóri og Þorleifur pálsson, fulltrui.
Talsverðar breytingar höfðu orðið a þingliði við nýafstaðnar
kosningar, af 15 kjörnum fulltruum voru 7 nykjörnir, en tveir
Þeirra höfðu setið á Þingi áður sem varamenn. Einn nýkjörinna
fulltrúa sr. Þorbergur Krist jansson_, hafði verið fulltrui aður,
þá fyrir 3- kjördæmi, nú fyrir 1. kjördæmi. Þingmaður 7* kjörd.,
Þérður Tómasson^ boðaði forföll_» og sat fyrri varamaður kjördæmisisns,
JÓn Guðmundsson, þingið. Þingm. 4. kjördæmis, Helgi Rafn Traustason,
varð vegna annarra skyldustarfa að hverfa af þingi að halfnuðum
þingtíma og gat hvorugur varamanna kjördæmisins komið til þings.
1 ávarpi sínu í þingbyrjun minntist biskup Þriggja latinna
kirkjuþingsmanna. Þeir éru:
1. ÞÓrður Möller, yfirlæknir^ er var þingmaður 1. kjöraæmis kjöf-
tímabilið 1964-70. Hann andaðist 2. ágúst 1975, 59 ára að
aldri.
2. Asgeir Magnússon, forstjóri, kjörinn fyrir 2. kjördæmi 1970
og á því þingi var hann kosinn í kirkjurað. Hann andaðist 10.
sept. 1976 og var þá 54 ára að aldri.
3. jóhann Hannesson, prófessor, þingmaður Guðfræðideildar síðasta
kjörtímabil, andaðist 21. sept. 1976 a 66. aldursari.
Þingmenn vottuðu þessum mætu mönnum virðingu sina og þakkir og
sendu ástvinum þeirra ?amúðarkveðjur.