Gerðir kirkjuþings - 1976, Side 6
- 5 -
1976
10. Kirkjuþing
1. mál
Frumva rp
til laga um veitingu prestakalla.
Fl.m. biskup.
1. gr.
Þegar prestakall losnar og prestur er eigi kallaður til embættisins
(sbr. 6. gr), auglýsir biskup kallið með hæfilegum umsóknarfresti.
2. gr.
Að liðnum umsóknarfresti sendir biskup prófasti hlutaðeig&adi
prófastsdæmis, sé hann eigi umsækjandi, svo og sóknarnefndum
prestak.allsins, skrá yfir þá, er sótt hafa, ásamt skýrslu um aldur
þeirra, náms- og embættisferil og störf. Jafnframt sendir hann
prófasti nægilega marga atkvæðaseðla með nöfnum umsækjenda, *g
felur honum að boða kjörmenn prestakallsins á sameiginlegan fund
innan tiltekins tíma.
Kjörmenn eru: Sóknarnefndarmenn og safnaðarfulltrúar prestakallsins
( aðalmenn)). Fyrsti varamaður tekur sæti aðalmanns, ef forfallaður
er. Ef safriaðarfulltrúi er jafnframt sóknarnefndarmaður tekur
varamaður sæti hans í sóknarnefnd.
Se prófastur héraðsins umsækjandi um kallið, nefnir biskup annan
prófast til í hans stað.
3- gr.
Á kjörmannafundi skulu umsóknir ásamt umsögnum biskups liggja frammi
til athugunar. Fundurinn er lokaður og stýrir prófastur honum. Ef
meirihluti kjörmanna samþykkir, að kjör skuli fram fara, skal það
framkvæmt með þeim hætti, sem segir í 4. gr. Að öðrum kosti ráðstafar
kirkjumálaráðherra embættinu að fenginni tillögu biskups.
4. gr.
Ef samþykkt er, að kjör fari fram, ákveður prófastur kjörfund kjörmanna
þá þegar eða næsta dag hið síðasts. Kjörfundur er lokaður og stýrir
prófastur honum. Fer þar fram leynileg skrifleg atkvæðagreiðsla um
umsækjendur. Prófastur afhendir hverjum kjörmanna einn atkvæðaseðil