Gerðir kirkjuþings - 1976, Page 6

Gerðir kirkjuþings - 1976, Page 6
- 5 - 1976 10. Kirkjuþing 1. mál Frumva rp til laga um veitingu prestakalla. Fl.m. biskup. 1. gr. Þegar prestakall losnar og prestur er eigi kallaður til embættisins (sbr. 6. gr), auglýsir biskup kallið með hæfilegum umsóknarfresti. 2. gr. Að liðnum umsóknarfresti sendir biskup prófasti hlutaðeig&adi prófastsdæmis, sé hann eigi umsækjandi, svo og sóknarnefndum prestak.allsins, skrá yfir þá, er sótt hafa, ásamt skýrslu um aldur þeirra, náms- og embættisferil og störf. Jafnframt sendir hann prófasti nægilega marga atkvæðaseðla með nöfnum umsækjenda, *g felur honum að boða kjörmenn prestakallsins á sameiginlegan fund innan tiltekins tíma. Kjörmenn eru: Sóknarnefndarmenn og safnaðarfulltrúar prestakallsins ( aðalmenn)). Fyrsti varamaður tekur sæti aðalmanns, ef forfallaður er. Ef safriaðarfulltrúi er jafnframt sóknarnefndarmaður tekur varamaður sæti hans í sóknarnefnd. Se prófastur héraðsins umsækjandi um kallið, nefnir biskup annan prófast til í hans stað. 3- gr. Á kjörmannafundi skulu umsóknir ásamt umsögnum biskups liggja frammi til athugunar. Fundurinn er lokaður og stýrir prófastur honum. Ef meirihluti kjörmanna samþykkir, að kjör skuli fram fara, skal það framkvæmt með þeim hætti, sem segir í 4. gr. Að öðrum kosti ráðstafar kirkjumálaráðherra embættinu að fenginni tillögu biskups. 4. gr. Ef samþykkt er, að kjör fari fram, ákveður prófastur kjörfund kjörmanna þá þegar eða næsta dag hið síðasts. Kjörfundur er lokaður og stýrir prófastur honum. Fer þar fram leynileg skrifleg atkvæðagreiðsla um umsækjendur. Prófastur afhendir hverjum kjörmanna einn atkvæðaseðil

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.