Gerðir kirkjuþings - 1976, Side 12

Gerðir kirkjuþings - 1976, Side 12
- 11 fulltrúar hvers kjördæmis kjósa úr sínum hópi einn kirkjuþings- mann fyrir kjördæmið og tvo varamenn. 1 1. kjördæmi skulu þessir aðilar þó kjósa tvo kirkjuþingsmenn og tvo til vara. 5-gr Önnur málsgrein 7- greinar orðist svo: Kjosandi ritar nafn þess ( í 1. kjördæmi nöfn þeirra ), sem hann vill kjósa, svo og nöfn p. og 2. varamanns^ á seðilinn^ setur hann í outanaritaða umslagið og lokar því, útfyllir eyðuhlaðið og undirritar og sendir síðan £ áprentaða umslaginu til kjörstjórnar í ábyrgðarpósti. Greinarg£rð_ £g_athuga_S£mdir. Með frumvarpi þessu er iagt til, að su breyting verði gerð a gildanai lögum um kirkjuþing og kirkjurað, að kjördæmum verði fjölgað um^eitt og kirkjuþingsfulltrúum um íjóra. Lagt er til, að Reykjavikurprofasts- dæmi fái fjóra fulltrúa og að Kjalarnessprófastsdæmi og^allt Vestur- land, sem nú eru til samans eitt kjördæmi^ verði skipt í tvö. Verður að telja þá skiptingu mjög eðlilega_, og er hún í fullu samræmi við. aðra skiptingu landsins í umdæmi, svo sem sl: iptingu þess 1 kjördæmi -fcil Alþingiskosninga, fræðsluumdæmi, landshlutasamtök sveitarfelaga o.fl. Bent er á, að síðan lög þessi voru sett fyrir tæpum 20 árum hefur orðið gífurleg fólksfjölgun í Reykjavíkur-^og Kjalarnessprofastsdæmum. Jafnframt hefur prestsembættum í þessum prófastsdæmum fjölgað mikið og mun fjölga enn á næstu arum. 1 Reykjavikurprofastsdæmi hefur prestum t.d. fjölgað um meira en helming, eða úr 9 í 19- í Kjalarness- prófastsdsemi eru prestaköll nu 10 og verða væntanlega 11 fra næstu áramótum, og á Vesturlandi eru prestaköll lþ. Ceðlilegt verður að telja, að svo mörg prestaköll, 2b að tolu, myndi eitt k jördæmi, þá kosið er til kirkjuþings_, þegar t.d. Vestfirðir með 10 prestaköll mynda heilt kjördæmi. Með tillögum þessum er tekið tillit til breyttra aðstæðna vegna fólksfjölgunar, breytinga á skipan prestakalla o.fl. og stefnt að meiri jofnuði og jafnretti að því er varðar skipan kirkjuþings og rétt einstakra landshluta til áhrifa þar. Vísað til löggjafarnefndar. (Frsm. sr. Sigurður Guðmundsson.) Alit hennar var það að hún lagði til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt og var það gert.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.