Fréttablaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 36
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN TÆKNI | 34
Allt frá því að Oculus Rift-sýndarveruleikagleraug-un skutu upp kollinum á hópfjármögnunarsíð-unni Kickstarter í ágúst árið 2012 hefur bylting
vofað yfir tölvuleikjaiðnaðinum.
Þremur árum síðar erum við enn
að bíða. Mikið vatn hefur þó runnið
til sjávar. Facebook hefur eignast
Oculus VR, framleiðanda Rift-gler-
augnanna, fyrir litla 230 milljarða
króna og tugir tækni- og leikjafyrir-
tækja af öllum stærðargráðum hafa
nú sambærilega tækni í þróun.
Rift á næsta leiti
Forstjóri Oculus VR, Brendan Iribe,
var ekki lengi að sannfæra leikja-
heiminn um að byltingin sem lofað
var væri sannarlega á leiðinni þegar
hann steig á svið í troðfullum ráð-
stefnusal í San Francisco síðasta
fimmtudag. Hann tilkynnti að Rift-
gleraugun myndu koma á markað
á fyrsta ársfjórðungi næsta árs og
svipti jafnframt hulunni af endan-
legri útgáfu Oculus Rift. „Þau eru
létt, þú getur haldið á þeim í annarri
hendi. Þetta er ekki ósvipað því að
vera með venjuleg gleraugu.“
Iribe gat ekki upplýst ráðstefnu-
gesti um hvenær gleraugun fara í
sölu eða hvað þau munu kosta. Ocu-
lus VR verður áberandi á E3-leikja-
ráðstefnunni árlegu í Los Angeles
sem haldin er í mánuðinum en lík-
legt þykir að Iribe muni þar kynna
útgáfudag og verð. Flest bendir til
að Rift muni kosta á bilinu 25.000
til 50.000 krónur.
Þá kynnti Iribe einnig Oculus
Touch til leiks, afar nýstárlegan
stýripinna fyrir gleraugun sem
les og nemur hreyfingu handanna
í þrívíðu rými og birtir spilaran-
um í sýndarveruleika. Þetta gerir
honum kleift að teygja út hendurn-
ar og hafa áhrif á sýndarumhverf-
ið. Stýripinnarnir nema einnig stað-
setningu og hreyfingu fingranna.
Þessi tækni nýtist aðeins í leikj-
um og hugbúnaði sem hannaður er
frá grunni fyrir sýndarveruleika.
Slíkur hugbúnaður er af skornum
skammti. Þannig kynntu stjórnend-
ur Oculus VR einnig tímamótasam-
starf við Microsoft og munu spilara
geta notað Xbox One-stýripinnann
með gleraugunum.
Með frá byrjun
Þegar kemur að sjálfum hugbún-
aðinum hefur Oculus VR boðið
fjölbreyttum hópi leikjaframleið-
anda að þróa leiki fyrir Rift-gler-
augun. Stjórnendur þessara fyrir-
tækja stigu á svið í San Francisco
á fimmtudaginn og kynntu fyrstu
kynslóð tölvuleikja fyrir sýndar-
veruleika. Mörg þeirra voru með
fyrstu stuðningsaðilum Rift-verk-
efnisins, þar á meðal CCP, fram-
leiðandi EVE: Online. Hilmar Veig-
ar Pétursson, framkvæmdastjóri
CCP, var fyrstur á svið í San Franc-
isco og sagði það hefð hjá CCP að
afmá línur milli raunheims og sýnd-
arheims. Mantra fyrirtækisins væri
að skapa sýndarheima sem hafa
meiri þýðingu en raunheimurinn.
„Þetta er nokkuð klikkuð fullyrð-
ing,“ sagði Hilmar Veigar. „Og við
höfum oft tekist á um hana innan
fyrirtækisins. En nú, þegar við
verðum vitni að upphafi sýndar-
veruleikans, held ég að við höfum
ekki tilefni lengur til að afsaka
okkur.“
Eitthvað allt annað
Þróun EVE: Valkyrie hófst með
fyrstu tilraunaútgáfu Rift-gler-
augnanna og verður með fyrstu
fáanlegu leikjum á endanlegri
útgáfu þeirra. Leikurinn er jafn-
framt fyrsta raunverulega (ef svo
má að orði komast) tilraun CCP með
sýndarveruleika. Spilarinn æðir
um himintunglin í lítilli orrustu-
þotu og tekur þátt í loftbardögum
þegar spilarar hvaðanæva úr heim-
inum mætast. Leikurinn hefur vakið
gríðarlega athygli. Það er spilunin,
það hvernig sýndarveruleiki er nýtt-
ur til að hafa áhrif á leikinn, sem
leikjahönnuðir reyna nú að skilja og
læra á.
„Með endanlegri útgáfu Oculus
Rift-gleraugnanna getum við sagt
að þú kemst ekki nær því að vera
raunverulegur flugmaður í geim-
orrustuþotu en með EVE: Valkyrie,“
sagði Hilmar Veigar.
Stríðið um sýndarheima hefst
Oculus Rift-sýndarveruleikagleraugun verða fáanleg snemma á næsta ári. Bylting er í vændum
í tölvuleikjaiðnaðinum og hið íslenska fyrirtæki CCP, ásamt öðrum, er í framvarðasveit hennar.
OCULUS TOUCH Luckey með sýndarveruleikagleraugun og Oculus Touch-stýripinnana.
NORDICPHOTOS/GETTY
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@365.is
SWARM
Ég „checka“ mig inn og læt mína nánustu
vini vita hvar ég er. Þetta er eiginlega
orðin dagbókin mín. Appið safnar líka töl-
fræði um hversu oft ég hef farið á staði.
FACEBOOK MESSENGER
Hægt að hafa samband við alla og lang-
flestir eru á Facebook. Hægt og rólega
að taka yfir SMS.
SUNRISE CALENDAR
Það var ekki nóg að sjá fundi
vikunnar. Sunrise getur bætt
við uppáhaldsíþróttaliðunum
þínum og hvenær þínir
uppáhaldssjónvarpsþættir
eru sýndir!
TWITTER
Langskemmtilegasti sam-
félagsmiðillinn finnst mér.
Magnús
Sigurbjörnsson
framkvæmda-
stjóri borgar-
stjórnarhóps
Sjálfstæðis-
flokksins
UPPÁHALDS
ÖPPIN8
3G 9:41 AM
Twitter Sunrise
Calendar
Product Hunt
Swarm SwiftKey
King of Booze
SWIFTKEY KEYBOARD
SwiftKey-lyklaborðið er tilbreyting fyrir
alla sem eru komnir með leið á venjulega
lyklaborðinu. Lyklaborðið stingur upp á ís-
lenskum orðum eftir því hvernig þú skrifar á
lyklaborðið.
LEGGJA
Hefur sparað mér tíma og stöðumælasektir.
PRODUCT HUNT
Ég hef gaman af að uppgötva nýja hluti.
Nýjustu öppin, vörurnar eða vefsíðurnar–
allt á sama stað.
KING OF BOOZE
Ég var að leita að skemmtilegum leik í
partýið um daginn og rakst á þennan sem
heitir King of Booze. Leikurinn er settur
upp sem borðspil þar sem partígestir leysa
skemmtilegar þrautir. Hvet alla til að prófa ef
þá vantar hugmynd í partí helgarinnar.
BLETTIR Á DVERGPLÁNETU
Dawn-könnunarfarið náði mynd af
sérkennilegum blettum Ceres.
Bandaríska geimvísindastofnun-
in NASA hefur birt nýjar myndir
af skærum blettum á yfirborði
dvergplánetunnar Ceres í smá-
stirnabeltinu milli Mars og Júp-
íters. Að mati vísindamanna hjá
NASA er líklegt að fyrirbærið
sé tilkomið vegna samspils salts
og íss en þeir viðurkenna þó að
margt sé enn á huldu um blettina.
Flekkirnir eru staðsettir í 90
kílómetra breiðum gíg. „Björtu
blettirnir á Ceres eru einstakir
og eitthvað sem við höfum aldrei
séð áður í sólkerfinu,“ sagði Chris
Russell, yfirmaður Dawn-verk-
efnisins hjá NASA. Könnunar-
farið Dawn myndaði blettina úr
4.000 kílómetra hæða í vikunni
en það mun rannsaka yfirborð
dvergreikistjörnunnar næsta
árið.
Vísindamenn telja að að Ceres
hafi eitt sinn stefnt í að verða
pláneta á stærð við Jörðina eða
Mars. Vonir standa til að Dawn-
könnunarfarið varpi ljósi á hvað
leiddi til þess að Ceres hætti að
stækka.
Skærir
blettir Ceres
myndaðir
Messenger Leggja
tímanlega. Ekki geyma það til síðasta dags
skila atkvæði þínuMundu að
FLÓABANDALAGIÐ
ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. júní
22. júní er síðasti dagurinn sem þú hefur til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana
�