Fréttablaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 72
| ATVINNA |
Staða leikskólastjóra við leikskólann Jörfa
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Jörfa.
Leikskólinn Jörfi við Hæðargarð er fjögurra deilda leikskóli í fallegu umhverfi í Bústaðahverfi.
Í leikskólanum er lögð áhersla á tilfinningatjáningu og lífsleikni. Aðal áhersluþættirnir eru góð sjálfsmynd, samskipti og félags-
færni. Stuðst er við hugmyndafræði Kari Lamer, John Dewey og Caroline Pratt. Gildi leikskólans eru virðing – gleði – umhyggja.
Leitað er að einstakling sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til þess að leiða áfram metnaðarfullt leikskólastarf í
Jörfa.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreyti-
lega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin
fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni.
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu
Reykjavíkurborgar.
• Hafa yfirumsjón með daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og
starfsmenn.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2015. Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2015.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólahluta fagskrifstofu, sími 411 1111.
Netfang: hildur.skarphedinsdottir@reykjavik.is
LÍFLAND ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA
STARFSMANN Í VERSLUN LYNGHÁLSI 3
Helstu verkefni:
• Almenn verslunarstörf
Hæfniskröfur:
• Söluhæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð þekking á reiðvörum og/eða búvörum
• Fagleg framkoma og almenn snyrtimennska nauðsynleg
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudeginum
17. júní 2015.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Þór Logason í síma:
540 1104.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda
umsókn og ferilskrá á atvinna@lifland.is
Seltjarnarnesbær seltjarnarnes.is
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru konur
jafnt sem karlar hvött til að sækja um starfið.
Á Seltjarnarnesi búa um 4500 manns.
Lögð er áhersla á að tryggja íbúum góða alhliða þjónustu.
Sótt er um starfið á vef Seltjarnarnesbæjar, seltjarnarnes.is –
Störf í boði.
Óskað er eftir að ráða félagsráðgjafa í fullt starf. Helstu
verkefni starfsins eru félagsleg ráðgjöf og fjárhags-
aðstoð, barnavernd, málefni fatlaðra og forvarnir.
Einnig önnur verkefni sem falla undir lög um félags-
þjónustu sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Starfsréttindi í félagsráðgjöf
Lipurð í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní n.k.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur
fyrir. Starfsferilsskrá skal fylgja umsókn um starfið.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launa-
nefndar sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september n.k.
Nánari upplýsingar veitir
Snorri Aðalsteinsson félagsmálastjóri.
snorri@seltjarnarnes.is sími: 5959100
Félagsþjónusta Seltjarnarnesbæjar
Auglýst eftir félagsráðgjafa við
Félagsþjónustu Seltjarnarness
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á
www.nordicvisitor.com/atvinna/
Umsóknarfrestur er 21. júní 2015.
Æskilegt er að viðkomandi hafi ferðast um eða búið í Noregi
og skilyrði er að viðkomandi tali norsku, auk íslensku og ensku.
Nordic Visitor er framsækin ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í
því að skapa góðar minningar með sérsniðnum pakkaferðum
fyrir einstaklinga og hópa til allra Norðurlanda.
Fyrirtækið hefur verið í stöðugum vexti síðan það var stofnað
árið 2002 og er í dag eitt af stærstu ferðaþjónustufyrirtækjum
Íslands með um 60 starfsmenn.
Nordic Visitor leitar eftir metnaðarfullum ferðaráðgjafa til að
sinna sölu og úrvinnslu á ferðum til Noregs.
FERÐARÁÐGJAFI
Farangursþjónusta
80% starfshlutfall. Unnið er ýmist frá 08-17 eða 18-02 eftir vaktakerfinu 2-2-3.
Í starfinu felst skýrslugerð og ýmis þjónusta við farþega í komusal flugstöðvarinnar.
Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg, tölvukunnátta og góð tungumálakunnátta
skilyrði. Lágmarksaldur 20 ár.
Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum samskiptum, hafi ríka
þjónustulund og séu stundvísir.
Hlaðdeild og fraktmiðstöð
100% starfshlutfall. Unnið á 12 tíma vöktum eftir vaktakerfinu 2-2-3.
Ökuréttindi og enskukunnátta skilyrði, vinnuvélaréttindi æskileg. Lágmarksaldur 19 ár.
Starfsemi Airport Associates tekur til allrar þjónustu við farþega- og fraktflugvélar svo sem hleðslu flugvéla sem og annarar þjónustu á flughlaði,
farþegainnritunar, hleðslueftirlits og alls þess er lítur að flugvélaafgreiðslu.
Meðal viðskiptavina okkar eru: British Airways, Cargolux, Delta Airlines, UPS, Air Berlin, Germanwings, Bluebird Cargo, Fly Niki, flybe, Aer Lingus,
vueling, WOW air, Primera Air, easyJet, Norwegian, Transavia, Corendon, Volga Dnepr, Airbridge, ABX air og fleiri félög.
Óskum eftir að ráða í eftirtalin störf:
Sótt er um störfin rafrænt á
www.airportassociates.com.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2015.
Sumarstörf 2015
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í
íslensku atvinnulífi
www.hagvangur.is
13. júní 2015 LAUGARDAGUR16