Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 103

Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 103
LAUGARDAGUR 13. júní 2015 | TÍMAMÓT | 45 Útfarar- og lögfræðiþjónusta Önnumst alla þætti útfararinnar með virðingu að leiðarljósi �������������������������������������������������������������������������������������� ������������� �������������������������������� ����������������������������Við þjónum allan sólarhringinn Við kynnum nýja þjónustuþætti Kynnið ykkur nýja heimasíðu �������������� Hann ætlar þó að reyna fá sér bröns með fjölskyldunni í dag. Halldór er ungur í anda og segist í raun hugsa ennþá eins og hann væri átján ára. „Mér finnst ég vera að hugsa það sama og ég var að hugsa þegar ég var átján ára, nema það er erfiðara að framkvæma þær hugs- anir í dag,“ segir hann og hlær. Halldór á farsælan feril sem leik- ari og hefur leikið í um sextíu leik- ritum en hvað skyldi standa upp úr á löngum ferli? „Ég hef verið heppinn og hef gert margt skemmtilegt. Það sem hefur líklega gefið mér mest og það sem mér þykir vænst um er Sigt- ið. Við áttum það alveg sjálfir, skrif- uðum og lékum, það var svo geggjað. Mér þykir líka vænt um ævintýr- in í barnatímunum á sínum tíma,“ útskýrir Halldór. Helstu fyrirmyndir hans hafa verið Charlie Chaplin og Woody Allen. „Tónlistar maðurinn Frank Zappa var líka fyrirmynd. Hann var snillingur, svo klikkaður og óút- reiknanlegur. Hann gat verið stór- kostlegur og frábær og líka hundleið- inlegur.“ Talandi um tónlist, þá ætlar Halldór að halda tónleika þann 18. júní næstkomandi og leika sitt eigið efni ásamt hljómsveit. „Tónleikarn- ir verða á Kexi hosteli, þar mun ég koma fram og spila lög eftir sjálfan mig. Lögin spanna um það bil 25 ára tímabil.“ gunnarleo@frettabladid.is Þennan dag árið 1977 var dæmdur morðingi Martins Luthers King handsamaður eftir að hafa strokið úr fangelsi í annað sinn. James Earl Ray fæddist árið 1928 inn í fátæka fjölskyldu í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Hann hætti í skóla fimmtán ára gamall og gekk síðar í herinn. Árið 1949 var hann dæmdur fyrir inn- brot í Kaliforníu og þremur árum síðar sat hann inni í tvö ár fyrir vopnað rán. Árið 1955 var hann dæmdur fyrir fjársvik. Eftir enn eitt vopnaða ránið árið 1959 var hann dæmdur í tuttugu ára fangelsi. Honum tókst að sleppa úr þeirri prísund árið 1967 með því að fela sig í flutningabíl sem flutti vörur úr fangelsinu. Martin Luther King var skotinn til bana 4. apríl 1968, þegar Ray gekk enn laus. Rúmlega tveimur mánuðum eftir morðið var Ray handtekinn á Heathrow-flugvellinum í London þar sem hann gerði tilraun til að flýja Bandaríkin á fölsuðum passa og komast til Kanada. Hann var framseldur til Bandaríkjanna, þar sem hann viðurkenndi brot sitt og var dæmdur fyrir morðið. Þremur dögum síðar dró hann játningu sína til baka og hélt því fram til æviloka að hann hefði ekki myrt Martin Luther King. Hinn 11. júní 1977 komst Ray aftur á lista FBI yfir eftirlýsta glæpamenn þegar hann og sex aðrir fangar sluppu úr fangelsi. Það var svo á þessum degi fyrir 31 ári að hann náðist og var færður aftur í fangageymslur. ÞETTA GERÐIST 13. JÚNÍ 1977 Handsamaður eft ir fl óttatilraun Mæðginin Ólöf Þorvaldsdóttir og Kristján Logason hafa sent frá sér bókina Sindur, ljósbrot frá eyðibýli. Hún inniheldur listræn- ar og áhugaverðar ljósmyndir frá eyðibýlinu Narfastöðum og ljóð- rænar örsögur og ljóð samin í takt við tilfinningar og minningar sem myndirnar kveiktu. Ólöf skrifar og hannar bókina en Kristján er höfundur myndanna. Í formála og eftirmála kemur höfundur örlítið inn á ytri aðstæð- ur og sögu bæjarins sem liggur fallega við sjó í Hvalfjarðarsveit og horfir mót jökli. Bókin hefur fengið afar góðar viðtökur og þykir myndargripur, kveikir löngu grafnar minning- ar hjá sumum og spurningar hjá öðrum. Leikkonurnar Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Hrefna Hall- grímsdóttir munu ásamt Bjarti Jörfa Ingvasyni og höfundum lesa upp úr bókinni í bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18 í dag klukkan 15.00. Lilja Guðrún bjó á Narfastöðum í fjögur ár í æsku og kemur við sögu í bókinni. - glp Mæðgin gefa út bók saman MÆÐGIN Ólöf Þorvaldsdóttir skrifar og hannar bókina en Kristján Logason er höfundur myndanna. MERKISATBURÐIR 1846 Sölvi Helgason landshorna- flakkari er dæmdur til að þola 27 vandarhögg fyrir flakk og svik. Hann var þekktur alþýðulistamaður. 1870 Gránufélagið stofnað á Akureyri. 1875 Jón Sigurðsson ávarpar skóla- pilta í Reykjavík og talar um frelsið. 1920 Póstþjónusta Bandaríkjanna setur reglur um það að ekki megi senda börn í pinklum. 1934 Adolf Hitler og Mussolini hitt- ast á Ítalíu; seinna kallaði Mussolini Hitler „kjánalegan apa“. 1941 Sigurður Jónsson forstjóri býður ríkinu Bessastaði „til þess að vera bústaður æðsta valdsmanns íslenska ríkisins“ og er boðinu tekið þann 18. júní. 1971 Framboðsflokkurinn (O-listinn) býður fram í þremur kjördæmum og gerir grín að framboðum hinna flokk- anna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.