Fréttablaðið - 13.06.2015, Síða 103
LAUGARDAGUR 13. júní 2015 | TÍMAMÓT | 45
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Önnumst alla þætti útfararinnar með virðingu að leiðarljósi
�������������������������������������������������������������������������������������� �������������
�������������������������������� ����������������������������Við þjónum allan sólarhringinn
Við kynnum nýja
þjónustuþætti
Kynnið ykkur nýja heimasíðu ��������������
Hann ætlar þó að reyna fá sér
bröns með fjölskyldunni í dag.
Halldór er ungur í anda og segist í
raun hugsa ennþá eins og hann væri
átján ára. „Mér finnst ég vera að
hugsa það sama og ég var að hugsa
þegar ég var átján ára, nema það er
erfiðara að framkvæma þær hugs-
anir í dag,“ segir hann og hlær.
Halldór á farsælan feril sem leik-
ari og hefur leikið í um sextíu leik-
ritum en hvað skyldi standa upp úr á
löngum ferli? „Ég hef verið heppinn
og hef gert margt skemmtilegt. Það
sem hefur líklega gefið mér mest og
það sem mér þykir vænst um er Sigt-
ið. Við áttum það alveg sjálfir, skrif-
uðum og lékum, það var svo geggjað.
Mér þykir líka vænt um ævintýr-
in í barnatímunum á sínum tíma,“
útskýrir Halldór.
Helstu fyrirmyndir hans hafa
verið Charlie Chaplin og Woody
Allen. „Tónlistar maðurinn Frank
Zappa var líka fyrirmynd. Hann
var snillingur, svo klikkaður og óút-
reiknanlegur. Hann gat verið stór-
kostlegur og frábær og líka hundleið-
inlegur.“ Talandi um tónlist, þá ætlar
Halldór að halda tónleika þann 18.
júní næstkomandi og leika sitt eigið
efni ásamt hljómsveit. „Tónleikarn-
ir verða á Kexi hosteli, þar mun ég
koma fram og spila lög eftir sjálfan
mig. Lögin spanna um það bil 25 ára
tímabil.“ gunnarleo@frettabladid.is
Þennan dag árið 1977 var dæmdur morðingi
Martins Luthers King handsamaður eftir að hafa
strokið úr fangelsi í annað sinn.
James Earl Ray fæddist árið 1928 inn í fátæka
fjölskyldu í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Hann
hætti í skóla fimmtán ára gamall og gekk síðar
í herinn. Árið 1949 var hann dæmdur fyrir inn-
brot í Kaliforníu og þremur árum síðar sat hann
inni í tvö ár fyrir vopnað rán. Árið 1955 var hann
dæmdur fyrir fjársvik. Eftir enn eitt vopnaða ránið
árið 1959 var hann dæmdur í tuttugu ára fangelsi.
Honum tókst að sleppa úr þeirri prísund árið 1967
með því að fela sig í flutningabíl sem flutti vörur
úr fangelsinu.
Martin Luther King var skotinn til bana 4. apríl
1968, þegar Ray gekk enn laus. Rúmlega tveimur
mánuðum eftir morðið var Ray handtekinn á
Heathrow-flugvellinum í London þar sem hann
gerði tilraun til að flýja Bandaríkin á fölsuðum
passa og komast til Kanada. Hann var framseldur
til Bandaríkjanna, þar sem hann viðurkenndi brot
sitt og var dæmdur fyrir morðið. Þremur dögum
síðar dró hann játningu sína til baka og hélt því
fram til æviloka að hann hefði ekki myrt Martin
Luther King.
Hinn 11. júní 1977 komst Ray aftur á lista FBI
yfir eftirlýsta glæpamenn þegar hann og sex aðrir
fangar sluppu úr fangelsi. Það var svo á þessum
degi fyrir 31 ári að hann náðist og var færður
aftur í fangageymslur.
ÞETTA GERÐIST 13. JÚNÍ 1977
Handsamaður eft ir fl óttatilraun
Mæðginin Ólöf Þorvaldsdóttir og
Kristján Logason hafa sent frá
sér bókina Sindur, ljósbrot frá
eyðibýli. Hún inniheldur listræn-
ar og áhugaverðar ljósmyndir frá
eyðibýlinu Narfastöðum og ljóð-
rænar örsögur og ljóð samin í takt
við tilfinningar og minningar sem
myndirnar kveiktu. Ólöf skrifar
og hannar bókina en Kristján er
höfundur myndanna.
Í formála og eftirmála kemur
höfundur örlítið inn á ytri aðstæð-
ur og sögu bæjarins sem liggur
fallega við sjó í Hvalfjarðarsveit
og horfir mót jökli.
Bókin hefur fengið afar góðar
viðtökur og þykir myndargripur,
kveikir löngu grafnar minning-
ar hjá sumum og spurningar hjá
öðrum.
Leikkonurnar Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir og Hrefna Hall-
grímsdóttir munu ásamt Bjarti
Jörfa Ingvasyni og höfundum lesa
upp úr bókinni í bókabúð Máls
og menningar Laugavegi 18 í dag
klukkan 15.00. Lilja Guðrún bjó á
Narfastöðum í fjögur ár í æsku og
kemur við sögu í bókinni. - glp
Mæðgin gefa
út bók saman
MÆÐGIN Ólöf Þorvaldsdóttir skrifar og
hannar bókina en Kristján Logason er
höfundur myndanna.
MERKISATBURÐIR
1846 Sölvi Helgason landshorna-
flakkari er dæmdur til að þola 27
vandarhögg fyrir flakk og svik. Hann
var þekktur alþýðulistamaður.
1870 Gránufélagið stofnað á Akureyri.
1875 Jón Sigurðsson ávarpar skóla-
pilta í Reykjavík og talar um frelsið.
1920 Póstþjónusta Bandaríkjanna
setur reglur um það að ekki megi
senda börn í pinklum.
1934 Adolf Hitler og Mussolini hitt-
ast á Ítalíu; seinna kallaði Mussolini
Hitler „kjánalegan apa“.
1941 Sigurður Jónsson forstjóri
býður ríkinu Bessastaði „til þess að
vera bústaður æðsta valdsmanns
íslenska ríkisins“ og er boðinu tekið
þann 18. júní.
1971 Framboðsflokkurinn (O-listinn)
býður fram í þremur kjördæmum og
gerir grín að framboðum hinna flokk-
anna.