Fréttablaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 120
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 62
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@365.is
SPORT
HANDBOLTI „Við komum okkur
sjálfar í svolítið erfiða stöðu í fyrri
leiknum,“ segir Rut Jónsdóttir, leik-
maður íslenska kvennalandsliðsins í
handbolta, við Fréttablaðið um fyrri
umspilsleikinn gegn Svartfjallalandi
um sæti á HM í vetur.
Svartfjallaland vann fyrri leikinn,
29-18, og þurfa stelpurnar okkar því
tíu marka sigur í Höllinni gegn einu
besta liði heims ætli þær áfram.
„Það var svekkjandi að ná ekki
betri úrslitum á útivelli en samt
sem áður ætlum við að fara í leikinn
einbeittar og það væri frábært að
ná í sigur. Ef tækifæri gefst ætlum
við okkur áfram. Draumurinn er að
komast áfram,“ segir Rut.
Stelpurnar byrjuðu vel ytra og voru
með sex marka forystu eftir tíu mín-
útur, en eftir það fór allt í baklás.
„Þær breyttu varnarleiknum eftir
20 mínútur og komu okkur úr jafn-
vægi. Svo áttum við bara í vand-
ræðum með sóknarleikinn. Þetta er
náttúrlega rosalega sterkt lið sem við
erum að spila við,“ segir Rut.
Hún segir ekki alla von úti enn. „Ég
er spennt að sjá hvernig þær mæta
í þennan leik. Maður veit aldrei með
þessar þjóðir, þær gætu ætlað að
taka þetta með vinstri. Við ætlum
að vera á tánum og mæta af fullum
krafti,“ segir Rut Jónsdóttir.
Leikurinn hefst klukkan 14.30 í
Laugardalshöll. - tom
Draumurinn er að komast áfram
ERFITT Stelpurnar verða að eiga
frábæran leik. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓTBOLTI Íslenska þjóðin var send
með bros á vör í sumarfrí eftir
stórglæsilegan endurkomusigur,
2-1, hjá íslenska landsliðinu í fót-
bolta í gærkvöldi gegn því tékk-
neska. Eftir að lenda 1-0 undir,
þvert gegn gangi leiksins, komu
strákarnir til baka með mörkum
fyrirliðans Arons Einars Gunnars-
sonar og Kolbeins Sigþórssonar og
tryggðu sér sigurinn.
„Fyrri hálfleikurinn var eins og
amerískur fótbolti. Bæði lið voru
föst fyrir og reyndu að nýta sér
föst leikatriði. Þeir fengu engin
færi, ekkert frekar en í seinni
hálfleik. Ég er mjög ánægður með
stigin þrjú,“ sagði Lars Lagerbäck,
annar landsliðsþjálfara Íslands,
sæll og glaður á blaðamannafundi
eftir leikinn.
Fyrri hálfleikurinn var ekki
mikið fyrir augað. Hvorugt liðið
vildi gera mistök enda leiddu mis-
tök til allra þriggja markanna í
fyrri leiknum. Íslenska liðið var
þó hugrakkara og fékk nokkur
ágæt tækifæri. Næst komst Gylfi
Þór Sigurðsson því að skora þegar
hann mundaði gullfótinn í tvígang
úr aukaspyrnu rétt fyrir utan teig.
Gylfi var, eins og áður í keppn-
inni, alveg frábær inni á mið-
svæðinu með fyrirliðann Aron
Einar Gunnarsson með sér. Aron
Einar heldur áfram að spila eins
og kóngur, límir saman vörn og
miðju. Gylfi nýtur þess að spila við
hliðina á honum og stýrði spilinu
á miðsvæðinu eins og umferðar-
lögregla. Besti fótboltamaðurinn
á Laugardalsvelli var í íslenska lið-
inu í gær.
„Fyrri hálfleikurinn var alveg
eins og við bjuggumst við. Tékk-
arnir tóku ekki mikla áhættu og
mér leið eins og þeir vildu fyrst og
fremst verja stigið,“ sagði Lager-
bäck.
Okkar menn ætluðu sér að vinna
leikinn og komu flottir út í seinni
hálfleikinn. Það var upp úr þurru
sem Borak Dockal kom gestunum
yfir með draumamarkið, en eftir
það sýndu strákarnir úr hverju
þeir eru gerðir og rúmlega það.
Ísland pressaði stíft eftir mark-
ið og leyfði Tékkunum ekki að
fagna. Það var ekkert minna en
sanngjarnt þegar fyrirliðinn Aron
Einar stangaði boltann í netið eftir
magnaða sendingu Ara Freys inn
á teiginn.
Aron setti allan þann fítónskraft
sem hann átti í skallann enda þarf
ekkert minna til að koma boltanum
fram hjá Petr Cech. Eftir markið
var aldrei spurning um hvort liðið
myndi skora aftur. Ísland var ein-
faldlega miklu betri aðilinn.
Tékkarnir réðu ekkert við lið-
spressu íslenska liðsins og gátu
lítið annað gert en að sparka bolt-
anum aftur í fangið á íslensku
strákunum. Það er einfaldlega
þannig að íslenska liðið er orðið
svo gott, skipulagt og baráttuglatt
að lið eins og Tékkland verður að
sætta sig við löng neyðarspörk
fram völlinn.
Enginn fagnaði marki Kolbeins
Sigþórssonar meira en hann sjálf-
ur. Eyðimerkurgöngunni loksins
lokið. Hann hafði ekki átt neitt sér-
stakan leik fram að markinu þó að
hann hafi verið duglegur eins og
alltaf, en færið kláraði hann eins
og heimsklassa framherji.
Ef við Íslendingar megum ein-
hvern tíma tapa okkur í hinni alís-
lensku bjartsýni er það núna. Og
sú bjartsýni er ekki byggð á sandi.
Við eigum tvo heimaleiki eftir
gegn slökustu þjóðum riðilsins, en
þó erfiða útileiki. Verkefnið þarf
að klára, engin spurning. Strák-
arnir fóru samt langt með að tékka
sig inn til Frakklands í gærkvöldi.
„Ég væri að ljúga ef ég segði að
við ættum ekki góða möguleika
núna,“ sagði Lagerbäck sem er
allt annað en yfirlýsingaglaður.
Það ætti að segja okkur eitthvað.
„Við erum búnir að spila við öll
bestu liðin í riðlinum og þau eiga
eftir innbyrðisleiki.“ tomas@365.is
Getum Tékkað okkur inn
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er komið hálfa leið til Frakklands eft ir frækinn endurkomusigur á Tékk-
landi í gær. Ísland fór með þessum sigri upp í efsta sæti riðilsins og verður þar í allt sumar að minnsta kosti.
FÓTBOLTI „Þetta var algjörlega
ótrúlegur sigur,“ segir Kolbeinn
Sigþórsson sem skoraði sigur-
markið gegn Tékkum í gær.
„Að sjá hvernig við komum til
baka eftir að hafa lent undir var
frábært. Við létum markið ekki
á okkur fá og vorum enn þá betri
eftir að hafa fengið markið á
okkur. Við áttum skilið að skora
og vinna,“ sagði Kolbeinn.
„Mér fannst þeir vera hræddir
við líkamlega styrkinn hjá okkur.
Maður fann að þeir báru virðingu
fyrir okkur. Við vildum þetta
meira og börðumst um hvern
einasta bolta. Þetta Tékkalið er
drullugott en við náðum að loka
frábærlega á þá,“ sagði Kolbeinn.
„Markið þeirra kveikti enn
frekar í okkur og það sýnir eina
ferðina enn karakterinn í okkar
liði. Það er ekkert grín að koma
til baka á móti svona sterku liði,“
sagði Kolbeinn sem var mjög
yfirvegaður þegar hann skoraði
markið. „Ég beið aðeins með að
skjóta og lét hann koma á móti
mér. Það var frábært fyrir mig
að skora enda langt síðan ég skor-
aði í landsleik. Það er frábært að
við séum komnir í toppsætið og
við viljum halda því. Við erum
ekki komnir á EM samt. Ekki
fyrr en við erum komnir þangað,“
sagði Kolbeinn og glotti. -hbg
Markið þeirra
kveikti í okkur
FRÁBÆR STAÐA HJÁ ÍSLANDI Ragnar
Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson
fagna sigri á Tékkum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Við töluðum um að þetta væri Leikurinn með stóru
L-i og nálguðumst hann þannig. Við ætluðum að gera
betur en við gerðum í Tékklandi og gerðum það,“
sagði Aron Einar Gunnarsson eftir sigurinn í gær.
„Þetta var fyrir okkur. Að sanna að við getum unnið
þessi stóru lið. Mér fannst við vera í betra formi en
þeir. Margir spiluðu sinn síðasta leik 2. maí en við
erum það fókuseraðir á þetta verkefni að allir héldu
sér í mjög góðu formi. Við ætluðum aldrei að tapa
þessum leik.“ Fyrirliðinn segir að íslensku strákarnir
hafi reiðst þegar Tékkar komust yfir.
„Þú veist hvernig við erum. Við höfum alltaf trú
á okkur og vissum allir að við myndum skora mark
hérna á heimavelli. Það var grimmdin og íslenska
geðveikin sem hélt okkur inni í þessum leik. Þetta var
gífurlega mikilvægur og sætur sigur,“ segir Aron. - hbg
Grimmdin og íslenska geðveikin
��������
������
�����
������
��������������������
�����������������
���������������
�������������������������������������������������������������������������������
����������������������������
����������������
��������������������
��� �������������
�������������������
��� �������������
������������������
��������
� �������������
�����������������������
����������������������������
���������������
��������
������
�������������
��������������
���������
� � ����
��������
���������
�������
�� ��� ������������������
�����������������������������������������
���������
������������������������������������
��������
�����������
������������
��������������������������������
������������������������������������������
����������
����������������������������������
���������������
��������
������
�������������
�������������������
�������������������
���������������
��������
������
SIGURMARKIÐ Kolbeinn
Sigþórsson tryggir hér
Íslandi 2-1 sigur á Tékkum
og þar með toppsætið í
riðlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR