Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 122
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 64
HANDBOLTI Strákarnir okkar í
íslenska handboltalandsliðinu
mæta Svartfjallalandi í úrslita-
leik um efsta sætið í fjórða riðli
undan keppni EM 2016 í handbolta
á sunnudaginn klukkan. 17.00. Aron
Kristjánsson landsliðsþjálfari vill
ekki spá í hvort liðið sé komið á EM
eða ekki eða hvað önnur lið þurfa að
gera. Hann vill sigur.
„Það væri bara einfaldast að
vinna þennan leik og taka fyrsta
sætið. Það er aðalatriðið. Efsta
sætið skiptir líka máli upp á styrk-
leikaröðun auk þess sem það væru
ágætis skilaboð til annarra liða,“
sagði Aron við Fréttablaðið í gær.
Meiri einbeiting
Ólafur Stefánsson var fenginn inn
í þjálfarateymið eftir HM í Katar
þar sem mikil deyfð var yfir liðinu.
Strákarnir hafa spilað mjög vel í
síðustu leikjum; pökkuðu Serbum
saman heima, náðu jafn tefli við þá
úti og unnu svo Ísrael með tíu mörk-
um ytra á miðvikudaginn.
„Það er bara meiri einbeiting
í liðinu,“ sagði Ólafur við Frétta-
blaðið í gær. „Menn vilja sópa upp
eftir sig eftir smá lægð og kom-
ast aftur á þann stað þar sem liðið
hefur verið.“
Hann segir mikilvægt fyrir
íslenska liðið að vera á meðal átta
bestu þjóða heims en ekki einhvers
staðar frá 9-16.
„Það væru líka röng skilaboð
fyrir aðra sem eru að koma inn í
þetta núna. Okkar stefna er að vera
alltaf á meðal þeirra átta bestu. Þar
þarftu að vera til að komast inn á
Ólympíuleika og vera gjaldgengur
í þessu,“ sagði Ólafur.
Ekki spilað fyrir peninginn
Ólafur er sammála því að íslenska
liðið hefur spilað vel í undanförnum
leikjum og hann var ánægður með
frammistöðuna í Tel Aviv.
„Þetta var vel gert, en það þarf
ofboðslega einbeitingu til á þessum
árstíma. Þetta er oft erfiðasti tím-
inn til að spila landsleiki. Sérstak-
lega fyrir menn í meistaraliðum
eins og Guðjón Val, Aron og Róbert.
Þar hefur verið mikið álag og mikil
spenna,“ sagði Ólafur og hélt áfram:
„Menn þurfa þá gott ímyndunar-
afl og einbeitingu til að gíra sig upp
í svona verkefni. Á móti er það líka
það sem einkennir íslensku hand-
boltahefðina og einhver föður-
landshyggja.“
Hingað koma menn ekki til að
spila fyrir vasapening. „Strákarn-
ir koma hérna og spila ekki fyrir
pening heldur eitthvað allt annað.
Það er eitthvað sem menn þurfa að
ná í og ef það gerist völtum við yfir
þetta svartfellska lið.“
Leyfi til að fikta
Ólafur nýtur sín í þessu nýja hlut-
verki sem aðstoðarmaður þjálf-
ara eða eins konar ráðgjafi þeirra
og leikmannanna. Nógu djúpur er
allavega handboltaviskubrunnurinn
sem hann býr yfir.
„Mér finnst þetta fínt. Ábyrgðin
er öll á þjálfurunum en mitt hlut-
verk er að vera léttur ráðgjafi inn
á milli. Ég er svona tengiliður fyrir
þjálfara og leikmenn,“ sagði Ólaf-
ur sem er bjartsýnn fyrir leikinn á
sunndaginn.
„Dínamíkin er góð og maður
fann það þegar þeir mættu á móti
Serbum. Það voru allt aðrir hlut-
ir í gangi. Menn vildi sýna sig og
sanna,“ sagði Ólafur Stefánsson.
tomas@365.is
Vilja sópa upp eft ir sig
Íslenska landsliðið í handbolta mætir Svartfellingum í úrslitaleik um efsta sæti
riðilsins á sunnudag. Ólafur Stefánsson segir meiri einbeitingu í liðinu núna.
RÁÐGJAFINN Eftir glæstan landsliðsferil sem leikmaður er Ólafur Stefánsson mættur aftur sem aðstoðarmaður leikmanna og
þjálfara. Hann segir liðið aftur á réttri leið eftir deyfðina í Katar. Ísland stefnir nú á efsta sætið í riðlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Strákarnir koma
hingað og spila ekki fyrir
pening heldur eitthvað
allt annað.
Ólafur Stefánsson, fyrrv. landsliðsm.
EM Í KRÓATÍU 2000
Vann Makedóníu í tveimur umspilsleikjum
(Samanlagt 61-55)
EM Í SVÍÞJÓÐ 2002
Vann Hvíta-Rússland í tveimur umspilsleikjum
(Samanlagt 56-50)
EM Í SLÓVENÍU 2004
Ísland tryggði sig inn með því að ná 4. sæti á
EM 2002
EM Í SVISS 2006
Vann Hvíta-Rússland í tveimur umspilsleikjum
(Samanlagt 67-55)
EM Í NOREGI 2008
Vann Serbíu í tveimur umspilsleikjum
(Samanlagt 71-70)
EM Í AUSTURRÍKI 2010
Fyrsta sæti í 3. riðli undankeppninnar
EM Í SERBÍU 2012
Annað sæti í 5. riðli undankeppninnar (Þýska-
land vann riðilinn)
EM Í DANMÖRKU 2014
Fyrsta sæti í 6. riðli undankeppninnar
EM Í PÓLLANDI 2016
Ræðst í Laugardalshöll á morgun.
➜ Svona hefur Ísland
komist á síðustu
átta Evrópumót
HANNES ÞÓR HALLDÓRSSON, MARKVÖRÐUR 6
Mætti hárprúður til leiks og hárið var ekki að flækjast fyrir
honum. Reyndi lítið á hann. Öruggur í sínum aðgerðum. Gat
lítið gert við markinu.
BIRKIR MÁR SÆVARSSON, HÆGRI BAKVÖRÐUR 7
Stóð vaktina vel í vörninni. Yfirvegaður og ekkert óðagot.
Hleypti engu í gegnum sig. Tók takmarkaðan þátt í sóknar-
leiknum.
KÁRI ÁRNASON, MIÐVÖRÐUR 7
Klikkar helst aldrei í landsleikjum. Étur alla skallabolta og
vinnur flest návígi. Leiðtogi í sterkri vörn.
RAGNAR SIGURÐSSON, MIÐVÖRÐUR 8
Sterkur fyrir, tímasetti tæklingar vel. Lét ekki teyma sig í
ógöngur. Öflugur í loftinu. Hann og Kári traustir sem fyrr.
ARI FREYR SKÚLASON, VINSTRI BAKVÖRÐUR 7
Öflugur í vörninni. Eldfljótur og átti nokkrar ágætar sendingar
og svo eina gullsendingu er Ísland jafnaði 1-1.
BIRKIR BJARNASON, HÆGRI KANTMAÐUR 5
Ekki hans besti dagur. Missti boltann of oft og náði lítið að
ógna. Lét þó finna fyrir sér og vann mikla vinnu sem fyrr.
ARON EINAR GUNNARSSON, MIÐJUMAÐUR
(MAÐUR LEIKSINS) 8
Fyrirliðinn frábæri jafnaði með stórglæsilegu skallamarki. Var
sem brimbrjótur á miðjunni og tengdi liðið saman. Fórnaði
sér hvenær sem hann gat, vann marga bolta og sinnti varnar-
vinnunni af miklum myndarskap. Sannur leiðtogi.
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON, MIÐJUMAÐUR 8
Í öðrum klassa en aðrir miðjumenn. Frábær á boltann og
alltaf hætta í kringum hann. Óheppinn að skora ekki úr
aukaspyrnu. Virðist ekki geta spilað slakan landsleik. Ótrúlega
duglegur og óþreytandi í að pressa miðjumenn Tékka.
EMIL HALLFREÐSSON, VINSTRI KANTMAÐUR 5
Var mjög kröftugur framan af fyrri hálfleik og vann nokkra
bolta. Náði ekki að fylgja því eftir. Tapaði boltanum í fyrsta
marki leiksins. Gaf sig allan í verkefnið og hætti aldrei.
JÓHANN BERG GUÐMUNDSSON, FRAMHERJI 6
Hörkuduglegur en kom lítið út úr allri vinnunni því miður.
Gafst aldrei upp.
KOLBEINN SIGÞÓRSSON, FRAMHERJI 7
Óþreytandi dugnaðarforkur. Alltaf með pressu. Skilaði bolta
vel af sér. Nýtti færið sitt og skoraði. Yfirvegaður og kláraði
með stæl. Má aldrei líta af honum.
VARAMENN
JÓN DAÐI BÖÐVARSSON (63. EMIL H.) 6
Duglegur og átti sinn þátt í sigurmarki Íslands.
RÚRIK GÍSLASON (93. KOLBEINN SIGÞÓRSSON) -
Kom inn á í blálokin.
FRAMMISTAÐA LEIKMANNA
Á MÓTI TÉKKLANDI Í GÆR
����������� �����
�� ��������������������������������������
����������������������������������������������� ������������������������������������������
Margir litir í boði. Margar tegundir
af rúmgöflum. Fáanleg sem rafmagnsrúm.
Henson Design
Glæsilegur og virkilega
vandaður svefnsófi frá Ítalíu.
Fallegur horn- og tungusófi með hvíldarstól
í enda. Margir litir í boði.
Trinus Demetra svefnsófi
�����������������
byko.is
HÁGÆÐA GRILL
FRÁ KANADA
NAPOLEON, fjölskyldufyrirtæki frá Kanada, hefur
verið starfandi í 38 ár og sérhæfir sig í að hanna
og framleiða hágæða grill, eldstæði og fleiri vörur
sem hægt er að treysta á.
119.995kr.
506600034 Almennt verð: 139.
995 kr.
NAPOLEON gasgrill TRIUMPH 495
FAGNAR Kolbeinn Sigþórsson
tryggði Íslandi sigur á Tékklandi
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
MAGNAÐUR Gylfi Þór Sigurðs-
son átti enn einn stórleikinn
fyrir Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SANNUR FYRIRLIÐI Aron Einar
skoraði og var í lykilhlutverki á
miðjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR