Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 43

Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 43
KYNNING − AUGLÝSING Íslenski jarðvarmaklasinn13. JÚNÍ 2015 LAUGARDAGUR 3 Umhverfis jarðvarmaver HS Orku í Svartsengi og á Reykjanesi hefur mynd- ast þyrping fyrirtækja, Auðlinda- garður, sem eiga það sameiginlegt að tengjast jarðvarmaverunum og nýta f leiri auðlindastrauma en þá hefðbundnu, þ.e. heitt og kalt vatn og rafmagn. HS Orka og Bláa lónið héldu í samein- ingu ráðstefnu í Hörpu 28. maí síðastliðinn þar sem skýrsla um Auðlindgarðinn var kynnt. Yfir- skrift ráðstefnunnar var fjölþætt nýting jarðvarma á Reykjanes- skaga. Í skýrslunni, sem unnin var af Gamma ráðgjöf, kemur m.a. fram að fyrirtæki Auðlindagarðs- ins leggja til eitt prósent af vergri landsframleiðslu. Forseti Íslands ávarpaði ráðstefnugesti og sagði meðal annars að fjölnýting jarð- varmans væri merkilegasta fram- lag Íslendinga á öldinni. HS Orka var stofnuð fyrir rétt um 40 árum sem Hitaveita Suður- nesja í þeim tilgangi að nýta jarð- varmann á Reykjanesskaganum til húshitunar í nálægum sveitar- félögum. Þegar farið var að bora eftir heitu vatni kom í ljós að jarð- varmavökvinn sem kom upp úr borholunum var mun heitari en vonir stóðu til, eða rúmar 240°C, en hitastig á Reykjavíkursvæð- inu var rétt um 90°C. Auk þess var vökvinn með 2/3 af seltu sjávar. Vegna þessara aðstæðna þurfti að endurhugsa aðferðafræðina og var afráðið að nýta jarðvarmann til að hita upp ferskvatn sem notað yrði til húshitunar. Hátt hitastig jarðvarmavökvans leiddi af sér f leiri möguleika, t.d. í raf- orkuframleiðslu, og hófst raforku- framleiðsla í jarðvarmaverunum tveimur árum eftir stofnun fyrir- tækisins. Bláa lónið verður til Við nýtingu jarðvarmavökvans myndaðist fagurblátt lón við jarð- varmaverið. Fljótlega hófu menn að baða sig í lóninu og kom í ljós að náttúrulegur vökvinn hafði mjög jákvæð áhrif á ýmsa húð- kvilla, sér í lagi psoriasis. Árið 1992 stofnaði Grímur Sæ- mundsen læknir fyrirtækið Bláa lónið ásamt Edvard Júlíussyni, frumkvöðli úr Grindavík. Frá upphafi hefur Bláa lónið lagt ríka áherslu á þekkingaruppbygg- ingu og rannsóknir. Rannsóknir á jarðvarmavökvanum sem mynd- ar Bláa lónið hafa leitt í ljós að vistkerfi hans og lækningamátt- ur er einstakur. Bláa lónið er í dag einn vinsæl- asti áfangastaður erlendra ferða- manna sem heimsækja Ísland. Lónið er á lista National Geo- graphic sem eitt af undrum ver- aldar sem segir meira en mörg orð um það hve einstakt það er. Bláa lónið og það frumkvöðlastarf sem er unnið þar hefur verið samofið frumkvöðlastarfi HS Orku. Bláa lónið nýtir alla auðlindastrauma jarðvarmaversins í Svartsengi, heitt og kalt vatn, rafmagn, gufu, jarðsjó og CO 2 . Helstu lífvirku efni jarðvarmavökvans eru kís- ill, sölt og þörungar. Fyrir tækið hefur fengið bandarísk og evrópsk einkaleyfi fyrir nýtingu þörunga og kísils úr jarðvarmavökvanum í snyrtivörur og lyf. Hugmyndafræðin við upp- byggingu jarðvarmavera HS Orku hefur alltaf miðað að því að allir auðlindastraumar séu nýttir og engu sóað. Á því byggir grunn- hugmyndafræði Auðlindagarðs- ins. Hugmyndin um fjölnýtingu og framsýni starfsmanna HS Orku frá árdögum fyrirtækisins hefur leitt af sér fjölbreytta starf- semi í grennd við jarðvarmaver- in. Hugmyndasmiður Auðlinda- garðsins er Albert Albertsson, verkfræðingur og fyrrverandi aðstoðarforstjóri HS Orku. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu nán- ast frá stofnun og mótað hug- myndafræði Auðlindagarðsins. Mikið frumkvöðlastarf Auk Bláa lónsins teljast til Auð- lindagarðsins stærsta fiskeldi landsins, Stolt Sea Farm Iceland á Reykjanesi, sem nýtir volgan kæli- sjó jarðvarmaversins til ræktunar hlýsjávarfisksins senegalf lúru. Haustak og Háteigur á Reykja- nesi nýta gufu frá orkuverunum til fiskþurrkunar. Fyrirtækin nýta fiskhluta sem áður var hent eða voru illa nýttir og gera úr þeim næringarríkar afurðir sem seldar eru úr landi. Í Svartsengi má finna Orf líftækni sem hefur þróað ný- stárlega aðferð til að framleiða verðmæt, sérvirk prótein sem eru notuð í húðvörur og til líf- og læknisfræðirannsókna. Carbon Recycling International framleið- ir metanól sem m.a. er notað til íblöndunar í bensín. Í framleiðsl- una nýtir fyrirtækið jarðgufu, kol- tvísýring og grunnvatn frá jarð- varmaveri HS Orku. Carbon Re- cycling hefur vakið mikla athygli um allan heim enda forgangsmál að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda vegna nýtingar jarðefna- eldsneytis. Þróun Auðlindagarðsins á síð- ustu árum hefur verið hröð. Hið mikla frumkvöðlastarf sem unnið hefur verið hjá HS Orku við nýt- ingu jarðvarmans og nýting Bláa lónsins á auðlindastraumum jarð- varmavers HS Orku hf. í Svarts- engi er einstakur vitnisburður um kosti fjölnýtingar til aukinn- ar verðmætasköpunar. Auðlinda- garðurinn er einstakur á heims- vísu og horft er til hans sem fyrir- myndar um skynsamlega nýtingu auðlinda. Einstakur garður á heimsvísu Auðlindagarðurinn er þyrping fjölbreyttra fyrirtækja umhverfis jarðvarmaver HS Orku í Svartsengi og á Reykjanesi. Öll fyrirtækin tengjast jarðvarmaverunum og nýta fleiri auðlindastrauma en þá hefðbundnu. Þróun Auðlindagarðsins hefur verið hröð síðustu árin enda þykir hann einstakur á heimsvísu og horft er til hans sem fyrirmyndar um skynsamlega nýtingu auðlinda víða um heim. Fagurblátt lón myndaðist við nýtingu jarðvarmavökvans og var Bláa lónið formlega stofnað árið 1992. Bláa lónið er einn vinsælasti áfangastaður erlendra ferðamanna hér á landi. Hópur fjölbreyttra fyrirtækja myndar Auðlinda- garðinn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.