Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 49
Til að húðin geti starfað eðlilega þurfa nokkrir þættir að vera í jafnvægi. Þar á meðal þarf náttúruleg fita á
yfirborði húðþekjunnar að vera til staðar.
Þessi fita myndar nokkurs konar verndar-
lag sem ver húðina fyrir utanaðkomandi
áreiti, þurrki og öðrum skaðlegum um-
hverfisáhrifum. Ein ástæða þess að húðin
verður ofurviðkvæm eða fólk fær ofnæmi
er að þetta verndarlag er ekki í jafnvægi.
LENGI LEITAÐ AÐ ÞVÍ RÉTTA
Elma Lísa leikkona er með viðkvæma
húð og hefur lengi leitað að réttu vörunni
fyrir sig. Húð leikara er undir miklu álagi
í vinnunni og því þarf hún að hugsa sér-
staklega vel um húð sína. Elma kynntist
Pharmaceris þegar hún fór í apótekið sitt
fyrir nokkrum mánuðum í leit að áhrifa-
ríkum og öruggum vörum. „Ég tók strax
eftir því að Pharmaceris A vörurnar eru
án parabenefna. Ég ákvað að prófa þær og
sé ekki eftir því. Þær henta mér ótrúlega
vel og núna er ég búin að fjárfesta í allri
línunni,“ segir Elma Lísa og brosir. Hún
segir aðalkostina við Pharmaceris þá að
vörurnar sem hún notar eru án parabena,
þær henta húðgerð hennar fullkomlega og
auk þess eru þær góðar fyrir budduna.
OFNÆMISPRÓFAÐAR VÖRUR
Pharmaceris er þróað af vísindamönnum;
húðlæknum, ofnæmislæknum, lyfjafræð-
ingum, líffræðingum og sameindalíffræð-
ingum. Vörurnar eru ofnæmisprófaðar og
hannaðar til þess að ráða bót á mismun-
andi húðvandamálum. Pharmaceris A lín-
an er sérstaklega hönnuð fyrir viðkvæma
húð. Hún er þó ekki eingöngu fyrir þá sem
hafa ofnæmi heldur einnig fyrir þá sem
eru sérstaklega viðkvæmir eða vantar jafn-
vægi í húðina. Ef verndarlag húðarinnar er
of þunnt eða veikt verður húðin viðkvæm
fyrir utanaðkomandi áreiti, sem getur
valdið húðvandamálum. Pharmaceris er
með sérlínur við ýmsum húðvandamálum,
T fyrir feita húð með bóluvandamál, N
gegn roða og háræðasliti, P fyrir psoriasis
og R fyrir rósroða.
Söngleikjatónleikar
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
kemur fram á söngleikjatón-
leikum í Hannesar holti á
sunnudag ásamt Margréti
Eir og Karli Olgeirssyni.
SÍÐA 6
BÚIN AÐ KAUPA
ALLA LÍNUNA
NORBERG KYNNIR Pharmaceris húðvörurnar henta Elmu Lísu vel en hún er
með viðkvæma húð sem er oft undir miklu álagi eins og húð margra leikara.
ÖRUGGAR VÖRUR Ofnæmis- og klínískt prófaðar – innihalda ekki paraben.
MÆLIR MEÐ
PHARMACERIS
Elma Lísa er ánægð
með Pharmaceris
vörurnar og mælir
með þeim.
MYND/ERNIR
MYND/ERNIR
SÖLUSTAÐIR
Norberg er með umboð fyrir Pharmaceris. Nánari upplýsingar á
www.norberg.is Við erum líka á www.facebook.com/pharma-
ceris.is. Fæst í Apótekaranum, Lyfjaveri, Gamla Apótekinu, Lyfj-
um og heilsu og völdum verslunum Lyfju.
Systratónar
Systurnar Þórunn,
Dísella og Ingibjörg
Lárusdætur halda
tónleika í Hörpu
á morgun.
SÍÐA 8
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is