Fréttablaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 56
FÓLK|
BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16
FRÁBÆRT ÚRVAL AF PÚÐUM
FRÁ kr. 4.900
CARMEN kr. 99.800 YUMI kr. 28.400
MINIMAL kr. 9.980
AMI kr. 19.900
EVA kr. 22.500
NOHO SÓFI - 219 CM kr. 199.800
CALVIN TUNGUSÓFI 269X153 cm kr. 227.400
2 SAMAN Í SETTI
NÝ
TT
NÝ
TT
NÝ
TT
NÝ
TT
HELGIN
Forfeður systranna Ingi-bjargar, Þórunnar og Dísellu Lárusdætra eru öflugir tón-
listarmenn. Þær ætla að rekja
ættir sínar til merkra skálda
og tónskálda og flytja þekkt ís-
lensk lög á tónleikum sem verða
haldnir í fyrsta skipti á morgun í
Hörpu.
„Okkur þykir svo gaman að að
syngja saman og það er svo-
lítið langt síðan við gerðum það
síðast þannig að við ákváðum
að setja upp sýningu,“ segir
miðsystirin Þórunn. Systurnar
syngja á íslensku en tala á ensku
á tónleikunum. „Þeir sem hafa
komið á tónleika með okkur vita
að við erum mikið í því að fífl-
ast og skemmta okkur í leiðinni.
Hugmyndin, sem við erum búnar
að ganga með í maganum lengi,
er sem sagt sú að fara ekki bara
yfir þessa týpísku sögu íslenskr-
ar tónlistar heldur miða þetta út
frá okkur persónulega. Til dæmis
var tónlist af skornum skammti
hér á landi allt þar til fyrsta
orgelið var flutt inn á nítjándu
öld af Pétri Guðjónssyni, sem var
langalangalangafi okkar, og Þor-
valdur Steingrímsson, móðurafi
okkar, var einn af fyrstu atvinnu-
tónlistarmönnunum á Íslandi.
Svo var pabbi trompetleikari og
mamma leikkona þannig að við
fáum tónlistina eiginlega beint í
æð,“ segir Þórunn og brosir.
EKKI BEINT RAPPTÝPURNAR
Dísella útsetur allar söngraddir
á tónleikum systranna og Stefán
Örn Gunnlaugsson spilar á
flygil. Systurnar ætla að flytja
alls konar lög og fara í gegnum
flestar tónlistarstefnur. „Þetta
eru mest mjög þekkt lög sem við
tökum, til dæmis Hver á sér fegra
föðurland sem móðurbróðir afa
Þorvaldar, Emil Thoroddsen,
skrifaði þannig að það tengist
okkur líka fjölskylduböndum.
Svo röppum við lag eftir afkom-
anda einnar okkar, hana Sigur-
laugu Söru sem er í Reykjavíkur-
dætrum. Þannig að allur skalinn
verður tekinn.“
Blaðamaður má til með að
minnast á að þær systur séu nú
kannski ekki alveg týpurnar sem
flestir sjá fyrir sér að leggi rapp
fyrir sig. Þórunn tekur undir það
og segir skellihlæjandi að það
verði að minnsta kosti sjúklega
fyndið að sjá þær rappa. „Við
erum búnar að hlæja mjög mikið
á æfingum og ætlum að rappa
eins og Reykjavíkurdætur en svo
verður fólk bara að dæma sjálft
hvernig til tekst.“
KVEIKJA OFT UPP Í ELDAVÉL-
INNI Á MILLI ÆFINGA
Mörgum þykir systurnar líkar í
útliti en Þórunn segir þær alls
ekki vera líkar að öðru leyti.
„Þeir sem þekkja okkur ekki
segja að við séum alveg eins
en þeir sem þekkja okkur vel
segja að við séum mjög ólíkar og
ég er sammála því,“ segir hún
og hlær. Hún bætir við að þær
eigi nokkur sameiginleg áhuga-
mál en að tónlistin sé í algjöru
fyrirrúmi. „Okkur finnst öllum
gaman að fara í leikhús og sækja
tónleika en svo erum við allar
miklar áhugakonur um matar-
gerð og allar tilraunagúrmet-
kokkar. Þegar við höfum góðan
tíma til að æfa þá er kveikt upp í
eldavélinni líka.“
Þær systur búa sem stendur
allar á landinu en það verður
ekki lengi því Dísella fer aftur út
í haust. „Hún hefur undanfarin
ár búið í Bandaríkjunum en er
heima núna af því að hún er í
fæðingarorlofi, eignaðist nýlega
lítinn Jökul Orra. Í sumar er hún
að æfa hlutverk Lulu og heldur
svo á vit ævintýranna í Stóra
eplinu og Metropolitan-óperunni
í haust. Ingibjörg starfar vana-
lega á öðrum vettvangi, hún er
í stjórnunarstöðu hjá Icelandair
en tónlistin gefur henni skemmti-
legt tækifæri til að gera eitthvað
allt annað endrum og eins. Tón-
leikarnir okkar verða því bara
fram í ágúst þegar við þurfum
allar að snúa okkur að öðrum
verkefnum,“ segir Þórunn.
RAPPA EINS OG
REYKJAVÍKURDÆTUR
SAMRÝMDAR SYSTUR Þórunn, Dísella og Ingibjörg Lárusdætur flytja lög úr
flestum tónlistarstefnum á tónleikum sínum á morgun. Systurnar eiga margt
sameiginlegt en allar eru þær áhugakonur um matreiðslu og listir.
ÞRJÁR SYSTUR Lárusdætur verða með tónleika í Hörpu í sumar þar sem þær bæði rappa og syngja klassísk lög.
MYND/BJARNEY S. LÚÐVÍKSDÓTTIR
LISTAKONA OG ÁHUGAKOKKUR Þórunn og systur hennar eiga listir og matargerð
sem sameiginlegt áhugamál. MYND/GVA
REIKNAÐU
DÆMIÐ
á 365.is
365.is Sími 1817