Fréttablaðið - 13.06.2015, Page 70
Ráðgjafar og teymisstjóri vegna
læsisverkefnis óskast til starfa.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur falið Náms-
matsstofnun að vinna að innleiðingu aðgerða til eflingar
læsis. Verkefnið er hluti af aðgerðum í framhaldi af Hvít-
bók um umbætur í menntamálum.
Ráðgjafar
Hlutverk ráðgjafa er að veita ráðgjöf og stuðning til skóla
og sveitarfélaga og stuðla þannig að því að markmið um
læsi náist. Ráðgjafarnir munu styðja kennara, foreldra
skólastjórnendur og sveitastjórnir um allt land og miðla
leiðum til að efla læsi nemenda í leik- og grunnskólum.
Ráðgjafarnir mynda teymi sem hefur höfuðaðsetur í Náms-
matsstofnun en starfar með kennurum og stjórnendum
um allt land. Áður en starfið hefst munu ráðgjafarnir hljóta
leiðsögn sérfræðinga til undirbúnings.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Leikskóla- eða grunnskólakennaramenntun,
framhaldsnám æskilegt
• Þekking og reynsla af innleiðingu árangursríkra
kennsluhátta, ráðgjöf og stuðningi við skólastarf
• Hæfni í sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
• Þekking og reynsla í verkefnastjórnun æskileg
• Öryggi og reynsla í meðferð, greiningu og úrvinnslu
gagna og að innleiða gagnreyndar aðferðir við
umbætur í skólastarfi
• Góðir samskiptahæfileikar og leiðtogahæfni
• Færni í miðlun upplýsinga í mæltu og rituðu máli
Teymisstjóri
Teymisstjóri stýrir starfi ráðgjafa stuðlar að góðum liðs-
anda. Hann skipuleggur umfang og framkvæmd verkefna,
stuðlar að því að verkefnum sé lokið á tilsettum tíma,
skilað innan skilgreinds kostnaðarramma og í samræmi
við verklýsingu.
Menntunar- og hæfnikröfur
Uppfylli menntunar- og hæfnikröfur ráðgjafa en auk þess
er krafist farsællar stjórnunarreynslu og framhaldsmennt-
unar í leik- eða grunnskólafræðum.
Umsóknafrestur er til og með 29. júní 2015.
Stefnt er að því að ráða allt að 10 ráðgjafa og að þeir hefji
störf eigi síðar en 1. október 2015. Gert er ráð fyrir að
verkefnið standi í 5 ár.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Jón Gylfason í síma
514-7500, netfang gylfi.j.gylfason@namsmat.is
Umsókn um starfið fylgi skrá yfir menntun og starfsferil,
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu um-
sóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið
ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Umsóknir gilda í
sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.
Umsókn sendist á skjalasafn@nams.is merkt: kennslu-
ráðgjafi eða teymisstjóri. Öllum umsóknum verður svarað.
Launa- og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum
ríkisstarfsmanna.
Alþingi hefur nú til meðferðar frumvarp um Menntamála-
stofnun sem mun taka við verkefnum frá mennta- og menn-
ingarmálaráðuneyti, Námsmatsstofnum og Námsgagna-
stofnun. Gert er ráð fyrir að Menntamálastofnun taki form-
lega til starfa á árinu 2015 og að viðkomandi verði þá boðið
starf við nýju stofnunina.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR ÓSKAST
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa við sjúkrahúsið V og.
Vaktavinna- ts arfshlutfall s amkomulagsatriði.
Upplýsingar v eitir
Þóra B jörnsdóttir hjúkrunarforstjóri Vogs.
Netfang:thora@saa.is
Sími 8247615
EFLA verkfræðistofa leitar að áhugasömu fagfólki fyrir
starfsstöð fyrirtækisins á Selfossi.
Á EFLU Suðurlandi starfa nú 11 starfsmenn á tveimur megin
starfssviðum, annars vegar þéttbýlistækni og hinsvegar
byggingasviði. Saman mynda starfsmenn sviðanna öflugt og
samhent teymi, sem vinnur náið með öðrum sviðum EFLU.
VERK-, TÆKNI- EÐA BYGGINGARFRÆÐINGUR Á
BYGGINGARSVIÐI.
Hæfniskröfur:
Að minnsta kosti B.Sc. gráða í verkfræði, tæknifræði eða
byggingarfræði.
Góð reynsla af mannvirkjahönnun.
Kunnátta í norsku eða einhverju öðru norðurlandamáli æskileg.
Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
IÐNFRÆÐINGUR EÐA TÆKNITEIKNARI.
Hæfniskröfur:
Reynsla í tækniteiknun á byggingasviði og/eða við kortagerð.
Kunnátta í tölvuteiknun skilyrði (Autocad).
Kunnátta í 3D tölvuteiknun æskileg (Revit).
Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu skal
berast í gegnum heimasíðu EFLU, www.efla.is/umsokn-um-starf,
fyrir 23. júní næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað og
farið með þær sem trúnaðarmál.
Frekari upplýsingar veitir Páll Bjarnason svæðisstjóri,
pall.bjarnason@efla.is.
EFLA leitar að liðsauka
á Suðurlandi
EFLA er alhliða verkfræði- og
ráðgjafarfyrirtæki sem veitir
vandaða þjónustu á öllum helstu
sviðum verkfræði og tækni. Við
lítum á öll verkefni sem tækifæri
til þess að stuðla að framförum
og efla samfélagið.
EFLA býður upp á afbragðs
starfsumhverfi, áhugaverðan
starfsvettvang í alþjóðlegu
umhverfi og sterka liðsheild yfir
280 samhentra starfsmanna.
HÖFÐABAKKI 9 110 REYKJAVÍK 412 6000 www.efla.is ÍSLAND DUBAI FRAKKLAND NOREGUR SVÍÞJÓÐ PÓLLAND TYRKLAND
DEILDARSTJÓRI
Eldhús og matsalir
Helstu verkefni og ábyrgð
Að stuðla að auknum gæðum og
faglegum framförum
Að auka skilvirkni í innri ferlum
Að tryggja sem bestan árangur
í málefnum starfsmanna
Að rekstur eldhúsanna sé
sem hagkvæmastur og innan
fjárheimilda
Við leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til starfa tímabundið, frá 1. september 2015 til 31. maí
2018. Deildarstjóri ber ábyrgð á rekstri eldhúss og matsala sem framreiða 4.500 máltíðir á
dag fyrir sjúklinga og starfsfólk Landspítala. Í eldhúsi og matsölum starfa um 105 manns.
Markmið deildarinnar er að veita góða þjónustu, tryggja gæði framleiðslunnar og að fagleg
������������������������������������������� ���������������������������������������������
Hæfnikröfur
Faglegur metnaður og framúr-
skarandi samskiptahæfni skilyrði
Sjálfstæði, frumkvæði og
lausnamiðuð nálgun
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Háskólamenntun á sviði matvæla-
eða næringarfræða eða önnur
sambærileg menntun æskileg
Menntun á sviði rekstrar stór-
eldhúsa eða góð starfsreynsla
æskileg
Menntun og/eða reynsla af
stjórnun æskileg
Umsóknarfrestur er til
og með 29. júní 2015.
Starfshlutfall er 100% og laun
skv. kjarasamningi fjármála-
ráðherra og stéttarfélags. Sótt
�����������������������������
undir Laus störf. Umsókn
fylgi náms- og starfsferilskrá.
Nánari upplýsingar veita Ing-
ólfur Þórisson framkvæmda-
stjóri (ingolfth@landspitali.is,
543 1510) og Viktor Ellertsson
�������������������������
landspitali.is, 543 1517).
Landspítali er lifandi og fjölmennur vinnustaður með um 5.100 starfsmenn.
Hann er aðalsjúkrahús landsins og miðstöð menntunar og rannsókna í heil-
brigðisvísindum. Á Landspítala er lögð áhersla á öryggi, jafnrétti, skilvirka
verkferla, ábyrgan rekstur, góðan starfsanda og bættan húsakost.