Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 76

Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 76
| ATVINNA | ÚTBOÐ SORPA bs., Gylfaflöt 5, 112 Reykjavík, auglýsir eftir þátttakendum í opið útboð: Gámaleiga, flutningur og losun gáma frá endurvinnslustöðvum SORPU bs Útboð nr. 061502 Samningstími er frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2020. Verkefnið felst í útvegun opinna og lokaðra gáma auk pressugáma, alls 146 stk ásamt því að sjá um flutning og losun úrgangs sem berst til endurvinnslustöðvanna. Meginverkefni verktaka er að tryggja að á endur- vinnslustöðvum SORPU séu ávallt til reiðu gámar fyrir mismundandi tegundir úrgangs. Mismikið berst til stöðvanna eftir vikudögum, árstíðum og veðri. Árið 2014 bárust alls um 36.000 tonn. Heimilt er að bjóða í eina eða fleiri endurvinnslustöðvar. Samningar geta því orðið einn eða fleiri, allt að sex. SORPA vill stuðla að notkun umhverfisvænna orkugjafa. Því er gerð krafa um að minnst einn krókbíll til flutninga á gámum nýti metan eða metan/olíu blöndu. Afhending útboðsgagna verður á bílavoginni við móttökustöð SORPU bs. í Gufunesi, 112 Reykjavík, frá þriðjudeginum 16. júní, gegn kr. 15.000.- gjaldi. Gögnin eru útprentuð og á geisladiski. Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu SORPU bs. Gylfaflöt 5, 112 Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn 11. ágúst 2015 kl. 10:00 og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Landsnet óskar eftir áhugasömum aðilum til þátttöku í samningskaupum um rammasamning vegna hugbúnaðargerðar. Gögn um samningskaupin má finna á vef Landsnets www.landsnet.is eftir kl. 16. Þann 16. júní 2015. Frestur til að skila þátttökutilkynningum rennur út þann 3.júlí 2015 kl. 12.00. Rammasamning um hugbúnaðagerð - samningskaup Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps óskar eftir tilboðum í verkið Dreifikerfi Kiðjabergi og Hestlandi Verkið skal framkvæma samkvæmt útboðsgögnum og öðrum þeim gögnum sem þar er vísað til. Verkið felur í sér lagningu dreifikerfis í einangruðum PEX hitaveitulögnum í sumarhúsahverfum Kiðjabergs og Hest- lands. Gerð er krafa um að verktaki geti sýnt fram á reynslu í sambærilegum verkum. Helstu verkþættir eru meðal annars: • Jarðvinna – Gröftur lagnaskurða, fleygun, söndun lagna og frágangur. • Pípuvinna – Útlögn og samsetning PEX lagna • Vegþveranir sumarhúsavega. Alls á að leggja um 9200 m af einangruðum PEX hitaveitu- lögnum. Útboðið er opið. Afhending útboðsgagna verður á rafrænu formi frá og með fimmtudeginum 18. júní 2015. Væntanlegir bjóðendur munu fá gögnin afhennt með því að senda upplýsingar um sig með tölvupósti á Börk hjá Tæknisviði Uppsveita: borkur@gogg.is Opnun tilboða verður föstudaginn 3. júlí 2015 kl. 11 á skrifstofu Grímsnes og Grafningshrepps. Grímsnes- og Grafningshreppur Innkaupadeild Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Dráttarvél, útboð nr. 13543. Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í 3,5–4,5 t. fjórhjóladrifna dráttarvél. Vélin skal vera búin stiglausri gírskiptingu og komast gegnum 2,5 m há undirgöng. Útboðsgögn verða til sölu frá 15 júní í þjónustveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Útboð nr. 20122 Þeistareykjavirkjun Skiljur Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í skiljur fyrir Þeistareykja- virkjun í Þingeyjarsveit samkvæmt útboðsgögnum nr. 20122. Í megindráttum velst verkið í efnisútvegun, smíði og flutning á gufu- og rakaskiljum ásamt tilheyrandi búnaði. Öll framleiðsla skiljanna, þar með talin smíði, eftirlit, prófun og CE-merking, fellur undir reglugerð um þrýstibúnað nr. 571/2000. Skiljurnar eru að mestu smíðaðar úr fínkorna svörtu stáli P275NH. Helstu magntölur eru eftirfarandi: • Gufuskilja er 3,2 m í þvermál og um 16 m löng í heild. Innra rúmmál er um 120 m3 og stálþyngd er um 36.300 kg. • Hver rakaskilja er 2,8 m í þvermál og um 8,1 m löng í heild. Innra rúmmál er um 49 m3 og stálþyngd er um 13.000 kg. Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 2016. Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Landsvirkjunar http://utbod.lv.is frá og með þriðjudeginum 16. júní 2015. Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, fyrir klukkan 12:00 fimmtudaginn 16. júlí 2015. Tilboð verða opnuð kl. 14:00 sama dag og lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Innkaupadeild Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Hljóðkerfi fyrir Borgarleikhús – 2ja umslaga, útboð nr. 13513. • Snjótroðari fyrir Skíðasvæði höfuð borgarsvæðisins, EES útboð nr. 13434. • Stórhöfði – Viðarhöfði. Endubætur gatnamóta 2015, útboð nr. 13545. •Háaleitisbraut. Hjólastígur. Brekkugerði – Miklabraut 2015, útboð 13546 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod 100 ÁRA AFMÆLI KOSNINGARÉTTAR KVENNA FEMINÍSKIR VIÐBURÐIR Í BÍLAHÚSUM Bílastæðasjóður auglýsir eftir samstarfsaðilum til að standa fyrir femínískum viðburðum í bílahúsum sjóðs- ins í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Viðburðirnir geta verið með ýmsum hætti, en hafa sama markmið og aðrir viðburðir á vegum borgarinnar, að fagna þeim árangri sem náðst hefur í jafnréttisbaráttunni en stuðla jafnframt að frekari framförum, enda hefur jafn- rétti kynjanna ekki verið náð. Í framhaldinu verði unnar tillögur og þær lagðar fyrir bílastæðanefnd til samþykktar ásamt framkvæmda- og kostnaðaráætlun. Tekið verður fagnandi á móti hugmyndum að viðburðum og tillögum að samstarfi í gegnum netfangið bilastaedasjodur@bilastaedasjodur.is Áhugasamir sendi tillögu/tillögur ásamt helstu upplýsingum um verkefnið fyrir 5. júlí 2015 Bílastæðasjóður Reykjavíkur Vonarstræti 4 101 Reykjavík Góður sölumaður óskar eftir atvinnu/ verkefnum/ kaupum á litlu fyrirtæki, má vera fyrirtæki sem þarfnast endurskipulagningar. Tilboð sendist á box@frett.is merkt: ,,Fyrirtæki-1306“ 150 fermetra iðnaðarhúsnæði í vesturbæ Kópavogs til leigu á hagstæðu verði Góð lofthæð og stórar innkeyrsludyr. Góð staðsetning á miðju höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar á hofudborgin@hofudborgin.is 13. júní 2015 LAUGARDAGUR20
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.