Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.06.2015, Qupperneq 106

Fréttablaðið - 13.06.2015, Qupperneq 106
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 48 Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Það hlýtur að vera eitthvað í þessu fyrst að þetta er orðið frægt um allan heim og listaheimurinn svona óskaplega hrifinn,“ segir Guðrún Ásmunds- dóttir, móðir Ragnars Kjartans- sonar myndlistarmanns, sem í vikunni opnaði sýninguna Ég og móðir mín í i8 Gallery að Tryggva- götu. Þar sýnir Ragnar vídeóverk með endurteknum gjörningi sem hann hefur unnið á fimm ára fresti allt frá árinu 2000. Gjörningurinn felst í að móðir Ragnars hrækir á hann í sífellu þar sem þau standa fyrir framan myndavélina í stofu Guðrúnar á æskuheimili Ragnars. Verkin fjögur eru frá fimm og upp í tuttugu mínútur að lengd. Guðrúnu Ásmundsdóttur leik- konu og móður Ragnars er margt til lista lagt. Ferill hennar í leik- húsinu spannaði um fimmtíu ár þar sem hún lék óteljandi hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur, leikstýrði og bjó efni til leiksýninga. Það er því ekki ofsögum sagt að Guðrún búi yfir mikilli reynslu en hún segir að hún hafi þurft að sækja djúpt í reynslubankann þegar sonur hennar bað hana um að stilla sér upp fyrir framan myndavél og hrækja á hann án afláts. Uppátektarsamur drengur „Ég kippti mér nú ekkert mikið upp við þetta þegar hann hringdi og bað mig um að gera þetta fyrir sig. Hann hefur nú alltaf verið upp- átektasamur, blessaður. Ég man til að mynda vel eftir því þegar hann kom heim einn daginn og sagð- ist vilja læra á selló. Þá var hann svona átta ára gamall og skotinn í stelpu sem bjó í götunni og var að læra á selló. Ég ræddi þá hugmynd við Göggu Lund söngkonu sem bjó hér í húsinu og hún vissi nú lengra sínu nefi. „Nei, selló er ekkert fyrir hann Ragnar. Trompet, það er hljóðfæri fyrir hann,“ sagði hún án þess að hika og það varð úr að Ragnar fór að læra á trompet til þess að ganga í augun á sellóleik- ara. En þeim ferli lauk enn hraðar en hann kom til þegar Ragnar fékk hláturskast þegar hann var að spila undir stjórn þess góða manns Páls Pampichler Pálssonar sem fékk nóg af vitleysisganginum í stráknum. Hrækingar og kaffi Fyrst þegar hann kom til mín svo við gætum stillt okkur upp og ég hrækt á hann átti ég líka erfitt með að berjast við hláturinn. Ragnar kom ásamt vinum sínum sem sáu um að taka þetta upp og þá var þetta enn smátt í sniðum og enginn peningur í þessu. Ragnar skipti í hvíta skyrtu og svo stilltum við okkur upp og létum vaða. Að þessu loknu fór drengurinn í bað og við fengum okkur svo öll kaffi saman áður en við kysstumst bless. Mér fannst svo mikil fásinna að vera að hrækja á þennan góða dreng. Ég þurfti því að nýta alla mína leikarareynslu og hæfileika til þess að komast í gegnum þetta án þess að fara að skellihlæja rétt eins og Ragnar framan í Pál um árið. Það er víst hægt að sjá þetta þegar horft er á verkið en svo þró- aðist þetta áfram hjá okkur. Útrásarpésinn Ragnar Fimm árum seinna fannst mér þetta ekki alveg eins erfitt. Gat betur haldið einbeitingunni við hrækingarnar á son minn eins undarlega og það hljómar. Skömmu eftir hrunið þá greip ég svo til þess ráðs að ímynda mér hann sem ein- hvern útrásarpésa sem með glanna- skap og græðgi væri búinn að setja fjölda heimila á hausinn. Það hjálpaði og talsvert meiri alvara var þá komin í hræking- arnar. Hann fékk það alveg óþveg- ið það árið. Svona er þetta eflaust litað af sinni samtíð hverju sinni en það er kannski rétt að taka fram að samband okkar Ragnars er allt- af afskaplega gott. Öðruvísi væri þetta ekki gerlegt.“ Ítalska mamman Guðrún er á því að inntak verks- ins sé efalítið margbreytilegt eftir auga þess sem á lítur. „Ég vil ekki vera að leggja mikið í þetta – læt það öðrum eftir. Ég hitti eitt sinn ítalskan milljónamæring sem keypti eitt þeirra örfáu eintaka sem er hægt að kaupa af Ég og móðir mín. Blessaður maðurinn var upp- veðraður yfir því að hitta móður listamannsins en svo varð mér á að nefna að hún Sissa mín hefði verið að fá tilnefningu til leiklistarverð- launa og ég var eðlilega stolt af því. Þá fór maðurinn í óskaplega fýlu út í mig. En sem móðir þá gat ég nú ekki látið þetta liggja og fór og tal- aði við blessaðan manninn og bað hann um að segja mér hvað amaði að. Milljónerinn stundi því þá upp að þegar hann hefði sem ungur lögfræðingur flutt sitt fyrsta stóra mál fyrir rétti hefði móðir hans verið á staðnum. Hann hefði nefnt hana í ávarpi við réttinn og boðið hana sérstaklega velkomna. Blaða- menn stukku til og óskuðu henni til hamingju með að eiga svona flott- an son. Hún þakkaði pent en sagði svo: „Já, hann er fínn en þið ættuð að kynnast henni dóttur minni.“ Úbbs. Hún hrækti á hann – eða svo fannst honum að minnsta kosti og þetta átti hann erfitt með að fyrir- gefa. Þetta var efalítið ástæðan fyrir því að hann keypti verkið og þannig leggur hver sitt í þetta.“ Mæður á tvíæringi Guðrún segir að það hafi vissulega verið gleðilegt að fá að vera hluti af velgengni sonarins. Þannig hafi Feneyjatvíæringurinn verið mikið ævintýri sem Ragnar hafi séð til að mamma gæti tekið þátt í. „Hann hringdi í mig og spurði mig hvort ég vildi ekki koma og vera með við opnun tvíæringsins. Ég sagði honum að ég hefði því miður ekki efni á svo veglegu ferðalagi en hann bað mig bara að vera alveg rólega með það. Svo talaði hann við umsjónarfólkið og sagði því að það væri algjörlega nauðsynlegt að móðir hans væri á staðnum við opnunina til þess að gefa fólki sína víðfrægu fiskisúpu. Á hæðinni fyrir ofan Ragnar var búsettur listamaður frá Víet- nam og honum fannst þetta svo góð hugmynd að hann krafðist þess að fá móður sína á staðinn til þess að gefa þá öllum kjúklingasúpu. Það fór svo að við stóðum þarna mæð- urnar hvor úr sinni heimsálfunni með ausurnar á meðan þeir stukku fram á sjónarsviðið og slógu í gegn.“ Svona sonur Það er umhugsunarefni að leikkona sem á að baki fimmtíu ára feril skuli hafa lítið á milli handanna eftir allt sitt ævistarf. Guðrún segir að það sé vissulega áhyggjuefni hversu marg- ir eldri borgarar í íslensku samfé- lagi búi við þröngan kost og framlag eldri kynslóða sé lítilsvirt af sam- félaginu. „Það sem gerðist hjá mér og í raun heilli kynslóð leikara hjá Leik- félagi Reykjavíkur var að við vorum í raun svikin um eftirlaun og það mörg hver eftir áratuga starf. Þetta er kynslóðin sem vann launalaust að því að safna fyrir nýju leikhúsi með miðnætursýningum í Austur- bæjarbíói. Þegar við töpuðum að endingu dómsmáli þessa efnis þá hringdi Ragnar í mig frá New York og spurði mig hvort ég væri þá ekki illa sett. Ég gat nú ekki neitað því að þetta væri ákveðið áfall. „Hvað er yfir- drátturinn hár, mamma?“ spurði hann mig þá og ég sagðist nú þurfa aðeins að athuga það en þá vildi hann fá að vita það strax. „Ég er á fundi hérna á Guggenheim-safn- inu og þeir eru að kaupa af mér verk. Hvað er yfirdrátturinn hár mamma?“ Ég stundi því upp að hann væri nú kominn í milljón sem hann óneitanlega var. „Allt í lagi, mamma.“ Og þar með var hann rok- inn og svo borgaði hann upp yfir- dráttinn minn með verkinu sem hann seldi Guggenheim. Hvernig er hægt að hrækja á svona son?“ Hvernig er hægt að hrækja á svona son? Guðrún Ásmundsdóttir leikkona hefur hrækt á son sinn, Ragnar Kjartansson myndlistarmann, að hans beiðni á fi mm ára fresti allt frá aldamótum. Gjörningurinn er myndbandsverk sem hefur farið sigurför um listaheiminn og fj órði hluti er nú sýndur í i8 Gallery. SÖGUMAÐUR Guð- rún Ásmundsdóttir er sögumaður af guðs náð og einstaklega lífleg og skemmtileg kona með hjartað á réttum stað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Úbbs. Hún hrækti á hann– eða svo fannst honum að minnsta kosti og þetta átti hann erfitt með að fyrirgefa. Þetta var efalítið ástæð- an fyrir því að hann keypti verkið og þannig leggur hver sitt í þetta. HRÆKINGAR Mynd úr verki Ragnars Kjartanssonar, Ég og móðir mín. MENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.