Fréttablaðið - 13.06.2015, Qupperneq 110
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 52
„Meginstefna okkar er að fólk
getur alveg mætt eitt, það þarf
ekki að koma með dansfélaga,
en það má vissulega,“ segir Rut
Ríkey Tryggvadóttir, formað-
ur Tangóævintýrafélagsins sem
stendur fyrir Tango Festivalito
sem hófst í gær og stendur til 17.
júní. Verður mikið um dýrðir um
helgina, segir Rut. „Við byrjum í
Kramhúsinu yfir daginn og færum
okkur svo yfir á Stórhöfða 23 þar
sem við verðum með svokallað
„work shop“. Um kvöldið verður
svo mikið ball, eða milonga, þar
sem Helen La Vikinga og Fernando
Corrado munu sýna dans,“ útskýr-
ir Rut. Ekki er þörf á að taka þátt í
öllu, fólk einfaldlega velur sér það
sem heillar og greiða menn svo
bara fyrir það. „Það er vel hægt að
koma bara á ball, eða sækja stakan
tíma. Bæði byrjendur og lengra
komnir ættu sannarlega að finna
eitthvað fyrir sig,“ bendir Rut á.
Rut segir mikinn áhuga meðal
Íslendinga á tangódansi og þegar
best láti séu haldin fjögur tangó-
böll í Reykjavík í hverri viku.
„Tangóævintýrafélagið heldur til
dæmis alltaf danskvöld á kaffihús-
inu Sólon á mánudagskvöldum þar
sem fólki gefst færi á að koma í
ókeypis kynningartíma og smakka
aðeins á þessum tangó.“ Lýkur
dansveislunni ekki fyrr en 17.
júní og þá með engum smá hvelli.
„Þá ætlum við að vera í Ráðhús-
inu, dansa og bjóða upp á ókeypis
kennslu, en Tangóævintýrafélagið
hlaut góðan styrk frá Reykjavík-
urborg í tilefni 100 ára kosninga-
afmælis kvenna á Íslandi,“ segir
Rut stolt að lokum. - ga
SUNNUDAGUR
LAUGARDAGUR
Leyfi legt að mæta einn í tangó
Tangóævintýrafélagið mun dansa frá sér allt vit um helgina og rúmlega það.
TRYLLTUR TANGÓ Kennarar á heims-
mælikvarða bjóða upp á kennslu um
helgina. MYND/ LAURA VALENTINO
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
13. JÚNÍ 2015
Gjörningar
10.00 Snart hjarta, einkasýningu Rakelar
Steinarsdóttur í Grafíksalnum, norðan-
megin í Hafnarhúsinu. Sýningin er aðeins
þessa einu helgi.
Tónleikar
16.00 Minningartónleikar um Ágúst
Ármann Þorláksson. Tvennir tónleikar
verða í Egilsbúð Neskaupstað, kl. 16.00 og
20.00. Tónleikarnir verða um leið útgáfu-
tónleikar á plötu með lögum Ágústar
Ármanns. Allur ágóði af tónleikunum og
plötusölu mun renna í minningarsjóð um
Ágúst Ármann.
20.00 Útgáfutónleikar Ensími. Fimmta
plata Ensími kemur út í mánuðinum og
hefur hún hlotið nafnið Herðubreið. Í til-
efni af útgáfu plötunnar ætlar Ensími að
blása til útgáfutónleika í Gamla Bíó.
22.00 Tónlistamennirnir KK og Magnús
Eiríksson koma fram á Café Rosenberg
í kvöld. Á tónleikunum spila þeir lög úr
lagasafni hvor annars auk sameiginlegra
lagasmíða, en þeir hafa gefið út þrjár
plötur með eigin efni. Aðgangseyrir er
2.000 krónur.
22.00 Hollenska hljómsveitin Focus
heiðrar Íslendinga með tónleikum á
Græna hattinum á Akureyri í dag. Focus
er þekktasta hljómsveit Hollands fyrr og
síðar og njóta mikillar virðingar meðal
tónlistaráhugamanna. Hljómsveitin var
stofnuð 1969 og starfaði til 1978 en var
endurlífguð 2002 og hefur túrað mikið
síðan.
Leiklist
13.00 Leikhópurinn Lotta mun sýna Litlu
gulu hænuna á Hvammstanga í dag, á
Bangsatúni. Aðgangseyrir er 1.900 krónur.
17.00 Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu gulu
hænuna í Fagrahvammi, Blönduósi, í dag.
Aðgangseyrir 1.900 krónur.
Fundir
10.00 Ferðalag um ferðaþjónustuna, í
hátíðarsal Norræna hússins.Rannsóknar-
miðstöð ferðamála stendur fyrir málþingi
um íslenska ferðaþjónustu sem stendur
nú á tímamótum. Allir velkomnir.
Uppákomur
10.00 Valkyrjureið. Árleg Stúlknaferð
2015, og er öllum konum velkomið
að vera með, annaðhvort á hjóli eða á
bögglaberanum. Valkyrjureiðin hefur alltaf
verið umlukin dulúð og leyndarmál hvert
ferðinni er heitið. Hvar: Farið frá Hörpu
tónlistarhúsi.
12.00 Star Wars-dagur í Nexus. Brian
Muir, myndhöggvarinn sem skapaði Darth
Vader og hannaði Stormtrooper-bún-
inginn mætir á svæðið. Mikið fjör. Hvar:
Nóatúni 17. Allir velkomnir.
Opið Hús
10.00 Fundur fólksins er lífleg þriggja
daga hátíð um samfélagsmál í Norræna
húsinu og næsta nágrenni þess dagana
11. til 13. júní. Tjaldbúðir verða fyriri utan,
auk kofa, sem lífga upp á hátíðarsvæðið.
Hin ýmsu félagasamtök munu kynna
sína starfsemi alla helgina, í bland við
þétta dagskrá fyrirlestra og annarra uppá-
koma í Norræna húsinu. Allir hjartanlega
velkomnir.
Bæjarhátíðir
13.00 Kótelettan BBQ Festival 2015.
Bæjarhátíð á Selfossi. Stórfengleg dagskrá
og mikið líf í bænum.
13.00 Víkingahátíð í Hafnarfirði alla
helgina, en þetta er í tuttugasta skipti
sem hátíðin er haldin. Hvar: Fjörukráin
Hafnarfirði.
Tónlist
14.00 Í dag verður boðið upp á tónlistar-
dagskrá í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi
í tengslum við sýninguna Sköpun bernsk-
unnar. Þar munu Lára Sóley Jóhannsdóttir
og Hjalti Jónsson flytja efni af vögguljóða-
plötunni Draumahöll sem er nýútkomin.
Lára leikur á fiðlu og syngur, en Hjalti
leikur á gítar. Flutt verður blanda af
íslenskum og erlendum vögguljóðum og
leitast við að skapa hugljúfa stemmningu.
Allir hjartanlega velkomnir.
19.30 Sumarhöllin 2015. Sóley, Retro Stef-
son, Tilbury, Ylja, Berndsen, Kveld-Úlfur og
Borko koma fram. Hvar: Samkomuhúsinu
Baldri Drangsnesi. Aðgangseyrir 5.000
krónur.
22.00 Raggie-kvöld á Paloma, Naustinni.
Aðgangur ókeypis.
Myndlist
14.00 Í dag opnar Gerður Guðmunds-
dóttir myndlistarmaður sýningu á textíl-
verkum í Listasal Mosfellsbæjar. Heiti sýn-
ingarinnar er Hringrás og stef verkanna
er fjölbreytni náttúrunnar. Verkin eru að
mestu unnin úr ull, sem Gerður þæfir í
voðir, þrykkir á og saumar út í, auk þess
sem hún beitir blandaðri tækni og
vinnur úr plasti og næloni. Aðgangur
ókeypis.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
14. JÚNÍ 2015
Leiklist
13.00 Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu
gulu hænuna í Litla skógi á Sauðárkróki.
Aðgangseyrir er 1.900 krónur.
Dans
20.00 Dansað verður Félagsheimili eldri
borgara í Reykjavík í Stangarhyl 4. Hljóm-
sveit hússins leikur fyrir dansi. Félagar
taki með sér gesti. Aðgangseyrir er kr.
2.000 en kr 1.600 gegn framvísun félags-
skírteinis.
Tónlist
20.00 Tina– Drottning rokksins verður
sýnd í hinsta sinn á stóra sviði Hörp-
unnar í Eldborg í kvöld. Farið er yfir
feril Tinu Turner í glæsilegri umgjörð
en það eru þær Sigríður Beinteinsdóttir,
Bryndís Ásmundsdóttir, Regína Ósk, Erna
Hrönn og Stefanía Svarvarsdóttir sem
ljá lögunum raddir sínar. Gestasöngvarar
eru leikarinn Jóhannes Haukur og Vignir
Snær. Dansarar eru undir stjórn Yesmine
Olsson. Miðasala á harpa.is
21.00 Hljómsveitin Atómbræður heldur
tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg
8. Aðgangur ókeypis.
Leiðsögn
11.00 Dagur villtra blóma - flóran í
borgarlandinu. Haldið verður upp á sam-
norrænan Dag villtra blóma í dag. Boðið
er upp á tvær leiðsagðar gönguferðir um
náttúruna í borgarlandinu; í Elliðaárdal
kl. 11 og Fossvogi kl. 14. Fjallað verður
um gróðurfar svæðanna og plöntur
greindar til tegunda. Gestir eru hvattir
til að taka með sér flóruhandbækur og
stækkunargler. Þátttaka er ókeypis og allir
velkomnir.
Listamannaspjall
15.00 Samræður á sunnudegi. Sirra
Sigrún ræðir við gesti og segir frá verkum
sínum á sýningunni Geymar í Listasafni
Árnesinga. Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
������������������
����������������������
����������������������
���������������� ���
����������������������
�������������������������
�����������������������
��������������������
���������������
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
KANARÍ
Veturinn er kominn í sölu
Fararstjórarnir Kristín og Svandís taka
vel á móti þér og þínum á Kanarí.
Flogið í vetur með Icelandair.
Júbílantahátíð
2015
MA
Hátíðin hefst með fordrykk kl. 18. Glæsilegur matseðill og frábær skemmtidagskrá.
Hljómsveitin Buff ásamt Ernu Hrönn Ólafsdóttur, leikur fyrir dansi fram á rauða nótt.
Í efri sal duna gömlu dansarnir og þar halda Hermann Arason og félagar uppi stuðinu.
Upplýsingar og miðapantanir á
bautinn.muna.is
Íþróttahöllinni á Akureyri 16. júní
„Mætast vinir enn í dag“
Miðapantanir á
bautinn.muna.is
Miðaverð á dansleik
4.000 kr. eftir kl. 23.
�������������������������������������������������������� ����������������������������������������