Gerðir kirkjuþings - 1984, Page 9
1
Kirkjuþing 1984
Kirkjuþing íslensku þjóðkirkjunnar, hið fimmtánda í röðinni, hófst með guðsþjónustu í Hallgríms-
kirkju, þriðjudaginn 30. október 1984. Séra Þorbergur Kristjánsson predikaði, en altarisþjónustu önn-
uðust sóknarprestar Hallgrímskirkju, þeir séra Karl Sigurbjörnsson og séra Ragnar Fjalar Lárusson.
Orgelleikari var Hörður Áskelsson og Mótettukór Hallgrímskirkju annaðist söng.
Þingsetning, herra Pétur Sigurgeirsson, biskup
Hæstvirtur kirkjumálaráðherra og frú.
Virðulegu gestir, bræður og systur.
Kæru kirkjuþingsfulltrúar.
Ég býð ykkur öll innilega velkomin við setningu kirkjuþings!
Ég þakka guðsþjónustuna, og þeim, er veittu þjónustu sína, - séra Þorbergi Kristjánssyni fyrir
predikun hans, sóknarprestum Hallgrímskirkju altarisþjónustu þeirra. Eg þakka organista Herði
Áskelssyni, -og ykkur fyrir safnaðarsönginn. Enn sem fyrr var það gott að geta búið sig þannig undir
þingstörfin í sameiningu, í vakandi bæn og lifandi trú við fætur Drottins og við borð hans.
Ég þakka forráðamönnum Hallgrímskirkju, séra Karli Sigurbjörnssyni og séra Ragnari Fjalari Lárus-
syni, og formanni sóknarnefndar, Hermanni Þorsteinssyni, að taka enn á móti okkur í þessi mjög svo
þekku og kæru húsakynni til þingstarfa undir háum Hallgrímsturni. Ég bið byggingu þessa mikla must-
eris, sem nú er á lokastigi, blessunar Guðs.
Frá því að síðasta kirkjuþing var haldið hefir einn af fyrrverandi kirkjuþingsmönnum látist. Dr. Ólaf-
ur Jóhannesson fyrrv. forsætis-, dóms- og kirkjumálaráðherra lést þann 20. maí í vor, 71 árs að aldri.
Hann var fæddur að Stórholti í Skagafirði 1. mars 1913.
í ráðherratíð Ólafs Jóhannessonar á árunum 1971 til 1978 var hann óslitið kirkjumálaráðherra í 7 ár. -
Svo er kveðið á í lögum um kirkjuþing, að kirkjumálaráðherra skuli eiga þar sæti, - eða fulltrúi hans. Þó
að Ólafur Jóhannesson gæti eigi sinnt daglegum störfum á kirkjuþingi sökum annarra starfa á sama
tíma, þá fylgdist hann með öllu, sem hér gerðist, af vakandi áhuga.
Á löngum og litríkum æviferli kom það skýrt í ljós, að Ólafur Jóhannesson var mikill mannkosta og
drengskaparmaður. Það sýndi hann í störfum sínum fyrir kirkjuna og þjóðina. Hann var vel til forustu
fallinn og styrkur hans var þolgæði, kærleikur og stjórnviska. Lífsviðhorf hans var grundvallað á ein-
lægu trúartrausti. Hann var mikið prúðmenni og lét ekkert frá sér fara í ræðu eða riti að óyfirveguðu
ráði. Það birti yfir, hvar sem hann kom, hugur hans var lýsandi af góðvild og bjartsýni. Við munum
Ólaf Jóhannesson frá mörgum minnisstæðum stundum, er hann var mitt á meðal okkar. Um hann get-
um við sagt líkt og tekið var til orða um annan merkan stjórnmálamann: Við bárum gæfu til að kynnast
honum á rismestu stundum ævi hans.
Ólafur Jóhannesson lét oft í ljós viðhorf sitt til kirkjunnar og þess boðskapar sem hún flytur. Eitt sinn
sagði hann: ,,Ég held, að sönn guðstrú feli í sér virðingu fyrir manninum, fyrir mannhelgi. Þeirri skoðun
ber Biblían og kenning Krists vitni. Þau sannindi mega aldrei gleymast í boðskap kirkjunnar. Og kirkjan
getur aldrei orðið hlutlaus, þegar um mannréttindi er að ræða.” (1. maí, 1977.)
Kirkjuþing þakkar Ólafí Jóhannessyni farsæl og viskurík störf að hag og heill íslensku þjóðarinnar.
Eftirlifandi eiginkona hans er Dóra Guðbjartsdóttir. Við minnumst Ólafs Jóhannessonar með virðingu
og biðjum eiginkonu hans huggunar og blessunar, um leið og við rísum úr sætum.
Kirkjuþing er nú kvatt til starfa í 15. sinn. Þetta er þriðja þingið, sem starfar eftir lögunum frá 11. maí
1982. Meginbreytingin er sú, að nú kemur kirkjuþing árlega til fundar. Það skal að jafnaði halda í októ-
ber og starfa allt að 10 dögum.
Eins og kunnugt er, varð að fresta þingsetningu um hálfan mánuð, og þingið starfar nú við óvenjulegt
ástand í þjóðfélaginu, vegna verkfallsins, sem lamað hefir þjóð okkar í nærri heilan mánuð. Kirkjuþing