Gerðir kirkjuþings - 1984, Page 91
83
1984
15. Kirkjuþing
38. mál
Tillaga
til þingsályktunar um dreifingu embætta
innan þjóðkirkjunnar.
Flm. sr. Birgir Snæbjörnsson
Prestar í Eyjafjarðarprófastsdæmi vara við þeirri þróun sem orðið hefur, að embætti innan þjóðkirkjunnar safnist á hendur
fárra manna. Vilja þeir benda á að líta megi á þetta sem veikleikamerki og líkt því sem hæfileikamenn vanti til virðingarstarfa.
Viljum við beina því til kirkjuþings, að það álykti um þetta mál, því við teljum að styrkur kirkjunnar og vaxtarbroddur sé
með öðru í því fólginn að valddreifmg innan þjóðkirkjunnar sé með eðlilegum hætti.
Við teljum eigi eðlilegt að vígslubiskupar gegni einnig störfum prófasta, heldur verði hafist handa við að efla þessi embætti
hvort um sig og marka starfssvið og embættisskyldur þessara manna þannig að þeir verði virkir stjórnendur hver í sínu um-
dæmi.
Vísað til allsherjarnefndar. (Frsm. sr. Sigurpáll Óskarsson) Allmiklar umræður urðu um málið við 2.
umræðu þess og fram komu tvær breytingartillögur:
Sr. Halldórs Gunnarssonar „Kirkjuþing 1984 vísar 38. máli til Kirkjuráðs og ályktar, að unnið skuli
markvisst að því, að staða vígslubiskupa verði gerð að formlegum embættum.” Felld með 14 atkvæðum
gegn 5.
Breytingartillaga biskups íslands við fyrri málsgrein nefndarálits 38. máls „Kirkjuþing ályktar að beina
þeim tilmælum til allra kirkjulegra aðila, að ábyrgðarstörf og verkefni kirkjunnar dreifist á sem flestra
hendur.” Síðari málsgreinin óbreytt, þannig:
„Þingið ályktar einnig, að unnið skuli markvisst að því að staða víglsubiskupa verði gerð að formleg-
um embættum.”.
Samþykkt samhljóða.