Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Síða 101
99
Tímarit um menntarannsóknir, 5. árgangur 2008
fram að hagnýt og fagleg hæfni, bæði í
uppeldisgreinum og námsgreinum grunn-
skóla, hafi verið kjarninn í starfshæfni
grunnskólakennara en að nauðsynlegt sé að
bæta við einni vídd, þeirri persónulegu, í
ljósi nýrra rannsókna á kennarahlutverkinu
(Krejsler, Laursen og Ravn, 2004). Höfundar
telja þörf á dýpri skilningi og almennu
samkomulagi um skilgreiningu á starfshæfni
kennara sem feli í sér persónulega hæfni.
Nýlegar niðurstöður íslenskra rannsókna ber
að sama brunni (Hafþór Guðjónsson, 2004;
Kristín Aðalsteinsdóttir, 2002; Ragnhildur
Bjarnadóttir, 2004, 2008a); mikilvægt er að
skilgreina persónulega hlið starfshæfninnar.
Per Fibæk Laursen hefur gert umfangsmiklar
rannsóknir á sýn kennara á eigin starfshæfni.
Þátttakendur í rannsóknunum eru reyndir
kennarar sem allir fengu þá umsögn að vera
mjög „góðir“ kennarar. Hann komst að þeirri
niðurstöðu að ákveðnir persónulegir eiginleikar
séu kjarninn í starfshæfni þessara kennara og
telur að leita þurfi leiða til að styrkja þennan
kjarna starfshæfninnar með kennaramenntun.
Hann leggur til að orðið „autencitet“ verði
notað um þá mikilvægu og flóknu mannlegu
eiginleika sem þurfa samkvæmt niðurstöðum
rannsóknarinnar að prýða alla „góða kennara“.
Erfitt er að þýða orðið á íslensku en samkvæmt
orðabókaskýringum þýðir það að vera sannur,
trúverðugur og heiðarlegur. Samkvæmt
skilgreiningu Laursen felur hugtakið í sér
einlægni, áhuga, virðingu fyrir börnum og fyrir
eigin gildum og það að geta nýtt sér slík gildi í
starfi (Laursen, 2004).
Í rökstuðningi fræðimanna fyrir þörfinni á að
draga persónulegu víddina inn í skilgreiningar
á starfshæfni kennara er gjarnan vísað til
breytinga á kennarahlutverkinu. Einkum er
bent á þá staðreynd að uppeldishlutverkið
er orðið ríkari þáttur í starfinu en áður og
ábyrgðin víðari (Krejsler, Laursen og Ravn,
2004; Sigrún Aðalbjarnardóttir, 1992; Sigrún
Aðalbjarnardóttir og Selman, 1997). Sú
staðreynd að kennurum er nú ætlað að stuðla
að félagslegum og tilfinningalegum þroska
nemenda sinna hefur leitt til þess að kröfur um
félagslega og tilfinningalega hæfni kennara
hafa bæði aukist og orðið sýnilegri en áður
(Hargreaves, 1998; Ingólfur Á. Jóhannesson,
1999; Klette, 2002; Krejsler, Laursen og
Ravn, 2004; McLean, 1999). Þess utan gera
breyttar aðstæður í skólum – ríkari áhersla
á foreldrasamstarf, blandaðir nemendahópar
og aðkoma aðstoðarfólks – nýjar kröfur til
kennara um samstarfs- og stjórnunarhæfni.
Margt bendir til þess að tengslin milli
kennarans sem fagmanns annars vegar og
einstaklings hins vegar séu nánari en áður
(Hansbøl og Krejsler, 2004; Hargreaves, 1998).
Starf kennara hefur alltaf verið erfitt og gert
miklar kröfur til kennarans sem einstaklings en
slíkar kröfur virðast vera breytilegar og háðar
kennarahlutverkinu á hverjum tíma.
Á undanförnum árum hef ég stundað
rannsóknir á starfshæfni kennara frá sjónarhóli
kennaranema (Ragnhildur Bjarnadóttir, 2004,
2005a, 2005b, 2008a). Í rannsóknum mínum
er gert ráð fyrir að starfshæfni kennara sé
heildstætt fyrirbæri sem hefur ýmsar víddir
eða hliðar, þar á meðal persónulega hlið. Þá
vísa ég til mannlegra eiginleika sem tengjast
kennarahlutverkinu og hægt er að hafa áhrif á
með kennaramenntun.
Rannsóknir mínar á persónulegri hlið
starfshæfninnar, þar sem þátttakendur
eru kennaranemar í fjórum norrænum
kennaraháskólum, sýna að kennaranemarnir
upplifa kröfur um að sem verðandi kennarar
vinni þeir með eigin tilfinningar, viðhorf og
tengsl við aðra (Ragnhildur Bjarnadóttir,
2008a). Kennaranemarnir lýstu þeim
viðfangsefnum kennara sem þeim þóttu sérlega
erfið. Vandamálin sem nemarnir lýsa eru flókin
og erfitt að sjá fyrir sér einfaldar lausnir.
Einsemd og ótti við upplausn er áberandi
(Søndenå, 2008). Niðurstöður benda til þess
að kennaranemar telji sig þurfa að ná tökum
á persónulegri hæfni ekki síður en faglegri og
hagnýtri hæfni sem tengist kennarastarfinu.
Nemarnir virðast vilja ná tökum á hæfni í
samskiptum sem er samþætt úr félagslegri
3 Sjá nánar grein mína í tímaritinu Uppeldi og menntun, í prentun.
Markmið kennaranáms