Gerðir kirkjuþings - 1997, Síða 18
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
Fastanefndir kirkjunnar.
21. gr.
Kirkjuþing kýs við upphaf hvers kjörtímabils fastanefndir kirkjunnar. skv.
nánari reglum skv. 60. gr.
Kirlguleg stjórnvöld.
22. gr.
Stjómvöld þjóðkirkjunnar og stofnana hennar fara með stjómsýslu í öllum
efnum, þar með talda ráðningu og lausn starfsmanna. og bera ábyrgð gagnvart
kirkjuþingi.
Kirkjuþing skal sjá til þess að reikningshald kirkjulegra aðila hljóti
fullnægjandi endurskoðun.
Kirkjuþing getur haft frumkvæði að frumvörpum til laga um kirkjuleg málefhi
og beint þeim tilmælum til ráðherra að þau verði flutt á Alþingi.
Ráðherra leitar umsagnar og tillagna kirkjuþings um lagaffumvörp um
kirkjuleg málefhi er hann hyggst flytja á Alþingi.
5. Kirkjuráð.
Almennt.
23. gr.
Kirkjuráð fer með ffamkvæmdarvald í málefhum þjóðkirkjunnar. Biskup
Islands er forseti kirkjuráðs.
Skipan kirkjuráðs.
24. gr.
Kirkjuráð er, auk biskups íslands, skipað fjórum mönnum. tveimur
guðffæðingum og tveimur leikmönnum sem kirkjuþing kýs og skulu varamenn kosnir
með sama hætti. Kosið skal í kirkjuráð á fyrsta kirkjuþingi að aflokinni kosningu.
Kirkjuráðsmenn sitja þar til nýtt kirkjuráð hefur verið kjörið.
Kirkjuráð kýs sér varaforseta en biskupsritari er ritari kirkjuráðs.
Starfssvið kirkjuráðs.
25. gr.
Kirkjuráð fer með ffamkvæmd sameiginlegra málefna þjóðkirkjunnar, þar á
meðal verkefna sem lög og stjómvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess
m.a. af hálfu kirkjuþings, prestastefhu, Alþingis og ráðherra.
Ákvörðunum kirkjulegra stjómvalda, sem heyra undir lögsögu kirkjuráðs, má
skjóta til kirkjuráðs til endanlegrar úrlausnar. Undanskildar em ákvarðanir úrskurðar-
og áfrýjunamefnda skv. 11. og 12. gr., svo og ákvarðanir biskups skv. 11. gr. og um
kenningu kirkjunnar, sbr. 10., 18., 19. og 27. gr. Varði málsskot ákvörðun biskups
íslands er hann hefur áður tekið víkur hann sæti í kirkjuráði meðan það mál er til
meðferðar þar.
Akvörðunum kirkjuráðs á ffamkvæmdasviði kirkjulegrar stjómsýslu verður
eigi áffýjað til kirkjuþings en fjalla má um málefnið á kirkjuþingi að frumkvæði
einstakra kirkjuþingsmanna.
Um málsmeðferð í kirkjuráði, svo og meðal annarra kirkjulegra stjómvalda,
skal fýlgt ákvæðum stjómsýslulaga nr. 37/1993 eftir því sem við getur átt, leiði annað
12