Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 Fréttir DV iiwyim ■! ■: a^pr.' Átta mánaða fangelsi fyrir þjófnað Hæstiréttur dæmdi á fimmtudag Þór Rúnar Þórisson í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjóínað. Héraðsdómur hafði dæmt hann í átta mánaða fangelsi og skyldu fimm mánuðir vera skilorðsbundnirafrefsingunni. Þór var sakfelldur fyrir nytjastuld en hann tók biffeið í heimildarleysi og ók henni þar til hann missti stjórn á henni og hafnaði hún utan vegar og gjöreyðilagðist Þá var hann einnig sakfelldur fyrir þjófnað en hann hafði stolið úr bifreiðinni geislaspilara og MP3-spilara. I ljósi upplýsinga um breyttar fjölskylduaðstæöur hans og að teknu tilliti til þess að hann hafði bætt það tjón sem hann hafði valdið, var faliist á að refsingin yrði skilorðsbundin að öllu leyti. Nauðgunarlyf í föndurperlum Lífshættulegar föndurperlur hafa verið innkallaðar af leikfangaversluninni Toys'R'Us. Þær geta verið lífshættulegar börnum séu þær gleyptar. Um er að ræða föndurperlur sem eru bleyttar til að þær festist saman. 1 erlendum fjölmiðlum hefur komið fram að börn hafi veikst alvarlega af þeim. Eftir rannsókn kom í ljós efni sem skylt er nauðgunarlyfinu GHB. Perlurnar voru auglýstar í jólabæklingi verslunarinnar sem hefur verið dreift á heimili landsmanna. Því er beint til viðskiptavina að skila vörunni hið fýrsta. Fangelsi fyrir þjófnað og ölvunarakstur Kristján Hreinsson, 35 ára, var á föstudag dæmdur í 40 daga fangelsi fýrir nytjastuld og umferðarlagabrot. Kristján var ákærður fyrir að hafa stolið bif- reið á Selfossi 13. júlí í sumar og ekið henni sviptur ökuréttindum og undir áhrifum áfengis áleiðis til Reykjavíkur. Kristján játaði brot sitt skýlaust en hann hefur áður gerst sekur um brot gegn ávana- og fíkniefnalögum. Hon- um var auk þess gert að greiða hundrað þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir brotið, ella sæta fangelsi í átta daga. Vill frítt í strætó Ármann Kr. Ólafsson, stjórnarformaður Strætó bs., segir það varla borga sig að rukka fargjald í stætisvagna eftir að nemendur í ffamhalds- skólum og háskólum fengu ff ítt í strætisvagna. Ármann telur að með gjaldfrjálsum strætó- ferðum á höfuðborgarsvæð- inu megi efla starfsemi Strætó og fjölga farþegum umtalsvert. Reynslan af gjaldffjálsum stræt- isvögnum í öðrum bæjarfélög- um, meðal annars á Akureyri, hafi sýnt það. Boðað verður til sérstaks borgarafundar í Hrísey vegna óánægju margra íbúanna með hausaþurrkunarverksmiðju í eyjunni. Athugasemdafrestur rennur út í lok mánaðarins og þá tekur heilbrigðisnefnd málið fyrir. Siglt verður með hausana i farþegaferjunni og hafa íbúarnir áhyggjur af óþef og sóðaskap vegna starfseminnar. 4* <3 TRAUSTI HAFSTEINSSON bladamadur skrifar: trausti&dv.is Hríseyingar eru sumir æfir yfir fýrir- hugaðri hausaþurrkunarverksmiðju í eyjunni. Þar er fyrirhugað að verka 140 tonn af fiskhausum mánaðarlega og stór hluti hráefnisins verður fluttur til eyjarinnar með ferjunni. Auglýst hef- ur verið eftir athugasemdum og frest- ur til að skila þeim inn er til loka mán- aðarins. Það er fyrirtækið Eyfar ehf. sem bæði sér um ferjureksturinn og ætí- ar að reka hausaþurrkunarverksmiðj- una. Verksmiðjan er áætíuð í húsnæði nærri bryggjunni þar sem í dag er að finna vörugeymslu Vegagerðarinnar. íbúarnir hafa óskað eftir sérstökum borgarafundi þar sem ræða á fyrirhug- aða verksmiðju og óánægju íbúanna. Þeir eru ósáttir við þefinn sem væntan- lega mun stafa frá starfseminni, sóða- skapinn um borð í ferjunni og neikvæð áhrif sem verksmiðjan geti haft á upp- byggingu ferðaþjónustu í Hrísey. Hlustar ekki á kjaftæði Birgir Sigurjónsson, útgerðar- maður í Hrísey, hefur orðið var við mikla óánægju meðal íbúanna. Hann segir óánægjuna ekki snú- ast um að íbúarnir séu mótfallnir rekstraraðilunum heldur einung- is hugmyndum um þurrkun haus- anna. „Menn eru bullandi óánægð- ir. Hagsmunir flestra íbúa eru í þá veru að fá ekki þessa verksmiðju á eyjuna. Alls staðar þar sem hausa- þurrkun er hefur það verið stór- vandamál. Vandinn eykst hjá okkur því ofan á allt þarf að flytja meiri- hluta úldins hráefnisins með far- þegaferju og því fylgir alls konar sóðaskapur og óhreinindi," segir Birgir. Smári Thorarensen, talsmaður Eyfars, bendir á að hausaverkun sé alls ekki ný af nálinni hér á landi og skilur ekki óánægjuraddir eyjarskeggja. Hann segir til standa að ferja allt hráefni í aukaferðum ferjunnar og telur starfsemina verða til að auka áhuga erlendra ferðamanna. „Við verðum að geta „Vandinn eyksthjá okk- ur því ofan á allt þarf að flytja meirihluta úld- ins hráefnisins með far- þegaferju og því fylgir alls konar sóðaskapur og óhreinindi." lifað. Hausaverksmiðjan er eina leiðin sem við höfum til að hafa peninga út úr. Mér finnst með ólíkindum að fólk vilji standa í vegi fyrir því fáa jákvæða sem fram undan er og við viljum keyra þetta í gegn. Það hvarflar ekki að mér að hlusta á svona kjaftæði og það verður ekkert tillit tekið til óánægju manna sem hafa ekki hugmynd um hvað þeir tala um," segir Smári. Á ekki heima á eyjunni Bjami Jónasson, stjórnarformaður Norðurskeljar, undirbýr krækl- ingavinnslu til manneldis í öðrum hluta hússins og sú starfsemi fer í gang við fyrsta tækifæri. Hann óttast að þessar tvær vinnslur fari ekki vel saman í húsinu. „Formlega hefur stjórnin ekki farið yfir málið en við erum að skoða þetta út frá okkar hlið. Það er ljóst að öll lyktarmengun sem getur truflað okkar vinnslu er ekki góð og hagsmunir okkar eru að geta framleitt ómengaða vöru. Við óttumst hættuna á því að starfsemi okkar fari ekki saman með hinni," segir Bjami. Á meðan Smári telur hausaþurrkunina vekja áhuga ferðamanna hefur Birgir áhyggjur af því að hún fæli ferðamenn frá. „Ólyktin verður það fyrsta sem fólk mætir á eynni og í sama húsinu á að rækta skelfisk til manneldis. Ég sé heldur ekki hvernig þessi verksmiðja getur farið saman með uppbyggingu ferðaþjónustu og vistvæns samfélags. Upplagið hjá þeim sem vilja reka verksmiðjuna er að þeir sem em ósáttir séu á móti starfsemi þeirra. Það er alls ekki rétt, það er bara hausaþurrkunin sem á ekki heima í eyjunni." Ágúst Ólafur Ágústsson vill að lögreglan fái að nota tálbeitur gegn barnaníðingum: Gífurlequr fælinqarmáttur fyrir barnaníðinqa Lögreglan mun fá heimild til þess að beita tálbeitum til þess að koma upp um barnaníðinga, ef hugmyndir Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, fá nægan hljómgrunn á Alþingi. Ágúst Ólafur hefur sent Birni Bjarnasyni fyrirspurn á Alþingi þar sem hann spyr hvort ráðherra sé tilbúinn að beita sér fyrir heimild handa lögreglu til að beita tálbeitum í baráttu sinni gegn barnaníðingum. Ágúst Ólafur telur nauðsynlegt að auka réttarvernd barna í samfélaginu og þetta sé ein leið til þess. Til þess að lögreglan fengi slíka heimild þyrfti lagabreyting á Alþingi að eiga sér stað. „Varnar- áhrifin og fælingarmátturinn af slíkum lögum hlytu að verða gífurleg," segir hann. Samkvæmt núgildandi lögum er ekki heimilt að nota tálbeitur gegn barnaníðingum. Nokkrir meintir barnaníðingar, sem féllu í gildru fréttaskýringaþáttarins Kompáss, voru sýknaðir fyrir héraðsdómi, meðal annars með þeim rökum að tálbeitur stæðust ekki lög. Ágúst telur þó fleiri spurningar vakna um hvort fjölmiðlar eigi að beita tálbeitum líkt og Kompás gerði. Ágúst Ólafur horfir meðal annars til Evrópu þar sem lögreglu er víða heimilt að notast við tálbeitur með ágætum árangri. „Danir hafa ftjálslegri löggjöf um tálbeitur og ég get ímyndað mér að tilvist svona lagaákvæðis myndi hafa það í för með sér að þessir viðbjóðslegu glæpamenn sem leita á böm geti aldrei verið vissir um hvort þeir eru að nálgast lögreglumann eða barn." Ágúst Ólafur er jafnframt bjartsýnn á að hann hafi stuðning í þinginu við þessar hugmyndir. „Eg held að fólk vilji almennt sjá breytingar hvað þennan mála- flokk varðar og ég held að flestir þingmenn séu sammála. Ég kalla eftir umræðu um þetta í þinginu og vil heyra afstöðu dóms- málaráðherra til þessarar hug- myndar." valgeir@dv.is Ágúst Ólafur Ágústsson „Ég get (myndað mér að tilvist svona lagaákvæðis myndi hafa það í för með sér að þessir viðbjóðslegu glæpamenn sem leita á börn geti aldrei verið vissir um hvort þeir eru að nálgast lögreglu- mann eða barn."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.