Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Blaðsíða 4
m \ miihi yii_jii|_ j _ ii iiiii i
MANUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007
Fréttlr 0V
Níðstöng gegn
Kárahnjúka-
virkjun
Aðgerðasamtökin Saving
Iceland reistu níðstöng við styttu
Jóns Sigurðssonar á Austurvelli
um helgina. í tilkynningu frá
samtökunum sem send var til
fjölmiðla um helgina segir að
níðstönginni hafi verið beint
gegn þeim sem bera ábyrgð á
Kárahnjúkavirkjun. Lögreglumenn
hafa þegar fjarlægt mðstöngina,
en á henni hafði verið komið
fyrir hauskúpu af dýri. Notkun
níðstanga hefur færst í aukana á
nýjan leik, á síðasta ári reisti bóndi
á Suðurlandi nágranna sínum
mðstöng vegna deilna þeirra á
milli.
Reykjavíkurborg rekur Malbikunarstöðina Höfða hf. sem stendur í samkeppni við
einkafyrirtæki. í meirihlutatíð sjálfstæðismanna í borginni beittu þeir sér ekki fyrir
einkavæðingu þrátt fyrir þau grundvallarsjónarmið flokksins að opinber fyrirtæki
standi ekki í samkeppni við einkafyrirtæki. Júlíus Víflll Ingvarsson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, er stjórnarformaður fyrirtækisins.
Malbika fyrir aðra Malbikunarstöð Reykjavík-
urborgartekurað sér verkefni innan borgarinnar
sem og utan hennar. Samkeppnisstaða
fyrirtækisins er gagnrýnd og sögð stríða gegn
grundvallarsjónarmiðum Sjálfstæðisflokksins.
í BULLANDISAMKEPPNI
Aðkomumenn
handteknir
Lögreglan á Akureyri hand-
tók tvo karlmenn í kringum
tvítugt aðfaranótt laugardags
fyrir ölvunarlæti í miðbæ Akur-
eyrar. Mennirnir höfðu staðið í
áflogum þegar lögregla hand-
tók þá. Þeir voru látnir sofa úr
sér á lögreglustöðinni og sleppt í
gærmorgun. Annar mannana er
grunaður um að vera aðildar-
maður að líkamsárás sem átti sér
stað í bænum. Lögreglan á Akur-
eyri segir að vert sé að geta þess
að í þessu tilviki hafi verið um
utanbæjarmenn að ræða.
Beltin
björguðu
Tveir karlmenn sluppu án
teljandi meiðsla þegar bifreið
þeirra valt á þjóðvegi eitt rétt
norðan við Víðihlíð á laugar-
dagsmorgun. Mikil hálka og
snjór voru á veginum og missti
ökumaður stjórn á bílnum og
valt hann allavega eina veltu.
Bifreiðin er mikið skemmd en
samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Blönduósi mega
mennirnir þakka bílbeltum að
ekkifórverr.
7"»
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamodur skrifar: traustko'dv.is
Reykjavíkurborg stendur í bull-
andi samkeppni við einkafyrir-
tæki á sviði steypuframleiðslu og
Iagningu malbiks. Það er í gegnum
Malbikunarstöðina Höfða hf. sem
er í eigu borgarsjóðs. Júlíus Vífill
Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, hefur setið sem
stjórnarformaður fyrirtækisins.
Árið 1996 sameinuðust tvö
borgarfyrirtæki, annars vegar Mal-
bikunarstöð Reykjavíkurborgar og
hins vegar Grjótnám Reykjavíkur-
borgar. Frá þeim tíma hefur fyr-
irtækið keppt á markaði þar sem
einkafyrirtæki er að finna.
Það á við um framleiðsludeild
fyrirtækisins og framkvæmda-
deild. Samkeppnin einskorðast
ekki við verkefni á vegum Reykja-
víkurborgar heldur keppir fýr-
irtækið um önnur verk, meðal
annars malbikunarverkefni fyrir
önnur sveitarfélög og einkafyrir-
tæki.
Gegn grundvallarhugmyndum
Það vekur athygli að borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins situr sem
stjórnarformaðurogaðímeirihlutatíð
flokksins í Reykjavíkurborg hafi
flokkurinn ekki beitt sér fýrir því
að einkavæða malbikunarstöð
borgarinnar. Sjálfstæðismenn
hafa verið einna harðastir í því að
einkavæða fyrirtæki sem komin
eru í samkeppni við einkafyrirtæki
og þau grundvallarsjónarmið hafa
komið skýrt fram síðustu vikur þegar
samstarf og sameining Reykjavíkur
Energy Invest, dótturfyrirtækis
Orkuveitu Reykjavíkur, og Geysis
Green Energy hafa mikið verið til
umræðu. Þá lýstu borgarfulltrúar
flokksins því skýrt yfir að þeir teldu
óeðlilegt að fyrirtæki í eigu borgarbúa
færi í samstarf við einkafyrirtæki.
Meðal þeirra sem lýstu opinberlega
yfir þeirri skoðun sinni var Júlíus
Vífill, sitjandi stjórnarformaður Mal-
bikunarstöðvarinnar Höfða.
Ótæk samkeppni
Óskar Bergsson, formaður fram-
kvæmdaráðs Reykjavíkurborgar,
furðar sig á því að borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins hafi tíl þessa
sinnt stjómarformennskunni gegn
gmndvaUarsjónarmiðum flokksins.
Aðspurður segir hann það í sumum
tílvikum nauðsynlegt að hið opinbera
reki fyrirtæki í samkeppni. „Mér
finnst það skrítið prinsipp hjá Uokld
sem hefur það að meginmarkmiði að
blanda ekki saman opinberum rekstri
og einkarekstri í samkeppni að hann
skuli taka að sér stjómarformennsku
hjámalbUcunarstöðReykjavUotrborgar.
Það liggur alveg fyrir að stöðin er
í buUandi innanlandssamkeppni
við einkaaðUa og það stríðir gegn
hugsjónum flokksins," segir Óskar.
Sigþór Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Hlaðbæjar-Colas, undrast þá
samkeppni sem fyrirtækið þarf að
standa í frá hinu opinbera. Hann
segir samkeppnina í senn erfiða og
ósanngjama og er orðinn þreyttur á
eUífum loforðum um einkavæðingu.
„Þessi samkeppni ermeð öllu ótækog
ótrúlegt að hafa þurft að standa í henni
þetta lengi. Eiginlega er ég hættur að
hlusta á eilíf loforð um að þessum
samkeppnisrekstri borgarinnar verði
hætt. Því er alltaf lofað en aldrei staðið
við," segir Sigþór.
Tryggja verðmæti
Aðspurður viðurkennir Júlíus Víf-
U1 að samkeppnisstaða malbikunar-
stöðvarinnar stríði gegn gmndvall-
arsjónarmiðum Sjálfstæðisflokksins.
Hann segir þó rficar ástæður fyrir
setu sinni sem stjórnarformaður og
er ánægður með umræðuna. „Upp-
runalega var stöðin sett á laggirnar
til að tryggja þjónustu og samkeppni
á þessu sviði. Staðreyndin er sú að
fákeppni ríkir á markaðnum þó þar
með sagt sé ekki æskilegt að borg-
in sé í samkeppnisrekstri. Það væri
auðvitað hið besta mál ef fjárfestar
hefðu áhuga á því að koma að stöð-
inni. Ég hef talað fyrir því að borgin
standi ekki í samkeppnisrekstri sem
þessum," segir Júlíus Vífill.
„Stöðin stendur á gífurlega verð-
mætu landi og tryggja þarf þau verð-
mæti. Sömuleiðis þarf að tryggja
stöðinni góða staðsetningu verði
hún seld. Af þessum sökum var mér
falin stjórnarformennska og ég á von
á því að sitja áfram í stjórninni. Þessi
samkeppnisstaða stríðir gegn grund-
vallarsjónarmiðum flokksins en það
er ljóst að við viljum selja félagið eftir
að verðmæti landsins verða tryggð."
Hefði ekki trúað
því!
Náði af mér
IQMém!
847-4^04 ,y»"°5
Losnaöl vk) vefjagigtinal
PCOS einkennl min hafa minkaO
til munal
Egsefbeturl
AM þelta og mlklu melra getur þú
llka lagað með þvl að nota
vörumarfrá LRI
Fáðu meira
fyrir peninginn!
847-4704
Vala Friðriksdóttir.
Egerviðslman núna!
Karlmaður og tvær konur dæmd fyrir fíkniefnasmygl:
HÓTAÐIAÐ KOMA UPP UM VÆNDI
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi
á föstudag Óskar Hjartarson í tut-
tugu mánaða fangesi fyrir að hafa
skipulagt innflutning á tæpum sjö
hundruð grömmum af hreinu kóka-
íni til landsins. Tvær konur, Katrín
Stefanía Klemenzardóttir og Sólveig
Sigurðardóttir, voru báðar dæmdar
í eins árs fangelsi fyrir að hafa flutt
fíkniefnin inn til landsins með flugi
Icelandair frá Amsterdam í febrúar.
Eins og fram hefur komið í DV báru
konurnar fyrir rétti að Óskar hefði
hótað að koma upp um vændisstarf-
semi þeirra ef þær flyttu ekki efnin
inn. Konurnar voru handteknar við
komuna í Leifsstöð og reyndist hvor
um sig hafa um 350 grömm af kóka-
íni í fórum sínum og innvortis. Sól-
veig sagði við yfirheyrslu að Óskar
hefði fengið þær til þess að flytja efn-
in frá Amsterdam gegn greiðslu fjög-
ur hundruð þúsund króna. í sam-
DV 25. október 2007
skiptum sínum við konurnar villti
hann hins vegar á sér heimildir og
notaðist aðeins við nafnið Siggi.
Með brotinu rauf Óskar skilorð 45
daga fangelsisdóms sem hann hlaut í
september 2005. Komst dómurinn að
því að hann ætti sér engar málsbæt-
ur og vegna alvarleika brotsins þykir
skilorðsbundin refsing ekki koma til
greina.
Dómurinn horfði til þess að Sólveig
hefði komið upp um þátt Óskars í
málinu með ábendingu hennar á
mynd af honum hjá lögreglu, þá hafi
ekkert komið fram sem benti til annars
en að konurnar hefðu verið burðardýr
fyrir Óskar.
Eins og sagt var frá í DV í sum-
ar skipaði Katrín Stefanía annað sæti
ffamboðslista Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboðs í Suðurkjördæmi
fyrir Alþingiskosningamar árið 1999.
Hún náði þó ekki kjöri. Þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir hefur ekki náðst í neinn
sakbominganna.
valgeir@dv.is