Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 Tvær bílveltur Engin alvarleg slys urðu á fólki þegar tveir bflar fóru út af veginum í Öxnadal með um klukkustundar millibili á laugardag. Annar bflanna valt út af veginum og hafnaði úti í Bægisá. Báðir bflarnir eru taldir mikið skemmdir en 18 ára stúlka sem var ein í annarri bifreiðinni kvartaði undan eymslum í öxl og hálsi og var flutt á sjúkrahús til skoðunar. Gríðarlega mikil hálka var á veginum og voru báðir bflarnir ágætlega útbúnir. Kallarframsókn- armenn heim Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi aðgerðaleysi ríkisstjómarinnar í efnahagsmálum í ræðu sinni á miðstjómarfundi Framsóknarflokksins á laugardag. Guðni benti á nauðsyn þess að grípatil efnahagsað- gerðatilað stemma stigu við vaxtafári og verðbólgu. „Nú er það ljóst að stýrivextir em komnir upp úrölluvaldi og duga ekki til, hefði rfldsstjómin tekið sig á hefði staðan verið önnur. Ég hef áhyggjur af skuldsettum heimilum sem borga um sex hundruð þúsund krónum meira af fasteignalánum sínum en fyrir þremur árum," segir Guðni. Athygli vakti að Guðni sagði Geir Haarde forsætisráðherra sinnu- lausan í efnahagsmálum og kallaði fngibjörgu Sólrúnu Gísladóttur valdaskessu. Hann leggur áherslu á að kalla framsóknarmenn heim sem yfirgefið hafa flokkinn á síðustu árum. Tveir dópaðir undir stýri Lögreglan á Akranesi stöðvaði tvo ökumenn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna um helgina. Báðir vom stöðv- aðir á Vesturlandsvegi. í öðru tiivikinu reyndist ökumaður- inn hafa lítilræði af hassi í fór- um sínum. í hinu tilvikinu glopraði ökumaður því út úr sér við lögreglumann að hann rækt- aði marijúana á heimili sínu og gerði lögreglan á Akranesi eina plöntu upptæka. Fréttir k>V ji t T>öfrtJ CífTÉ^íJcJ^íífTÉS! fí>TÍV *TfTV^ ■ ■ rf o1,rri prf[ £ 'ÍÍJSf)ffBÉ9rlT rsnrj ' ýT/íSB Areitti 9 og 15 ára stúlkur en sleppur mögulega við dóm vegna veikinda dómara: Vísað til baka Maðurinn var fundinn sekur (Héraðsdómi Vestfjarða fyrir að káfa á dætrunum. Hæstiréttur vísaði málinu nýverið afturtil baka á þeim forsendum að skipt var um dómara í miðju dómshaldi. KÁFAÐIÁ DÆTRUNUM FYRST MÓÐIRIN VAR TREG TIL ERLA HLYNSDÓTTIR bladamaður skrifar: erlaaodv.is „Þetta mál er alveg einstakt," segir Sigríður I. Friðjónsdóttir hjá emb- ætti ríkissaksóknara. Dómi yfir manni sem hafði í Héraðsdómi Vestfjarða verið dæmdur sekur fyr- ir að særa blygðunarkennd tveggja stúlkna var vísað aftur til föður- húsanna í Hæstarétti á fímmtudag. „Sem betur fer er þetta mjög sjald- gæft," segir Sigríður. Hæstiréttur telur að brotin sé regla um milli- liðalausa málsmeðferð því ákærði kom aldrei fyrir þann dómara sem dæmdi. Ákæruvaldið mótmælir þessum úrskurði. Stúlkurnartvær, sakborningurog öll vitni höfðu komið fyrir dómara þegar hann veiktist og fékk í kjölfar- ið leyfi frá störfum. Kristinn Hall- dórsson dómari tók þá við málinu og boðaði til nýrrar aðalmeðferðar. Ákærði í málinu hafði gefið skýrslu fyrir dómi og sá sér ekki hag í því að mæta í þinghaldið. Verjandi manns- ins sagði honum kunnugt um þing- haldið en hann hefði kosið að mæta ekki. Allir aðrir komu að nýju fyrir dóm og gáfu þar skýrslu, að undan- skilinni yngri stúlkunni sem þótti of ung til að bera aftur vitni. Kristinn dæmdi manninn í hér- aði fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum árið 2002. Þá ruddist hann ölvaður í heim- ildarleysi að nóttu til inn á heim- ili kunningjakonu sinnar og dætra hennar tveggja, 9 og 15 ára. Þeg- ar móðirin innti hann eftir erindi sagði hann: „Ég ætia að ríða þér." Henni brá við, vísaði honum á dyr og faldi sig fyrir honum. Stuttu síðar kom hún að honum þar sem hann sat á rúmi eldri dótturinnar, káf- aði á brjóstum hennar og reyndi að kyssa hana. Móðirin kom dótt- ur sinni til bjargar og maðurinn fór fram. Stuttu síðar kom móðirin að honum inni hjá yngri dótturinni þar sem hann var að reyna að toga niður um hana buxurnar. Báðar stúlkurnar hafa fundið fyr- ir kvíða og hræðslu eftir atburðinn. Sú yngri óttaðist lengi að maðurinn kæmi aftur. Framburður móður og dætra þótti skýr og samhljóma en fram- burður ákærða hins vegar óljós og sundurlaus. Hann neitar sök. Fyrir brotin fékk maðurinn sex mánaða skilorðsbundið fangelsi, átti að greiða hvorri stúlku 200 þús- und krónur og tæpar 864 þúsund krónur í sakarkostnað. Dómarar í Hæstarétti voru Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir. Dómurinn klofnaði og skilaði Hjördís séráliti þar sem hún benti meðal annars á að ákærði ætti rétt á að vera viðstaddur aðalmeðferð máls, en ekki er í lögunum kveðið á um að honum sé það skylt. Hún sagðist ekki telja að meðferð málsins í héraði hefði verið haldin slíkum annmörkum að rétt væri að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og vísa málinu heim í hérað. Við vinnslu fréttarinnar náðist ekki tal af Kristni Halldórssyni. GÆSAHÚÐ Á ! GEISLADISKII Fyrir þá sem vilja frekar hlusta en lesa. Gæsahúð er komin út á geisladiski. Bækurnar Gula geimskipið (nr. 3) og Flóttinn heim (nr. 4). Lesari: Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða í Unun). www.tindur.is ur Bókaútfláfa tindur@tindur.is Fráfarandi karlþula telur dagskrárstjóra aðeins vilja hafa konur: Þulurnar fengnar til að hætta Guðmundur Bragason, fráfarandi þula hjá RÚV viðurkennir að starfslok hans hafi borið að fyrr en hann gerði sjálfúr ráð fyrir. Hann hafði hugleitt að hætta á næstu mánuðum er Þórhall- ur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV fór þess á leit við hann að hætta fyrr. Guðmundur er þrátt fyrir það sáttur við þessa ákvörðun og segir ellefu ár í þulustarfinu vera ágætan starfsferil. Auk þess hefur hann í nógu að snú- ast, meðal annars flytur hann inn kan- adísk einingahús og hefur verið einn forsvarsmanna hins umdeilda Bridge fjárfestingarklúbbs. Guðmundur er annar tveggja þulna sem hætta núna, hin er Guðrún Kristín Erlingsdóttir. Hún hafði sagt upp munnlega fyrir tveimur mánuð- um án þess að ákveðin dagsetning hafi legið fýrir varðandi starfslokin. Guð- rún segist einnig sátt við starfslok sín Þórhallur dagskrárstjóri Fékktvær þulur til að hætta fyrr en ráðgert var og hefur nú þegar ráðið í þeirra stað. og hlakkar til að takast á við ný verk- efni í framtíðinni. Áður var farið fram á að EllýÁrmanns segði starfi sínu lausu efdr að hún tók við starfi hjá öðrum fjölmiðli, fyrir vikið fór Þórhallur fram á að hún hætti. Eva Sólan og Katrín Brynja Hermannsdóttir munu álfam birtast á skjánum. Hinar nýju þulur eru þær Sigurlaug Jónsdóttir, flugfreyja hjá Icelandair, Sigríður Halldórsdóttir, hagfræði- og stjórnmálafræðinemi, Matthfldur Magnúsdóttir laganemi og Anna Rún Frímannsdóttir, sminka hjá Rfldssjón- varpinu. Athygli hefur vakið að þær eru allar líkar í útliti, ljóshærðar og myndarlegar. Aðspurður vildi Guðmundur lítið tjá sig um starfslok sín en ítrekaði að engin illindi væru á milli sín og for- svarsmanna RÚV. Enginn karlmaður er nú eftir í þulustarfinu og Guðmund- ur telur það vera meðvitaða stefhu dagskrárstjóra að hafa eingöngu kon- ur í þulustarfinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.