Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR BIRGIR LEIFUR SIGRAÐI Á SPÁNI Birgir Leifur Hafþórsson gerði sér Ktið fyrir og vann ( úrtökumóti fyrir þá sem eru að þerjast um að komast inn á Evrópumótaröð- ina. Birgir Leifur spilaði á 7 höggum undir pari á þriðja degi og það lagði grunninn að sigrinum. Á lokadeginum lék hann á 69 höggum eða þremur höggum undir pari og tryggði sér þar með sigur á mótinu og lék alls á 274 höggum eða 14 höggum undir pari á Arcos Gardens- vellinum á Spáni. Birgir var að vonum afar sáttur við sigurinn sem gefur honum aukið sjálfstraust á næstunni.„Þriðji dagurinn var mjög góður hjá mér og allt (leik mínum sem gekk vel. Það var fínt að klára þann dag svona vel því það tók af mér helstu pressuna fyrir lokadaginn. Rúsínan ( pylsuendanum var að vinna þetta sföan, það var mjög sætt. í heildina séð spilaði ég mjög vel á mótinu. Ég get ekki kvartað yfir neinu. Völlurinn hentaði mér vel því ég notaöi löngu járnin sem ég er góður (að nota. Ég setti mér það markmið fyrir lokahringinn að vinna mótið og þar með setti ég pressu á sjálfan mig. Það er hins vegar mikilvægt að læra það að takast á við sjálfan sig. Þetta eru eilíf slagsmál við hausinn á sér en ég afar sáttur með þetta upp á framhaldið." Birgir segir þetta veita sér mikið sjálfstraust fyrir mótið sem sker úr um það hvort hann komist á Evrópumótaröðina en það hefst á fimmtudaginn á Spáni.„Ég mun taka allt það jákvæða með mér úr þessu móti. Ég vissi alitaf að ég gæti þetta þótt ég hefði viljað fá þetta fyrr í sumar. Ég tekþessu hlns vegar fegins hendi. Núna reynir maður að undirbúa sig l(kt og (síðasta móti. Það getur allt gerstsegir Birgir Leifur Hafþórsson. Hann mun spila á móti á fimmtudaginn og ef hann verður meðal 30 efstu þar mun hann spila á Evrópumótaröðinni. IDAG 07:00 MAN. UTD - BLA Enska úrvalsdeildin Enska úrvalsdeildin Ensku mörkin Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla þætti þarsem öll mörkin og helstu atvik umferðarinnar eru sýnd frá öllum mögulegum sjónarhornum. Öll glæsilegustu mörk hverrar leiktiðar Úrvalsdeildarinnarfrá upphafi til dagsins í dag. Enska úrvalsdeildin 22:00 ENGLISH PREMiER LEAGUE Ensku mörkin Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik umferðarinnar eru sýnd frá öllum mögulegum sjónarhornum. 23:00 COCA COLA MÖRKIN Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í leikjum síðustu umferðar í Coca Cola deildinni. 23:30 READING - ARSENAL Enska úrvalsdeildin Valur vann sinn fyrsta sigur í Meistaradeild Evrópu í hand- bolta þegar liðið lagði fyrrverandi Evrópumeistara í Celje Lasko að velli 29-28 í Vodafone-höllinni. „Stærsti sigur minn sem þjálfari,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals. Kominn í faeri Akureyringurinn Baldvin Þorsteinsson átti góðan leik og skoraði fjögur mörk. DAGUR SVEINN DAGBJARTSSON blaðamaður skrifar: dagur@dv.is Valur tók á móti slóvenska liðinu Celje Lasko í Meistaradeild Evrópu í handbolta í gær. Fyrir leikinn hafði Valur ekki náð að vinna leik til þessa en það breyttist í gær. Valsmenn áttu frábæran leik og fóru að lokum með 29-28 sigur af hólmi. Til að undirstrika hversu stórt afrek þetta er má geta þess að Celje Lasko var Evrópumeistari fyrir aðeins þremur árum. Jafnt var á öllum tölum í fyrri hálfleik. Bæði lið léku góðan vamaríeik og gáfu fá færi á sér. Valsmenn voru þó yfirleitt skrefi á undan og leiddu mestallan fyrri hálfleik. Vörn Valsmanna var frábær og slóv- enska liðið skoraði nánast eingöngu mörk með þrumuskotum utan af velli, enda frábærar skyttur sem Celje Laska hefur innanborðs. Valsmenn skoruðu hins vegar mörk í öllum regnbogans litum. Góður vamarleikur liðsins skilaði liðinu nokkrum hraðaupphlaupum sem nýttust vel og þá léku þeir Elvar Friðriksson, Fannar Friðgeirsson og Amór Malmquist skínandi vel í sókn Vals. Valur leiddi þegar flautað var til leikhlés, 15-14. Valur byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og náði þriggja marka forskoti, 19-17, á upphafsmínútunum. Það var ekki síst að þakka góðri markvörslu Ólafs Hauks Gíslasonar, sem kom sterkur inn í síðari hálfleik. Valsmenn gerðu þó nokkur klaufaleg mistök þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum. Á þeim kafla hefðu Valsmenn nánast getað gert út um leikinn, en fyrir vikið náði Celje Lasko að saxa á forskotið. Þáttur Pálmars Lokamínúturnar vom æsispenn- andi. Þegar um tvær mínútur voru eftir voru Valsmenn einu marki yfir, 29-28, og Slóvenarnir í sókn. Celje Lasko fékk vítakast þegar ein mínúta og fimmtán sekúndur vom eftír og Húsvíkingurinn Pálmar Pétursson gerði sér lítíð fyrir og varði vítakastíð. Celje Lasko hélt boltanum og þegar um fimmtán sekúndur voru eftír komst Mihael Gorensek í dauðafæri á línunni en aftur varði Pálmar ffábærlega. Valur fékk boltann, hélt honum allt til leiksloka og tryggði sér stórkostlegan sigur, 29-28. Sigur Valsmanna f gær fer að öllum líkindum á spjöld sögunnar sem einhver besti sigur íslensks liðs í Evrópukeppninni. Valur á tvo leiki eftir, gegn þýska liðinu Gummersbach í Þýskalandi 18. nóvember og gegn ungverska liðinu Veszprem í Vodafone-höllinni 22. nóvember. Áhorfendur í gær hefðu mátt vera fleiri en ef þessi sigur fær Vals- menn ekki til að mæta á völlinn þegar Veszprem kemur í heimsókn er óvíst að nokkuð geri það. Það skal hins vegar tekið fram að þeir áhorfendur sem mættu á leikinn í gær eiga hrós skilið. Stærsti sigur minn sem þjálfari Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, sagði eftir leikinn að sigurinn í gær hefði verið hans stærsti sigur sem þjálfari. „Þetta var frábær sig- ur. Við náðum að stöðva hraðaupp- hlaup þeirra og spiluðum mjög góða vörn. Ölafur var góður í markinu og undir lokin kom Pálmar sterkur inn. Flestir leikmenn áttu frábæran leik og ég held að við höfum komið Evr- ópu svolítið á óvart. Frábær sigur. Við sögðum fyrir leikinn að við ætluðum að halda þeim undir 28 mörkum og þau voru akkúrat 28 mörkin sem þeir skoruðu. Við sögð- um líka að við þyrftum allir að eiga mjög góðan leik og Celje kannski slakan. Ég held að það hafi gerst í dag. Celje er mjög gott lið og þeir eiga enn góða möguleika í riðlin- um. Ég held að þetta sé minn stærsti sigur sem þjálfari og ég er mjög stoltur af leikmönnunum og ís- lenskum handbolta. íslenskur handbolti er aftur að sýna hvers hann er megnugur," sagði Óskar Bjarni. Ólafur Haukur Gíslason, fyrir- liði Vals, var að vonum ánægður með sigurinn. „Ég er mjög ánægður með þennan sigur. Við vorum mjög óánægðir eftir tapið í Slóveníu. Við ákváðum því að leika betri leik í dag. Við trúðum því alltaf að við gætum unnið og við fórum í leikinn með þá von og kláruðum dæmið," sagði Ólafur Haukur og bætti við að leikurinn í gær hafi verið besti leik- ur Vals á tímabilinu. „Sennilega besta vörn sem við höfum spilað og hraðaupphlaup. Ég held að við höfum fengið fjögur mörk eftír hraða miðju og einhver fimm eða tíu eftir hraðaupphlaup. Ég er mjög ánægður með liðið og þetta var bestí leikur okkar á tímabilinu." Ragna Björg Ingólfsdóttir sigraði á alþjóðlegu badmintonmóti í Reykjavík: TVÖFALDUR SIGUR RÖGNU Ragna Björg Ingólfsdóttir Er í miklum ham þessa dagana og sigraði á lceland Express-mótinu. Ragna Björg Ingólfsdóttir, bad- mintonkona úr TBR, sigraði á al- þjóðlegu badmintonmóti sem fram fór í Reykjavík nú um helgina. Sigur- inn veitir Rögnu mikið sjálfstraust en hún stefnir ótrauð á ólympíuleikana sem fram fara í Peking á næsta ári. Ragna sigraði hina dönsku Trine Niemeier frá Danmörku í tveimur lotum, 21:11 og 21:3. Áðurhafðihún meðal annars lagt hina eistnesku Kati Tolmoff að velli en hún var röð- uð númer eitt í mótið og átti fyrir- fram að vera sterkasti leikmaðurinn ef miðað er við heimslistann í bad- minton. Ragna hefur nú unnið á tveim- ur alþjóðlegum mótum f röð á án þess að tapa lotu. Hverju þakkar hún þennan góða árangur? „Mér líður mjög vel og ég er ótrúlega sátt við þetta. Ég þakka þetta breyttu hug- arfari auk þess að vera í góðu formi. Erfiðastí leikurinn var á móti Katí (Tolmoff) í undanúrslitunum. en ég náði að ýta því úr vegi og spilaði vel gegn henni. Það var nokkuð sér- stakur leikur því við erum mjög góð- ar vinkonur. Ég reyndi bara að vera ekkert að horfa of mikið á hana. Við erum mun jafnari en tölurnar gefa til kynna. Salurinn var meðmérogmót- lætið fór svolítið í taugarnar á henni. Auk þess þekki ég vel hennar spil og vissi hvernig ég átti að taka á hennar bestu höggum," segir Ragna. Ragna verður á ferð og flugi á næstunni. „Ég fer til Noregs um næstu helgi og svo verður það lík- lega Rússland, Ítalía og Grikkland í desember. Annars getur planið hjá manni breyst með stuttum fyrirvara og ekki alveg öruggt hvert ég fer," segir badmintonkonan Ragna Björg Ingólfsdóttir. Katrín Atladóttír og Ragna Björg Ingólfsdóttír sigruðu í tvíliðaleik en í úrslitum mættu þær Tinnu Helgadóttur og Söru Jónsdóttur. Úrslitaleikurinn var hörkurimma sem endaði í þremur í lotum 21:18, 21:23 og 21:17. vidar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.