Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Side 14
14 MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007
Sport DV
Chelsea missti unninn leik niður í jafntefli á lokamínútunum. Tim Cahill skoraði glæsilegt jöfnunarmark
fyrir Everton úr hjólhestaspyrnu á 90. mínútu.
Drogba í ham Didier Drogba
skoraði markog spilaði vel.
VIÐAR GUÐJÓNSSON
bladamadur skrifar: vidar@dv,is
K
Tim Cahill skoraði glæsilegt
jöfnunarmark á 90. mínútu og
tryggði Everton jafntefli á útivelli
gegn Chelsea á Stamford Bridge.
Leikmenn Chelsea voru betri í
leiknum en góður leikur Tims
Howard markvarðar auk mikils vilja
leikmanna Everton leiddu til þess að
liðið náði að jafna leikinn undir lokin
oglokatölur urðu 1-1.
Chelsea hafði ekki fengið á sig
mark í deildinni síðan 23. septemb-
er þegar Cahill skoraði en leikmenn
liðsins áttu að vera búnir að gera út
um leikinn þegar Everton jafnaði.
Fyrri hálfleikur var að mestu ein-
stefna að marki Everton þó Chelsea-
mönnum hafl gengið illa að skapa sér
góð færi framan af. Fyrsta færið átti að
vísu hinn smávaxni Stephen Pienaar í
liði Everton en hann hitti ekki knött-
inn í upplögðu færi í teignum.
Það að hitta ekki knöttinn virtist
vera smitandi því stuttu síðar fékk
Didier Drogba algjört dauðafæri á
markteig eftir sendingu frá Shaun
Wright Phillips. Ekki vildi bemr til
en svo að Drogba hitti ekki knöttinn
sem skoppaði í rólegheitum framhjá
honum. Chelsea-menn áttu nokkur
tækifæri til þess að skora áður en
flautað var til hálfleiks.
Glæsilegt mark hjá Cahill
Leikmenn Everton prísuðu sig
sæla með jafha stöðu í hálfleik en
allan leikinn var ljóst að liðið kom
á Stamford Bridge til þess að verja
markið og halda jafnteflinu.
f hálfleik gerði David Moyes breyt-
ingar á sínu liði sem skiluðu árangri
og Chelsea hafði ekki jafnmikla yfir-
burði og í fyrri hálfleik.
Það kom þó ekki í veg fyrir að
Chelsea skoraði fyrsta markið á
70. mínútu. Þar var að verki Didier
Drogba með skalla eftir hornspyrnu.
Fílabeinsstrendingurinn læddi sér
fram fyrir varnarmenn Everton á
nærstöng og skallaði knöttinn í
netið.
Allt benti til þess að þetta myndi
duga Chelsea-mönnum sem lentu
í litlum vandræðum með máttlaus-
ar sóknaraðgerðir Everton. Helst
var lífsmark með James Mc Fadd-
en, Skotanum knáa í liði Evert-
on. Hann var maðurinn á bak við
jöfnunarmark Everton. Átti skot að
marki sem fór í Tim Cahill og upp í
loft, Cahill var ekkert að tvínóna við
hlutina og skaut knettinum í netið
úr hjólhestaspyrnu, sannarlega lag-
legt mark og þar við sat.
Einn af bestu leikjum okkar
Chelsea er eftir sem áður í þriðja
sæti í deildinni en Avram Grant,
framkvæmdastjóri Chelsea, var
jákvæður þrátt fyrir jafnteflið.„Þetta
var einn af okkar bestu leikjum.
Við spiluðum mjög góðan fótbolta,
fengum fullt af góðum færum en
þeir skoruðu úr eina færi sínu.
Það mikilvægasta er samt að við
sköpuðum okkur fullt af færum og
ef við höldum áfram að gera það
erum við á réttri leið með liðið."
David Moyes var afar sáttur við
stigið í lok leiks. „I fyrri hálfleik áttu
þeir nokkur góð færi en við feng-
um einnig gott færi. í seinni hálfleik
gerðum við breytingar á liði okkar og
náðum betri tökum á leiknum. Fyr-
ir vikið vorum við alltaf inni í leikn-
um og staðráðnir í að standa okk-
ur. Við vorum með leikmenn inni á
vellinum sem geta skorað mörk og
Cahill er einn þeirra. Hann sýndi
enn og aftur hvers hann er megnug-
ur. McFadden var einnig góður og
breytti miklu. Við vorum hugrakkir
og fengum það sem við áttum skil-
ið," sagði Moyes.
64% MEfi BOLTANN 36%
21 SKOTAÐMARKI 7
7 SKOTÁMARK 1
3 RANGSTÖÐUR 1
9 HORNSPYRNUR 1
13 AUKASPYRNUR 18
3 GULSPJÖLD 1
0 RAUÐSPJÖLD 0
ÁH0RFENDUR:41.683
Cudicini, Belletti, Alex, Carvalho
(Ben-Haim 29.), Bridge, Bsien,
Wright-Phillips (Kalou 64.), Obi,
Lampard,JoeCole,Drogba.
Howard, Hibbert, Yobo, Lescott,
Nuno Valente, Pienaar, Carsley
(Gravesen 76.), Neville
(Mcfadden 46.), Osman, Cahill,
Yakubu(Anichebe46.).
MAÐUR LEIKSINS
fim Howard, Everton
Sá besti!
Sá flottastil
Nýbók um
undrabarnið
Cristiano
Ronaldo
Þessa bók
verða allir
knattspyrnu-
fíklar að eigal
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Wayne Rooney verður frá æfingum og keppni í allt að fjórar vikur:
ROONEY MEIDDIST f SKALLATENNIS
Wayne Rooney verður frá keppni
næstu fjórar vikurnar eftir að hafa
meiðst á ökkla á æfingu þegar hann
var að leika sér í skallatennis. Flækti
þá fótinn í netinu og sagði sir Alex
Ferguson að slysið hefði verið fárán-
legt. „Þetta er áfall fyrir okkur en við
vonum að hann verði kominn aftur
eftir fjórar vikur. Hann er búinn að
vera sjóðheitur að undanfömu en
svona er boltinn. Hann missir af leikj-
um okkar gegn Blackburn og Bolton
en landsliðið mun líka sakna hans."
Rooney hefur skorað sjö mörk í
síðustu átta leikjum og verið sjóð-
andi heitur. Hann missir einnig af
landsleiknum mikilvæga hjá Eng-
lendingum gegn Króötum á Wemb-
ley. Sá leikur sker úr um hvort Eng-
lendingar komast í Evrópukeppnina
á næsta ári.
Rooney var valinn leikmað-
ur októbermánaðar og voru aðeins
liðnar 45 mínútur frá því hann tók
við viðurkenningunni þangað til
hann meiddist. Þetta er í annað sinn
sem Rooney á lengi í meiðslum það
sem af er tímabilinu. Hann meiddist
í fyrsta leiknum gegn Reading og var
frá í 6 vikur.
Brotthvarf Rooneys þýðir að Luis
Saha verður að reyna að halda sér
heilum. Meiðslasaga Saha er með
ólíkindum og hann hefur aðeins
spilað 108 leiki með Manchester
United frá því hann kom árið 2004.
Saha hefur sýnt það að hann getur
skorað mörk. Hann er sterkur í loft-
inu, góður skotmaður og er dugleg-
ur að finna samherja. Sending hans
á Patrice Evra gegn Arsenal sem
leiddi til marks Ronaldos segir allt
sem segja þarf um að Saha geti vel
fyllt það skarð sem Rooney skilur
eftir sig.
benni@dv.is
Klaufi Wayne Rooney sneri sig illa á
ökkla í skallatennis.