Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2007, Page 21
lioql
PV Sport
Watford heldur efsta sætinu í næstefstu
deild Englands þrátt fyrir 2-2 jafntefli viö
Colchester. Ipswich vann stórsigur á Brist
ol City og Glenn Roeder á enn eftir aö
vinna sinn fyrsta leik sem stjóri Norwich.
Þrír sigrar í röð Alan
Pardew og lærisveinar hans
í Charlton hafa unnið þrjá
leiki í röð og unnu 3-0 sigur
á Cardiff um helgina.
OAGUR SVEINN DAGBJARTSSON
blaðamaður skrifar: dagum>d\/.is
Charlton hefur unnið þrjá leiki í röð
í næstefstu deild Englands eftir að
hafa tapað þremur leikjum í röð í
októbermánuði. Á laugardaginn var
Cardiff fórnarlambið, en lokatölur
urðu 3-0 fyrir Charlton.
Sam Sodje og Chris Iwelumo
skoruðu sitt markið hvor í
uppbótartíma í fyrri hálfleik gegn
Cardiff. Það var svo Kínverjinn
Zheng Zhi sem innsiglaði 3-0 sigur
Charlton með marki tíu mínútum
fyrir leikslok.
Þrátt fyrir sigurinn segir Alan
Pardew, stjóri Charlton, að mikil-
vægt sé fyrir leikmenn liðsins að
halda sig á jörðinni. Tvær vikur eru
í næsta leik þar sem næsta helgi er
landsleikjahelgi.
„Það er mikilvægt fyrir öll lið,
sérstaklega í þessari deild, að halda
einbeitíngu eftir sigur eða tap og
halda stanslausu flæði í liðinu. Við
fórum ekki á taugum þegar við töp-
uðum þessum þremur leikjum, við
vorum ákveðnir og með jákvætt
hugarfar.
Við verðum að halda einbeitingu
af því mín reynsla af þessari deild
er sú að desember og janúar eru
mjög mikilvægir mánuðir. Þetta
tímabil hefur verið mjög flókið
út af landsleikjum, sérstaklega út
af þessum átta aukaleikjum. Það
getur haft áhrif í lok tímabilsins,"
sagði Alan Pardew, sem hrósaði
varnarmönnum sérstaklega eftir
sigurinn á Cardiff.
„Þegar Cardiff átti góðan kafla í
leiknum lögðum við okkur alla fram
og vörðumst mjög vel. Við hefðum
ef til vill getað skorað fleiri mörk en
ég er ánægður með úrslitin," sagði
Pardew.
Roeder enn án sigurs
Norwich hefur enn ekki unnið leik
frá því að Glenn Roeder tók við liðinu
um síðustu mánaðamót. Norwich
heimsótti Plymouth á laugardaginn og
varð að sætta sig við 3-0 tap. Norwich
hefur spilað þrjá leiki frá því Roeder
tók við, gert eitt jafntefli, tapað tveimur
og er enn í neðsta sæti deildarinnar.
„Oft lærir maður meira um sína
leikmenn í tapleikjum. Við höfum
tapað tveimur leikjum, gegn Watford
á heimavelli og þessum leik. Ég sé
augljóslega hvaða verkefni ég hef tekið
að mér. Ég er mjög jákvæður maður
og ég hef trú á að ég geti snúið við
blaðinu," sagði Roeder eftír tapið gegn
Plymouth.
Nágrannar Norwich í Ipswich unnu
aftur á móti stórsigur á spútnikliði
Bristol City. Lokatölur urðu 6-0, þar
sem Jonathan Walters skoraði þrennu.
Bristol City misstí mann af velli í
stöðunni 2-0 þegar Bradley Orr var
rekinn afvelli.
Ipswich hefur nú unnið ellefu leiki
á heimavelli í röð. Ipswich komst í 2-0
gegn Bristol City eftir fimmtán mínútur
og Jim Magilton, stjóri Ipswich, sagði
að það hefði verið mikilvægt að byrja
leikinnvel.
„Við vissum að við þyrftum að byrja
vel og við máttum ekki leyfa þeim að
komast inn í leikinn. Bristol City er ný-
liði í deildinni og hefur staðið sig vel á
útivöllum, en við byrjuðum mjög vel.
Við létum boltann ganga vel á milli
manna og þetta var góður dagur"
sagði Magilton.
Watford gerði jafntefli
Topplið Watford varð að sætta
sig við 2-2 jafntefli við Colchester á
heimavelli sínum. Adrian Boothroyd,
stjóri Watford, var samt sem áður
ánægður með leik liðsins og sagði
að liðið hefði bætti sig á ýmsum
stöðum á vellinum eftir að liðið féll
úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
„Ef borin er saman spilamennska
okkar þegar við vorum í úrvalsdeild-
inni og spilamennska okkar núna
erum við betri með boltann núna.
Við erum að bæta okkur en það er
enn nóg eftír," sagði Boothroyd, sem
hrósaði einnig liði Colchester.
„Þeir lém okkur hafa fyrir hlumn-
um. Þeir voru vinnusamir og skipu-
lagðir og lögðu sig ffam sem lið. Ég
var vonsvikinn að vinna ekki leikinn
en við getum aðeins kennt sjálfum
okkur um." sagði Boothroyd.
Reading og Arsenal mætast í síðasta leik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni:
FABREGAS SEGIST EKKIVERA FRÁBÆR
íslendingalið Reading fær Ars-
enal í heimsókn á Madejski-völlinn
í kvöld. Arsenal hefur farið mikinn
það sem af er tímabilinu og er enn
taplaust.
Reading hefur leikið sex heima-
leiki á tímabilinu til þessa, unnið
fjóra og tapað tveimur. Brynjar Björn
Gunnarsson hefur komið við sögu í
öllum leikjum Reading á tímabilinu.
fvar Ingimarsson hefur hins vegar átt
erfitt með að vinna sér sætí í byrjun-
arliðinu að undanförnu og ekki kom-
ið við sögu í þremur síðustu leikjum
liðsins.
Cesc Fabregas hefiir hlotið mikið
lof fyrir ffammistöðu sína á leiktíð-
inni. Hann hefur skorað ellefu mörk í
fimmtán leikjum, þar af sex í úrvals-
deildinni. Fabregas hefur þar að auki
gefið fimm stoðsendingar í ensku úr-
valsdeildinni.
Spánverjanum unga hefur ver-
ið hrósað í hástert að undanförnu
og margir segja hann vera ffábæran
leikmann. Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, segir hins vegar
að leikmenn getí ekki talist frábærir
fyrr en þeir vinni titla og Fabregas er
sammála honum.
„Ég er 100 prósent sammála hon-
um. Ég get ekki sagt að ég sé frábær
leikmaður. Ég segi líka alltaf hjá Ars-
enal að við séum mjög gott lið, en ég
get ekki sagt að við séum frábært lið.
Þegar við vinnum eitthvað sem
hópur getum við sagt að við séum
ffábært iið, en á þessari stundu erum
við aðeins gott lið," segir Fabregas,
sem hefur unnið einn bikarmeistara-
títíl með Arsenal frá því hann kom tíl
félagsins árið 2003.
„Það er aðeins hægt að segja
að maður sé sigursæll þegar mað-
ur hefur unnið títla. Þegar þú hefur
unnið Evrópukeppni, heimsmeist-
arakeppni, úrvalsdeildina, Meist-
aradeildina getur þú sagt að þú sért
sigursæll. Núna get ég ekki sagt neitt,
ég hef aðeins unnið enska bikarinn,"
bættí Fabregas við.
dagur@dv.is
fOOS 33aM3VÓH ,St HUDAQUtíAM 0£
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2007 21
Engir hundar
viðstaddir kynlífið
Cheryl, eiginkona Ashleys Cole,
leikmanns Chelsea, segir að bakvörður-
inn knái geti ekki
stundað kynlíf ef
hundarþeirra
séu á vettvangi.
Cheryl, sem er
söngkonai
stúlknasveitinni
Girls Aloud, segir
að það slái Cole
útaflaginuef
chihuahua-
hundar þeirra séu viðstaddir.
„Þegar við stundum kynlífvill Ashley
ekki hafa hundana í herberginu, hann
vill ekki að þeir séu að horfa á," sagði
Cheryl sem er nú ekki þekkt fyrir annað
en segja það sem í huga hennar býr.
Cole, sem er að ná sér af meiðslum, var
valinn í enska landsliðshópinn á
dögunum sem mætir Króatíu í lokaleik
liðsins (undankeppni EM á næstu
dögum
Pirlo hafnaði Real Madrid
Andrea Pirlo, leikmaður AC Milan,
hefurgreintfrá því að Real Madrid hafi
viljað fá hann
sumarið 2006.
Pirlo, sem var
heimsmeistari
með ítölum það
sama sumar, var
mikið orðaður
við Real Madrid
þetta umrædda
sumar. „Sumarið
2006 hafði verið
orðrómur um hugsanleg félagaskipti til
Real Madrid. Þetta voru skrýtnar
aðstæður því að þetta var í gangi á
meðan hneykslismálið var en þetta
endaði með því að ég var áfram," sagði
Italinn Andrea Pirlo
De Guzman til Chelsea?
Avram Grant, stjóri Chelsea, vill fá
Jonathan De Guzman, leikmann
Feyenoord, til liðsins í félagaskipta-
glugganum (janúar. Grant ertilbúinn
að borga 8
milljónir punda
fýrirþennan
tvítuga
miðjumann. Ef
Grantfær
Guzman til
liðsins yrði hann
fyrsti leikmaður-
inn sem hann
fengitil liðsins
en Grant tók við liðinu á þessari leiktíð
eftir að Jose Mourinho hætti hjá
félaginu.
Barton vill í landsliðið
Joey Barton, leikmaður Newcastle,
hefur ekki gefið upp alla von um að
leika annan landsleiken þessi
ólátabelgur hefur
leikið einn
landsleik fyrir
England.„Enginn
hefurmeiri vilja
heldur en ég og
ég myndi elska
það að spila fyrir
England allar
stundir. Ef ég
spila vel held ég
að þeir geti ekki litið framhjá mér, ég vil
vera hluti af hópnum á EM 2008 ef þeir
komast þangað. Það eru ekki margir
miðjumenn sem geta keppt við mig,
Gerrard, Barry og Lampard og það eina
sem ég þarf ertækifæri," sagði Barton.
Enn meiðsli hjá West Ham
West Ham verður án Lee Bowyer á
næstu vikum sökum kviðslitaraðgerðar
sem hann þarf að gangast undir (
næstu viku. Þetta er mikið áfall fýrir
West Ham þar sem hann hefur spilað
vel hjá
Hömrunum að
undanförnu og
skoraði meðal
annars tvö mörk
gegn Derby um
liðna helgi.„Því
miður hefur
hann þurftað
spila í gegnum
sársauka-
þröskuldinn að undanförnu," segir Alan
Curbishley framkvæmdastjóri West
Ham. George McCarthy meiddist einnig
i leiknum á móti Derby og þvi lengist
enn á meiðslalistnum hjá liðinu en
margir leikmenn liösins eiga við
langtimameiðsli að stríða.